Fréttablaðið - 30.07.2005, Blaðsíða 12
Hæðst og hneykslast
Á vef Íslensku auglýsingastofunnar mátti
í gær lesa eftirfarandi: „Icelandair og
Iceland Express birta bæði heilsíðuaug-
lýsingar um haust- og vetrarferðir sínar í
síðasta sunnudagsblaði Moggans þann
24. júlí. Uppistaðan í auglýsingu Iceland-
air er þokkafull kyrralífsmynd úr setu-
stofu og borgarlandslag New York á
glugganum. „Hugurinn ber þig aðeins
hálfa leið“ er fyrirsögnin og neðst er til-
kynning um að haust- og vetrarbækling-
ur fyrirtækisins sé kominn út en í honum
eru kynntir fjölbreyttir ferðamöguleikar
næstu missera. Á síðu nokkru aftar í
blaðinu birtist síðan heilsíðuauglýsing frá
Iceland Express með fyrirsögninni „Met-
sölubók?“ Öll framsetning þeirrar auglýs-
ingar gerir út á að hæðast að og
hneykslast á því framtaki keppinautarins,
Icelandair, að gefa út ferðabækling.“
Grímulaus árás
Síðan segir: „Má skilja á Iceland Express-
mönnum að slíkt sé eyðslusemi og: „...
við viljum frekar setja upplýsingar okkar
á Netið til að halda verðum í lágmarki.“
Það vekur alltaf athygli þegar menn aug-
lýsa með þeim hætti að ráðast grímu-
laust á keppinauta sína. En hafa við-
skiptavinir, þeir sem eru að huga að
ferðalögum, áhuga á slíkum hanaslag?“
Dularfullt
Mörgum þótti einkennilegt að sjá að
aðalforsíðufyrirsagnir Fréttablaðsins og
Morgunblaðsins í gær voru nákvæm-
lega hinar sömu: „Síminn seldur á 66,7
milljarða króna“. Það er ekki óvanalegt
að frétt um sama efni sé á forsíðum
beggja blaðanna, en að fyrirsagnir séu
eins frá
orði til
orðs hef-
ur varla
gerst
áður. Það
mætti
ætla að
sami
frétta-
stjórinn
hafi verið á vakt á báðum blöðunum
eða að þau hafi í hagræðingarskyni
tekið upp eitthvert samráð í fréttaflutn-
ingi. Þ á hefur Landssími Íslands loks verið seldur, en söluferl-ið allt hefur tekið langan tíma, frá því fyrst var farið aðræða um að selja fyrirtækið. Verðið sem fékkst fyrir
Símann - 66,7 milljarðar króna - er mjög ásættanlegt, og mun
hærra en þegar fyrstu hugmyndir um söluna voru viðraðar.
Landssími Íslands er eitt síðasta ríkissímafyrirtækið í Vestur-
Evrópu sem er selt. Það hlýtur að vekja athygli að í loka-
áfanganum í söluferlinu koma aðeins fram þrjú tilboð og það
sem meira er, þau eru öll frá innlendum fyrirtækjum og fjár-
festum. Mörg erlend fyrirtæki sýndu áhuga á því að gera til-
boð í Símann í upphafi og sendu inn tilboð sem ekki voru bind-
andi. Með því fengu þau tækifæri til að kynna sér stöðu og
innviði fyrirtækisins. Þessi erlendu fyrirtæki voru hins vegar
ekki með á lokasprettinum, hvað svo sem veldur. Síminn er
ekki stórt fyrirtæki á erlendan mælikvarða og hér eru ekki
stórkostlegir vaxtarmöguleikar á fjarskiptamarkaði, sérstak-
lega þegar haft er í huga að auk Símans er hér öflugt fjar-
skiptafyrirtæki sem stöðugt sækir í sig veðrið. Allt þetta
kann að hafa valdið því að áhugi hinna erlendu fjárfesta
minnkaði eftir því sem nær dró lokakafla söluferlisins. Víða í
austanverðri Evrópu er þessu hins vegar öðru vísi farið, þar
sem símakerfið stendur á brauðfótum og miklir vaxtarmögu-
leikar eru fyrir hendi.
Ríkissjóður fær drjúgan skilding til ráðstöfunar með sölu
Símans, og það er mikilvægt að farið verði vel með þá fjár-
muni, samfélaginu til góðs. Ef söluverð Símans er borið
saman við sex mánaða hagnað þeirra fjármálafyrirtækja sem
eru á markaði nær söluverðið ekki einu sinni þeirri upphæð,
því fjármálafyrirtækin högnuðust um upp undir 80 milljarða
króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Söluverð Símans - þótt
gott sé - er því ekki nema hluti af áætluðum hagnaði stærstu
fjármálafyrirtækjanna hér á landi í ár.
Stjórnarliðar hafa sem von er fagnað mjög sölu Símans og
því verði sem fékkst fyrir fyrirtækið. Þannig sagði Halldór
Ásgrímsson forsætisráðherra í viðtali við Fréttablaðið í gær
að verðið sem fékkst fyrir Símann hefði verið hærra en hann
hefði gert sér vonir um og salan myndi styrkja stöðu ríkis-
sjóðs þegar til lengri tíma væri litið. Síðan sagði hann: „Við
munum ekki flýta okkur að eyða þessum peningum. Gerð
verður áætlun um það fram í tímann hvernig að því verður
staðið. Það liggur alveg ljóst fyrir að eftir þessa sölu getum
við gert hluti sem við annars hefðum ekki getað gert á sviði
samgöngumála, heilbrigðismála, á sviði atvinnuþróunar og
annarra mikilvægra samfélagsmála,“ sagði forsætisráðherra.
Forystumenn hinna nýju eigenda Símans hafa á undanförn-
um árum verið að hasla sér völl erlendis í atvinnurekstri og
getið sér gott orð. Þeir hafa nú tekið höndum saman við inn-
lend fjárfestinga- og fjármálafyrirtæki auk nokkurra líf-
eyrissjóða og þetta er árangurinn. Ekki er ástæða til að ætla
annað á þessari stundu en að hinir nýju eigendur haldi áfram
rekstri Símans á svipuðum nótum og verið hefur að undan-
förnu. Það verður að treysta því að hagnaðarsjónarmiðin
komi ekki niður á notendum Símans í hinum dreifðu byggðum
landsins, en vegna hins háa verðs virðist ljóst að reka verður
fyrirtækið af mikilli hagsýni, svo fjárfestingin borgi sig. ■
30. júlí 2005 LAUGARDAGUR
SJÓNARMIÐ
KÁRI JÓNASSON
Söluverð Símans var töluvert hærra en
margir bjuggust við.
Sala Símans
FRÁ DEGI TIL DAGS
Lágtekjuskattar á Íslandi
gm@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 – prentmiðlar RITSTJÓRI: Kári Jónasson FRÉTTARITSTJÓRI: Sigurjón M. Egilsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jón Kaldal FRÉTTASTJÓRI: Arndís Þorgeirsdóttir VARAFRÉTTASTJÓRI:
Trausti Hafliðason FULLTRÚI RITSTJÓRA: Guðmundur Magnússon RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Steinunn Stefánsdóttir AUGLÝSINGASTJÓRI: Þórmundur Bergsson RITSTJÓRN OG AUGLÝSINGAR:
Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐALSÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is UMBROT: 365 –
prentmiðlar PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri.
Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871
LESTU GREININA Á VISIR.IS
OG SEGÐU SKOÐUN ÞÍNA
Margslungnu skatta- og bóta-
kerfi er yfirleitt ætlað að hjálpa
þeim tekjulágu og tekjulausu að
taka fullan þátt í lífsgæðakapp-
hlaupinu til jafns við þá sem
hafa meðaltekjur og háar tekjur.
Sjaldnast er raunin samt sú að
þessi ætlun gangi eftir. Á Ís-
landi eru margir skattar sem
koma harðast niður á þeim sem
lægstar hafa tekjurnar – sann-
kallaðir lágtekjuskattar. Flestir
þeirra njóta fulls stuðnings
sjálfskipaðra talsmanna þeirra
sem minnst hafa á milli hand-
anna í samfélaginu.
Hinn blessunarlega deyjandi
eignaskattur er lágtekjuskattur.
Þeir sem lægstar hafa tekjurn-
ar eiga hvað erfiðast með að
koma yfir sig sómasamlegu
þaki og greiðslubyrði lána,
vextir, gjöld og annað slíkt veg-
ur þyngst í pyngju þeirra sem
minnst hafa fjárráðin. Eigna-
skattur virkar sem hrein refs-
ing fyrir að eignast eitthvað og
því finnur lágtekjufólk fyrst
fyrir. Sem betur fer er nú þessi
skattur að hverfa úr íslensku
skattkerfi.
Hátekjuskatturinn er í raun
grimmur skattur á þá sem að
jafnaði hafa lágar tekjur. Fólk
sem að staðaldri hefur háar
tekjur getur gert ráð fyrir há-
tekjuskattinum ár eftir ár og
einfaldlega lagt hann saman við
hinn almenna tekjuskatt sem
fastan útgjaldalið. Lágtekjufólk
sem tekur að sér mikla vinnu í
afmarkaðan tíma, t.d. í því
augnamiði að koma þaki yfir
höfuðið á sér, fær fullan slag-
kraft hátekjuskattsins í andlitið
þegar hann skýtur stundum
óvænt en alltaf óvægið upp koll-
inum. Vonandi stendur ríkis-
stjórnin við fyrirheit sín um að
afnema þennan öfugsnúna skatt
hið fyrsta.
Virðisaukaskattur er lág-
tekjuskattur enda hækkar hann
vöruverð á öllu sem undir hann
fellur. Þetta kemur augljóslega
verst niður á þeim sem lægstar
hafa tekjurnar. Ekki dugir að
lækka virðisaukaskatt á sumar
vörur en ekki aðrar því fyrir
utan að í því sé fólgin óverjan-
leg neyslustýring þýðir það ein-
faldlega að þær vörur sem ekki
fá undanþágur halda áfram að
vera utan seilingar fyrir þá sem
lægstar hafa tekjurnar. Stjórn-
málamaður getur kallað eitt-
hvað lúxusvarning sem einhver
annar kallar brýna nauðsynja-
vöru.
Himinhá opinber gjöld á
áfengi og tóbak eru hreinir lág-
tekjuskattar. Nú vita allir sem
vilja að sá hópur sem reykir
mest á Íslandi er sá hópur sem
minnsta hefur menntunina og
lægstar hefur tekjurnar. Þeim
ríku er alveg sama þótt sígar-
ettupakkinn hækki um 50 krón-
ur því annaðhvort reykja þeir
ekki eða hafa efni á hækkun-
inni. Láglaunaður einstaklingur
sem reykir fær fullan slagkraft
hverrar krónu hækkunar í and-
litið og þegar pyngjan grynnist
enn frekar er lítil von til að
afslappandi hættu-að-reykja-
námskeið sé næst á dagskránni.
Skattar á eldsneyti eru lág-
tekjuskattar. Þeim er að nafn-
inu til ætlað að greiða fyrir
kostnað vegna vegafram-
kvæmda og viðhalds gatnakerf-
isins. Hins vegar er ljóst að þeir
sem lægstar hafa tekjurnar
hafa lítil not fyrir göng á Aust-
fjörðum eða tvöfalda Reykja-
nesbraut. Þeir tekjulægstu
kæmu best út úr kerfi sem væri
fjármagnað með notkun og þar
sem tekjur af vegakerfinu væru
nýttar í uppbyggingu og til við-
halds þess en ekki í stórfram-
kvæmdir hinum megin á land-
inu. Allir sem vilja vita að tekj-
ur ríkisins vegna bensínsölu eru
notaðar til að niðurgreiða ótal-
margt annað í hinum opinbera
rekstri en bara götur og gatna-
ljós og slíkt kemur auðvitað
verst niður á fjárhag þeirra
sem þurfa að reka bíl en geta
það vart.
Þegar allt kemur til alls er
alveg ljóst að skattkerfi sem er
ætlað til að flytja peninga frá
einum til annars er gallað og
bitnar á þeim sem síst skyldi,
eykur mismunun og stuðlar að
óréttlæti. Nær væri að einfalda
skattkerfið, draga úr þyngd þess
og gefa fleirum kost á að lifa af
eigin launum í stað þess að þurfa
sífellt að treysta á að geta náð
einhverjum krónum út úr ríkis-
kassanum. Engum finnst gott að
vera upp á eilífa miskunn kerfis-
ins kominn og kerfi sem gerir
alla þurfandi er engum til gagns.
Nær væri að hjálpa þeim sem
þurfa hjálp í stað þess að hjálpa
öllum að þurfa hjálp og fá hana
síðan eða kannski ekki. Afnám
lágtekjuskattanna væri stórt
skref í þá átt.
GEIR ÁGÚSTSSON
VERKFRÆÐINGUR
Í DAG
SKATTAR
fiegar allt kemur til alls er
alveg ljóst a› skattkerfi sem er
ætla› til a› flytja peninga frá
einum til annars er galla› og
bitnar á fleim sem síst skyldi,
eykur mismunun og stu›lar a›
óréttlæti.