Tíminn - 24.08.1975, Blaðsíða 39
Sunnudagur m. ágúst 1975
TÍMINN
39
UTANLANDSFERÐ
Steinþór Artarinó Gunnarsson með 88
verk ó afmælissýningu á Kjarvalsstöðum
JG-HVK — A laugardag opnaði
Steinþór Marinó Gunnarsson
málverkasýningu en sýninguna
heldur listamaöurinn i tilefni af 50
ára afmæli sinu.
Steinþór Marinó er fæddur á
Isafiröi 18.7. 1925, en flutti til
Akraness áriö 1935, þá frá
Súgandafirði, en þar bjuggu for-
eldrar hans.
Árið 1945 hóf hann nám i
málaraiðn og er starfandi
málarameistari. Hann hefur
ávallt verið áhugasamur um
myndlist, og hefur farið margar
kynnisferðir til annarra landa til
þess að skoða söfn og sækja sér
þekkingu. Hann hefur haldiö
fjölda málverkasýninga, og tvis-
var hefur hann sýnt myndir sinar
erlendis — I Noregi.
Þetta mun vera sjöunda einka-
sýning Steinþórs Marinós, , en
að auki hefur hann tekið þátt I
samsýningum FIM.
Hann sýnir nú alls 88 verk, þar
af 50 oliumálverk, 30 vatnslita-
myndir og 8 relif-myndir.
Þess má að lokum geta að
Steinþór Mariná er bróðir þeirra
listmálaranna, Veturliða
Gunnarssonar og Benedikts
Gunnarssonar.
A blaöamannafundi á Kjarvals-
stöðum kvað hann hafa ákveðiö
aö halda stóra sýningu að þessu
sinni, verkin væru frá ýmsum
timum, sum hefðu áður verið á
sýningum, en önnur hefðu ekki
áöur verið sýnd almenningi.
JG
Útgerðarmenn mótmæla
r
Arnessýsla
Ferð til Vínarborgar
september
Þeir sem áhuga
hafa á þessari ferð
hafi samband við
flokksskrifstofuna.
Nánari upplýsing-
ar um ferðina á
flokksskrif stof unni.
Simi 2-44-80.
Síðustu forvöð
vaxtahækkun
EFTIRFARANDI var samþykkt
á fundi stjórnar L.l.Ú. þann 20.
ágúst:
„Stjórn L.I.Ú. mótmælir harð-
lega þeirri ákvörðun rikisstjórn-
arinnar, að tvöfalda vexti Fisk-
veiðasjóðs á einu ári, jafnframt
þvi, sem lánstimi er styttur, lán-
tökugjöld margfölduð og gengis-
og verðtryggingar stóraukn-
ar. Stjórn L.I.Ú. lýsir furðu
sinni á þvi, að rikisstjórnin, með
ákvörðun sinni lætur eins og hún
viti ekki, aö stór hluti fiskiskipa-
flotans liggur nú bundinn við
bryggju vegna rekstrarerfiðleika
og annar hluti hans berst i bökk-
um. Þessir aðilar eru þvi sizt af
öllu færir um það nú, að taka á sig
stóraukin útgjöld, nema það sé
vilji rikisstjórnarinnar, að fiski-
skipaflotinn stöðvist allur.
Stjórn L.l.Ú. varar rikisstjórn-
ina viö að stofna nú til átaka við
útvegsmenn, þegar mest á riður á
að halda fiskiskiptaflotanum i
gangi til öflunar gjaldeyristekna
og til aö tryggja fulla atvinnu, og
væntir þess, að ákvörðun þessi
verði endurskoðuð.”
Til skýringar skal það tekið
fram, að vaxtagreiðslur munu
nema vegna nýs skips . eftir hina
nýju ákvörðun rikisstjórnarinn-
ar, kr. 12.00 til 15.00 á hvert kíló
fisks, sem aflað er.
Verð á karfa er nú kr. 19.00,
ufsa af millistærð kr. 20.60 og á
þorski af millistærð kr. 35.80. Af
þvi veröi fær skipshöfnin um 45%.
Hlutur útgeröarinnar til að
standa undir vaxtagreiðslum, af-
borgunum og öllum rekstrar-
kostnaði er af verömæti hvers
kilós af karla kr. 10.50, ufsa kr.
11.30 og þorski kr. 19.70.
Útboð
Mosfellshreppur óskar eftir tilboðum i
lögn hita- og vatnsveitustofnæða i Álfa-
tanga, Brekkutanga og Bjargartanga.
Útboðsgagna má vitja á skrifstofu Mos:
fellshrepps, Hlégarði, gegn 500 kr. skila-
tryggingu, frá og með mánudeginum 25.
ágúst 1975.
Tilboðum sé skilað á sama stað fyrir kl. 16
miðvikudaginn 3. september 1975 og verða
tilboð þá opnuð að viðstöddum bjóðend-
um.
Sumarhátið Framsóknarmanna i Arnessýslu veröur haldin aö
Arnesi 30. ágúst og hefst kl. 21.
Ræður flytja Halldór E. Sigurðsson ráðherra og Gerður Stein-
þórsdóttir kennari. Magnús Jónsson óperusöngvari syngur,
Baldur Brjánsson töframaöur skemmtir og Stuðlatrió leikur fyr-
ir dansi.
Allir velkomnir.
Héraðsmót í
Neskaupstað
Héraðsmót Framsóknarmanna á Austurlandi veröur haldið i
Egilsbúð Neskaupstað laugardaginn 30. ágústog hefst kl. 21.
Ræður flytja Vilhjálmur Hjálmarsson menntamálaráöherra og
Halldór Asgrimsson alþingismaður. Omar Ragnarsson, hljóm-
sveit Ragnars Bjarnasonar og Halli og Laddi flytja nýja
skemmtidagskrá. Hljóinsveit Ragnars Bjarnasonar leikur fyrir
dansi.
Sólun
SÓLUM HJÓLBARÐA A FÓLKSBtLA,
JEPPA- OG VÖRUBILA MEÐ
DJOPUM SLITMIKLUM MUNSTRUM.
Ábyrgð tekin <3 sólningunni.
Kaupum notaða sólningarhæfa nylon-hjólbarða.
önnumst allar „viðgerðir hjólbarða með
fullkomnum tækjum.
GÓÐ ÞJÓNUSTA. — VANIR MENN.
Héraðsmót í
Skagafirði
Héraðsmót framsóknarmanna i Skagafirði verður haldið aö”
Miðgarði 30. ágúst og hefst það kl. 21. Einar Agústsson utanrikis-
ráðherra og Jón Sigurðsson varaformaður SUF flytja ræður
Óperusöngvararnir Svala Nielsen og Guðmundur Jónsson
syngja við undirleik Carls Billich. Gautar leika fyrir dansi
Kjördæmisþing á Austurlandi
Kjördæmisþing Framsóknarmanna á Austurlandi verður haldið
i Egilsbúð Neskaupstað laugardaginn 30. og sunnudaginn 31.
ágúst. Þingið hefst kl. 14.