Fréttablaðið - 30.07.2005, Blaðsíða 25
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 4
Flokkar
Bílar & farartæki
Keypt & selt
Þjónusta
Heilsa
Skólar & námskeið
Heimilið
Tómstundir & ferðir
Húsnæði
Atvinna
Tilkynningar
Góðan dag!
Í dag er laugardagur 30. júlí,
211. dagur ársins 2005.
REYKJAVÍK 4.28 13.34 22.38
AKUREYRI 3.54 13.19 22.40
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Magnús Kjartansson tónlistarmaður á
þriggja ára pickup-bíl og telur að
hann sé „trendsetterinn“ í þessari
tísku. Að minnsta kosti var hann fyrst-
ur í sínum vinahópi.
„Þetta er Chevrolet Silverado, það dugir
sko ekkert minna,“ segir Magnús. „Hann er
ekkert rosalega sætur, en ágætur ef horft
er framan á hann. Þetta er náttúrlega dísil-
bíll og þrátt fyrir að við séum að upplifa
rosalegar breytingar mun ég halda mig við
dísilið. Ég er að draga hestakerrur og dísil-
vélarnar vinna bara öðruvísi. Bíllinn nýtist
mjög vel í hestamennskunni og pallurinn er
ægilega fínn fyrir hnakka, reiðtygi og ann-
an útbúnað. Það er fínt að þurfa ekki að
hafa þetta dót inni í bílnum. Svo er annað
flott við þennan bíl en það er gúmmígólf
sem hægt er að skúra. Það myndi ég halda
að hestamenn kynnu vel að meta. Pickup-
trukkur með teppi, það er einhver þversögn
í því.“
Magnús og pickup-inn eru þó ekki á leið
í ferðalag um verslunarmannahelgina. „Ég
ætla að vera heima og slaka mikið á,
kannski hendi ég einhverju á grillið og æfi
mig svolítið á píanóið. Ég hef sjaldan getað
notið hvíldar um þessa helgi, þess vegna
nýt ég þess svo vel núna. Það var samt
yndislegt að vera á ferðinni á sínum tíma.“
Magnús hefur verið farsæll bílstjóri og
þakkar það árvekni sinni. „Mér hættir til að
vera örlítið á öndverðurm meiði við afstöðu
Íslendinga í umferðarmálum og alla þessa
gífurlegu forsjárhyggju. Óstýriláti ung-
lingurinn verður vitlausastur ef mamma er
í mjög ströngu skapi. Ég er líka meðmæltur
því að sett verði lög á þá sem ætla að vanda
sig svo ofboðslega að þeir eru beinlínis
hættulegir öðrum. Þessa sem safna í röð
fyrir aftan sig og valda spennu og tauga-
veiklun.“
En hvað er flottasta verslunarmanna-
helgarlag allra tíma?
Þjóðhátíðarlög Vestmanneyinga standa
upp úr, þeir eiga heiðurinn af að skapa
þessa hefð. Lag Oddgeirs Kristjánssonar og
Ása í Bæ, Ég veit þú kemur í kvöld til mín,
hlýtur að eiga vinninginn.“
edda@frettabladid.is
Þversögn í teppa-
lögðum trukk
atvinna@frettabladid.is
Orlofsupp-
bót 2005
fyrir orlofsár-
ið sem hófst
1. maí 2005
er kr. 21.800
miðað við
fullt starf
fyrir flestar
starfsgreinar
nema versl-
unarmenn.
Greiða á
upphæðina
út í upphafi
orlofstöku
en í síðasta
lagi 15. ágúst. Það borgar sig
því að fylgjast með því hvort
uppbótin er komin inn eða
ganga á eftir henni öðrum
kosti. Ranghermt var í nýjasta
tölublaði VR blaðsins að versl-
unarmenn ættu von á 45.000
krónum en rétt mun vera að
orlofsuppbót verslunarmanna
er 16.500 krónur.
Innheimtutilraun
STEF vegna sumarbústaða Or-
lofssjóðs BHM stenst ekki laga-
lega að mati fráfarandi fram-
kvæmda-
stjóra
sjóðsins.
STEF sendi
Orlofs-
sjóðnum
bréf þar
sem gerð
er krafa um
að sjóður-
inn greiði
gjöld til
STEFs þar
sem opin-
ber flutn-
ingur um
útvarp og
sjónvarp fari fram í sumarbú-
stöðum BHM.
Frídagur verslunarmanna
er á mánudaginn og eins og
venjulega heldur VR upp á
daginn með fjölskylduhátíð í
Fjölskyldu- og húsdýragarðin-
um í Laugardal. Þúsundir fé-
lagsmanna og aðrir gestir hafa
skemmt sér í garðinum á þess-
um hátíðisdegi á undanförnum
árum. Aðgangur að garðinum
er ókeypis og tilboð er á dag-
pössun í leiktækin.
Maggi Kjartans segist vera svolítil „kanamella“, sem hann rekur til æskustöðvanna í Keflavík. Hann gleðst yfir því
að amerískir pickup-bílar séu í tísku.
LIGGUR Í LOFTINU
í atvinnu
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA BÍLARHÚS NÁM FERÐIR MATUR ATVINNA BRÚÐKAUP FJÁRMÁL TILBOÐ o.fl.
KRÍLIN
Mamma, við erum búnar
að sitja svo lengi núna,
getum við ekki bara gefið
þeim pening og farið
heim?
Volkswagen Touareg reynsluekið
BLS. 2
][
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 OG Á visir.is
ÞÚ GETUR PANTAÐ
SMÁAUGLÝSINGAR
Á visir.is
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
EI
Ð
A