Fréttablaðið - 30.07.2005, Blaðsíða 8
1Hversu mikið jukust skuldir heimil-anna í fyrra?
2Hvað heitir nýr útvarpsstjóri Ríkis-útvarpsins?
3Hver var besti leikmaður 7.-12. um-ferðar Íslandsmóts karla í fótbolta?
SVÖRIN ERU Á BLS. 30
VEISTU SVARIÐ?
8 30. júlí 2005 LAUGARDAGUR
Umdeild lífskjararannsókn bæjaryfirvalda á Akureyri:
Trúna›i létt af bæjarfulltrúum
LÍFSKJARARANNSÓKN Trúnaði vegna
skýrslu um samanburðarrans-
sókn á lífskjörum Akureyringa
og Reykvíkinga, sem IMG Gallup
framkvæmdi í vor að ósk bæjar-
yfirvalda á Akureyri, var aflétt
síðastliðinn fimmtudag hvað
varðar bæjarfulltrúa á Akureyri.
Bæjarráð Akureyrar sam-
þykkti samhljóma þann 7. júlí
síðastliðinn að trúnaður skyldi
hvíla á skýrslunni en Jakob
Björnsson, formaður bæjarráðs,
segir að ekkert sé að finna í
skýrslunni sem ekki þoli dagsins
ljós og því hafi trúnaði nú verið
aflétt.
„Búið er að kynna stóran hluta
skýrslunnar og ætlunin var alltaf
að opinbera fleiri niðurstöður,“
segir Jakob.
Valgerður H. Bjarnadóttir,
bæjarfulltrúi Vinstri grænna, á
sæti í bæjarráði fyrir hönd
minnihlutans og segist hún hafa
samþykkt trúnaðinn án þess að
hafa fengið skýrsluna í hendur
eða vitað hvað fólst í trúnaðinum.
„Eftir að hafa fengið skýrsl-
una í hendur sé ég enga ástæðu
til að trúnaður ríki um hana. Það
er því bara klúður hjá bæjar-
stjóranum og meirihlutanum að
setja trúnað á skýrsluna,“ segir
Valgerður.
- kk
Listi Forbes yfir 100 valdamestu konur heims:
Condoleezza Rice valdamest
KONUR Condoleezza Rice, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna og ráðgjafi
Bush Bandaríkjaforseta, er talin
valdamesta kona heims, samkvæmt
tímaritinu Forbes. Þetta er annað
árið í röð sem Rice trónar efst á
lista 100 valdamestu kvenna heims-
ins.
Stjórnmálamenn skipuðu sér í
efstu fjögur sætin, því á eftir Rice
kemur Wu Yi, aðstoðarforsætis-
ráðherra Kína og heilbrigðis-
ráðherra, og í þriðja sæti er Yulia
Tymoshenko, forsætisráðherra
Úkraínu. Í fjórða sæti er forseti
Filippseyja, Gloria Arroyo.
Í næstu sex sætunum eru hins
vegar konur í viðskiptalífinu, svo
sem forstjóri uppboðsvefjarins
eBay, Margaret Whitman, sem er í
fimmta sæti á listanum og því
valdamesta kona viðskiptalífsins.
Sjónvarpskonan heimsfræga,
Oprah Winfrey, er níunda valda-
mesta kona heims samkvæmt list-
anum.
Rithöfundurinn J.K. Rowling,
sem skrifar Harry Potter-bækurn-
ar, er í fertugasta sæti listans, en
skipaði 85. sætið í fyrra. Hún er
valdamesta kona Bretlands sam-
kvæmt listanum, en hún er jafn-
framt auðugasta kona landsins.
Elísabet Englandsdrottning er í 75.
sæti listans en Cherie Booth Blair,
lögmaður og eiginkona forsætisráð-
herra Bretlands, er í 62. sæti.
Hillary Clinton er í 26. sæti en
Laura Bush, forsetafrú Bandaríkj-
anna, er í 46. sæti.
Valdamesta kona Norðurland-
anna er samkvæmt listanum Tarja
Halonen, forseti Finnlands, en hún
er í 31. sæti á listanum. - sda
Óánægja me› ló›aúthlutanir
Óánægja er me› úthlutun ló›a í n‡ju hverfi í Kópavogi. Bent hefur veri› á hversu hátt hlutfall fleirra sem
úthluta› fengu ló› eru flekktir e›a efna›ir einstaklingar e›a tengjast bæjarmálum e›a bæjarfulltrúum.
BÆJARSTJÓRNARMÁL Fjöldi óánægðra
umsækjenda um lóðir í Kópavogi
hefur haft samband við Fréttablaðið
í kjölfar þess að bæjarráð Kópa-
vogs tilkynnti nöfn þeirra sem út-
hlutað var lóðum. Einbýlishúsalóð-
um var úthlutað fyrir 7,5 milljónir.
Bent hefur verið á hversu hátt
hlutfall þeirra einstaklinga sem
fengu lóðir sé annað hvort þekktir
og efnaðir einstaklingar, skyld-
menni bæjarráðsmanna eða fyrr-
verandi bæjarfulltrúar.
Dæmi um þá heppnu eru Dalla
Ólafsdóttir forsetadóttir, Baltasar
Kormákur leikstjóri og Lilja Pálma-
dóttir athafnakona, Ragnhildur
Geirsdóttir, forstjóri Flugleiða,
Birgir Leifur Hafþórsson kylfingur,
Valþór Hlöðversson, fyrrverandi
bæjarfulltrúi í Kópavogi, Ólafur
Stefánsson handboltamaður, Eiður
Smári Guðjohnsen knattspyrnu-
maður og faðir hans Arnór
Guðjohnsen.
Þá fengu einnig lóðir Örn Árna-
son leikari, Hreggviður Jónsson, at-
hafnamaður og fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri Stöðvar 2, og Jón
Ágúst Þorsteinsson, framkvæmda-
stjóri Marorku, auk foreldra og
tengdaforeldra tveggja núverandi
bæjarfulltrúa. Þá fékk skipulags-
stjóri Kópavogsbæjar, Birgir H.
Sigurðsson, einnig úthlutað lóð.
„Ég held að þeir sem fengu út-
hlutað séu allir ánægðir,“ segir
Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í
Kópavogi, þegar hann er spurður
um þá gagnrýni sem fram hefur
komið vegna lóðaúthlutunarinnar.
„Það er ljóst að við gátum ekki
orðið við öllum umsóknum vegna
þess hve margar þær voru. Við
völdum eftir þeim reglum sem
settar höfðu verið en höfðum það
að leiðarljósi að veita ungu fólki
forgang,“ segir Gunnar.
Spurður hvort einstaklingar sem
þekktir væru í þjóðfélaginu hefðu
notið forgangs varðandi lóðirnar
svarar Gunnar: „Frægt eða þekkt
fólk verður einhvers staðar að búa.
Það gekk ekki endilega fyrir enda
er búið að hafna sumu af þessu fólki
áður. Við reyndum að vera eins
sanngjörn og hægt er.“
Hann bendir á að á næstu mán-
uðum verði úthlutað hundruðum
lóða í Kópavogi og vonast hann til
að geta uppfyllt eftirspurnina eftir
lóðum í Kópavogi að einhverju leyti
með þeim.
sda@frettabladid.is
Greiðslukort:
Velta eykst
miki›
FJÁRMÁL Greiðslukortavelta Ís-
lendinga jókst umtalsvert fyrstu
sex mánuði ársins miðað við
sama tíma í fyrra. Kredikorta-
velta jókst um tæp fjórtán pró-
sent á tímabilinu og debetkorta-
velta um tæp 26 prósent, sam-
kvæmt Hagvísi Hagstofu Ís-
lands.
Kredikortavelta Íslendinga
erlendis jókst um rúm tuttugu
prósent á tímabilinu á meðan er-
lend greiðslukortavelta hér á
landi jókst aðeins um 0,3 pró-
sentustig. Nýskráningum bíla
fjölgaði gríðarlega fyrri sex
mánuði ársins, eða um 63,2 pró-
sent. - ht
Fjögur innbrot:
Innbrotahrina
í Keflavík
INNBROT Lögreglan rannsakar nú
innbrot í fjögur hús í Reykjanesbæ.
Brotist var inn í íbúðarhús með því
að spenna upp glugga en húseigend-
ur höfðu verið fjarverandi í tvær
vikur og er því ekki ljóst hvenær
innbrotið átti sér stað. Þjófurinn lét
greipar sópa og hvarf á braut með
skartgripi, farsíma, fatnað, tölvu-
leiki, áfengi og 400 geisladiska.
Þá var brotist inn í Myllubakka-
skóla og skjávarpa stolið. Einnig
var brotist inn í Holtaskóla og í tré-
smíðaverkstæði í Reykjanesbæ.
Þar tóku innbrotsmennirnir ekkert
með sér en unnu mikil spjöll. -jse
ESB og Marokkó:
Sami› um
fiskvei›ar
BRUSSEL, AP Fulltrúar Evrópusam-
bandsins og Marokkó undirrituðu á
fimmtudag samning um aðgang
fiskiskipa ESB-landa að fiskveiði-
lögsögu Marokkó í Atlantshafi.
Samkomulagið, sem gildir til næstu
fjögurra ára, er einkar mikilvægt
fyrir sjávarútveg á Spáni og í Portú-
gal. Joe Borg, sem fer með sjávar-
útvegsmál í framkvæmdastjórn
ESB, sagði að ESB myndi borga
Marokkó 36 milljónir evra, andvirði
hátt í 2,9 milljarða króna, á ári fyrir
60.000 tonna kvóta í marokkóskri
lögsögu.
FULLTRÚI VINSTRI GRÆNNA Valgerður H.
Bjarnadóttir gagnrýnir trúnað sem settur
var á skýrslu um lífskjararannsókn á Akur-
eyri. Sem fulltrúi í bæjarráði átti hún þátt í
að setja trúnaðinn á en segist á þeim tíma
ekki hafa vitað hvað í honum fólst.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/K
K
Sæti Nafn Land Starfsheiti a
1 Condoleezza Rice Bandaríkin Utanríkisráðherra
2 Wu Yi Kína Aðstoðarfors.ráðh.
og heilbr.ráðh.
3 Yulia Tymoshenko Úkraína Forsætisráðherra
4 Gloria Arroyo Filippseyjar Forseti
5 Margaret Whitman Bandaríkin Forstjóri eBay
6 Anne Mulcahy Bandaríkin Forstjóri Xerox
7 Sallie Krawcheck Bandaríkin Fjármálastjóri Citigroup
8 Brenda Barnes Bandaríkin Forstjóri Sara Lee
9 Oprah Winfrey Bandaríkin Stjórnarformaður Harpo
10 Melinda Gates Bandaríkin Meðstofnandi The Bill &
Melinda Gates Foundation
CONDOLEEZZA RICE Valdamesta kona
heims samkvæmt tímaritinu Forbes.
FRÁ NÝJU ÞINGAHVERFI Í KÓPAVOGI Óánægja er
með úthlutun lóða í Kópavogi og hafa gagnrýnendur
sett sig í samband við Fréttablaðið. Bent hefur verið
á hversu hátt hlutfall þekktra og efnaðra einstaklinga
hafi fengið úthlutað lóð.