Fréttablaðið - 09.11.2005, Page 2
2 9. nóvember 2005 MIÐVIKUDAGUR
SPURNING DAGSINS
Sigurjón, ertu vinsæll í
afmælisveislum?
„Já, alla vega sumum.“
Sigurjón Þórðarson alþingismaður gagnrýndi
afmælisráðstefnu Hafrannsóknastofn-
unarinnar og sagði hana gagnrýnislausa
samkomu jábræðra.
DÓMSMÁL Lögbannskrafa Jónínu
Benediktsdóttur athafnakonu á
fréttaflutning Fréttablaðsins af
tölvupóstsendingum sem hún átti
hlut að verður tekin fyrir í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur á morgun.
„Ég reikna með því að þarna verði
ákveðið hvenær málið fær aðal-
meðferð,“ segir Jón Magnússon
hæstaréttarlögmaður.
Sýslumaðurinn í Reykjavík
varð við lögbannskröfu Jónínu í
haust. Jónína krefst skaðabóta og
refsingar yfir Kára Jónassyni rit-
stjóra blaðsins. - saj
Lögbann á fréttaflutning:
Lögbann tekið
fyrir á morgun
GÖGNIN GERÐ UPPTÆK Sýslumaður og
lögfræðingar gerðu gögn upptæk á ritsjórn
Fréttablaðsins. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
NOREGUR Kona var í gær dæmd í
níu mánaða fangelsi fyrir nauðg-
un í Björgvin. Nauðgunin átti sér
stað í byrjun þessa árs en konan
sem er 24 ára var þá í samkvæmi
ásamt unnusta sínum og öðrum
manni á fertugsaldri.
Maðurinn bar að hann hefði
sofnað en vaknað aftur við að
konan var að hafa við hann munn-
mök meðan unnustinn tók mynd-
ir. Konan hélt því fram að mökin
hefðu verið með fullu samþykki.
Auk fangelsisvistar var konan
dæmd til að greiða fórnarlambinu
um 400 þúsund íslenskar krónur í
miskabætur. Er þetta í fyrsta sinn
sem kona er dæmd fyrir nauðgun
í Noregi. ■
Sögulegur norskur dómur:
Kona dæmd
fyrir nauðgun
ÁSTRALÍA, AP Lögreglan í Ástralíu
handtók snemma í gærmorgun
sautján manns sem grunaðir eru
um samsæri um að fremja mann-
skæða hryðjuverkaárás í land-
inu.
Meðal hinna handteknu er her-
skár múslimaklerkur, Abu Bakr
að nafni, sem er þekktur fyrir að
hafa borið lof á Osama bin Laden.
Klerkurinn er sakaður um að
vera aðalskipuleggjandi hins
áformaða tilræðis. Annar hinna
handteknu hlaut skotsár á hálsi
er hann varðist handtöku með
skotvopni. Einn lögreglumaður
særðist lítillega.
„Ég er ánægður með að okkur
skyldi takast að spilla því sem
ég tel hafa verið lokastig undir-
búnings að stórri hryðjuverka-
árás hér í Ástralíu,“ sagði Ken
Moroney, lögreglustjóri Nýja
Suður-Wales, í útvarpsviðtali.
Hann sagðist búast við að fleiri
sakborningar yrðu handteknir í
tengslum við rannsóknina.
John Howard forsætisráðherra
þakkaði lögregluyfirvöldum fyrir
vel unnið verk á blaðamannafundi
sem sendur var út beint í sjón-
varpi. Howard varaði í síðustu
viku við því að hryðjuverkaárás
væri hugsanlega yfirvofandi.
Handtökurnar fóru fram í
samstilltum áhlaupum lögreglu
á nokkur hús í Sydney og Mel-
bourne, tveimur stærstu borgum
landsins.
- aa
Meintir hryðjuverkamenn handteknir í Ástralíu:
Komið í veg fyrir stórt hryðjuverk
RÉÐUST Á MYNDATÖKUMANN Menn sem
taldir eru vinir eða ættingjar hinna hand-
teknu ganga í skrokk á myndatökumanni
fyrir utan dómhús í Melbourne í gær.
Mönnunum var vísað út úr dómsalnum þar
sem hinir meintu hryðjuverkamenn voru
úrskurðaðir í gæsluvarðhald.
NORDICPHOTOS/AFP
HAPPDRÆTTI Samanlagðar tekjur
Happdrættis Háskóla Íslands árin
2003 og 2004 að frádregnum vinn-
ingum og kostnaði námu um 960
milljónum króna.
Tekjur Íslandsspils af söfnun-
arkössum námu á sama tímabili
tæpum 1.730 milljónum króna að
frádregnum vinningum og kostn-
aði. Heildarvelta þessara tveggja
fyrirtækja árið 2004 var nálægt
3,2 milljörðum króna.
Þetta kemur fram í svari
dómsmálaráðherra við fyrir-
spurn Ögmundar Jónassonar
þingmanns Vinstri grænna. Hann
segist spyrja um þessar upphæðir
vegna þess að baki þeim búi mikl-
ar þjáningar. „Það er ömurlegt
hlutskipti fyrir þjóðþrifastofn-
anir, sem standa að baki Íslands-
spilum og Háskóla Íslands, að
hafa fé af fólki sem ræður ekki
við spilafíkn sína. Það er sannað
að það er verið að hafa þessa pen-
inga úr vösum fólks á öllum aldri
sem ræður ekki við sig í námunda
við spilavítisvélar. Ég hef viljað
banna þessa kassa með lögum. En
um leið eigum við að fá Háskóla
Íslands og þjóðþrifasamtökum
sem standa að Íslandsspilum aðra
tekjustofna,“ segir Ögmundur. - jh
Velta Íslandsspila og Happdrættis Háskólans nærri 3,2 milljarðar árið 2004:
Vont að nýta sér spilafíkn
SPILAKASSAR Landsbjörg og önnur þjóðþrifastarfsemi hafði liðlega 1,7 milljarða króna í
tekjur af spilakössum árin 2003 og 2004.
FUGLAFLENSA Yfirvöld í Víetnam
hafa staðfest að banamein manns
sem lést í lok október hafi verið
fuglaflensa. Hann er sá fyrsti sem
deyr af völdum veikinnar eftir að
hún greindist aftur í fuglum þar í
landi í haust.
Maðurinn, sem var 35 ára, dó eftir
að hafa borðað kjúkling með fjöl-
skyldu sinni en aðrir hafa ekki
kennt sér meins eftir átið.
Frá því að fuglaflensu varð fyrst
vart í Víetnam árið 2003 hafa 92
greinst með veiruna og 42 látist af
hennar völdum. Sérfræðingar ótt-
ast að veiran geti stökkbreyst og
borist á milli manna. ■
Á ALIFUGLAMARKAÐNUM Fuglakjöt er selt
á opnum mörkuðum víða í Asíu. FRÉTTA-
BLAÐIÐ/AP
Sóttdauðum fjölgar:
Víetnami deyr
úr fuglaflensu
������ ��������� ���� ������
��������� �� ���������� ������ ��
������������������������������
������������������������������
���� ������ ������ ������ �����
�����������������������������
�������� ���� ��������� �������
��� ������� ��� ������� ������ ����
���� ����� �������� �������� ���
���������������������� �����
������������������������������
��� ��� ������ ����������� ������
������� �������������� ��� ����
����������������������������������
�������� ��� ���������� ���� ����
���������������������������������
������������������������������
�� ����� ��������� �����������
����� ������ �������������� �����
������������������ ����� ����
��������
���������
ALDRAÐIR Jón Kristjánsson heil-
brigðisráðherra hefur óskað eftir
því að kannað verði hvort unnt sé
að verða við kröfum um að vist-
menn á Sólvangi í Hafnarfirði
verði ekki fleiri en 55 til 60 að tölu
og þeim fækki þar með umtalsvert
á næstu vikum og mánuðum.
Þetta kom fram í utandag-
skrárumræðum um aðstæður og
aðbúnað aldraðra á Alþingi í gær
en málshefjandi var Ágúst Ólafur
Ágústsson, þingmaður Samfylk-
ingarinnar.
„Aldraðir á Sólvangi hafa allt
að helmingi minna rými en hið
opinbera gerir kröfur um,“ sagði
Ágúst. Hann bætti við að ríkis-
stjórnin hefði gefið til kynna að
úrbóta væri ekki að vænta fyrr
en árið 2008 en það væri allt of
seint.
„Komið hefur fram að á hjúkr-
unarheimilinu Skjóli hefur fólk
neyðst til þess að ráða sér sér-
staka starfskrafta inn á hjúkr-
unarheimilið fyrir eigin kostnað.
En hæstvirtur forsætisráðherra
sagði í gær að hann kannaðist ekk-
ert við þessar upplýsingar þrátt
fyrir að þær tröllriðu samfélag-
inu í heila viku... Dæmi eru um að
viðkomandi hafi ásamt fjölskyldu
unnið allt að 270 klukkustundir
á mánuði... Hér erum við komin
með staðfestingu á tvöföldu kerfi
í velferðarkerfinu.“
Ágúst spurði hvort heilbrigð-
isráðherra sætti sig við tvöfalt
kerfi, eitt fyrir betur megandi
og annað fyrir hina. „Svarið er
einfalt nei,“ sagði Jón Kristjáns-
son. Hann sagði enn fremur að
með fækkun á Sólvangi væri von
hans að ástandið yrði boðlegt.
Hann kvaðst sjá fyrir sér að með
fækkun yrði unnt að breyta öllum
rýmum í tvíbýli, en allt að fimm
manns eru um hvert herbergi nú.
Jón sagði einnig að ástandið á
Sólvangi yrði að skoða í samhengi
við aðra kosti í aðbúnaði aldraðra
í Hafnarfirði. Hann kvaðst vita til
þess að Hrafnista í Hafnarfirði
hefði boðið samstarf við bæjar-
yfirvöld.
Fram kom einnig í máli heil-
brigðisráðherra að daggjöld hafa
hækkað um 25 prósent frá 2002 til
2005.
johannh@frettabladid.is
Mismunað í velferð
Dæmi eru þess að fjölskyldur aldraðra á hjúkrunarheimilinu Skjóli hafi ráðið
sérstaka starfsmenn vegna ónógrar þjónustu. Heilbrigðisráðherra kveðst and-
vígur einu velferðarkerfi fyrir vel stæða og öðru fyrir hina sem minna hafa.
SÓLVANGUR Heilbrigðisráðherra vill úrbætur á Sólvangi á næstu vikum og mánuðum.
ÁGÚST ÓLAFUR ÁGÚSTSSON JÓN KRISTJÁNSSON