Fréttablaðið - 09.11.2005, Blaðsíða 4
4 9. nóvember 2005 MIÐVIKUDAGUR
• Vefsíðugerð grunnur
Námskeið ætlað byrjendum í vefsmíði og þeim sem vilja koma sér upp
einfaldri og þægilegri heimasíðu með sérstakri áherslu á myndgerð og
myndanotkun á heimasíðunni.
Kennt er á algengustu forritin sem notuð eru til vefsíðugerðar og
myndvinnslu fyrir vefinn, FrontPage og Photoshop.
Að námskeiði loknu eiga þátttakendur að vera færir um að búa til
frambærilega heimasíðu fyrir sjálfan sig eða lítil fyrirtæki til kynningar
á Netinu, vista hana á Netinu og kunna skil á umsjón og uppfærslu
hennar.
Þátttakendum er frjálst að vinna að eigin heimasíðu á námskeiðinu.
Lengd námskeiðs 42 kennslustundir.
Kennt er þriðjudags- og fimmtudagskvöld frá kl. 17:30 - 21 og tvo
laugardaga frá kl. 9 - 12.30.
Hefst 15. nóv. og lýkur 1. des. Verð kr. 36.000,-
(Tvær kennslubækur innifaldar).
V E F S M Í Ð I
Faxafen 10 • 108 Reykjavík • Sími: 544 2210 • www.tsk.is • skoli@tsk.is
UMFERÐARSLYS Ökumaður sem
missti stjórn á bifreið sinni í hálku
klukkan átta í gærmorgun endaði
á því að keyra á háspennistöð við
Stórhöfða í Reykjavík.
Ökumann sakaði ekki en spenn-
irinn færðist til. Því varð að rjúfa
rafmagn á Stórhöfða í um það bil
20 mínútur meðan lagfæringar
fóru fram.
Að sögn Gunnars Aðalsteins-
sonar, framkvæmdastjóra kerfis-
stjórnar, fór bifreiðin fyrst á stein
áður en hún skalla á hlera stöðv-
arinnar sem eyðilagðist. Hefði
steinninn ekki verið í veginum
hefðu skemmdir líklegast orðið
meiri. - jse
Háspennistöð við Stórhöfða:
Rafmagn af
eftir árekstur
HÁSPENNUSTÖÐIN Á STÓRHÖFÐA Hlerinn
á háspennustöðinni er ónýtur en ökumann
sakaði ekki. Nágrannar voru hins vegar
án rafmagns í 20 mínútur á eftir vegna
lagfæringa.
GENGIÐ
GENGI GJALDMIÐLA 08.11.2005
Gengisvísitala krónunnar
60,79 61,09
105,49 106,01
71,33 71,73
9,556 9,612
9,156 9,21
7,455 7,499
0,5159 0,5189
86,65 87,17
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
USD
GBP
EUR
DKK
NOK
SEK
JPY
XDR
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
KAUP SALA
100,9038
LÍBERÍU, AP Síðari umferð forseta-
kosninganna í Líberíu fór fram
í gær þar sem áttust við Har-
vard-menntaður hagfræðingur og
heimsþekktur knattspyrnukappi.
Ellen Johnson-Sirleaf og
George Weah voru hlutskörpust í
fyrri umferðinni sem fram fór 11.
október síðastliðinn. Weah fékk
þá 29 prósent atkvæða en John-
son-Sirleaf nítján.
Strax þegar kjörstaðir voru
opnaðir hafði fólks hópast og
allan daginn var kjörsókn góð.
Fjöldi erlendra eftirlitsmanna
fylgist með að allt fari eftir sett-
um reglum.
Úrslita er að vænta á næstu
dögum en ærið verk bíður nýja
forsetans þar sem landið er enn
í sárum eftir óöld sem þar ríkti á
árunum 1980-2003. - sg
Síðari umferð líberísku forsetakosninganna í gær:
Weah talinn líklegri
ATKVÆÐI GREIDD Kjörsókn var með mikl-
um ágætum í höfuðborginni Monróvíu, svo
og annars staðar í landinu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
ÞEKKTUR FYRIR SÍN ÞRUMUSKOT
George Weah, 39 ára, er að öllum
líkindum besti knattspyrnumaður
Afríku fyrr og síðar en óvíst er hvort
hann sé þar með hæfur til að gegna
embætti forseta.
Weah ólst upp í sárri fátækt en með
knöttinn á tánum braust hann til
frægðar og frama. Hann var kjörinn
knattspyrnumaður Evrópu 1995 og
lék á ferli sínum með félögum á borð
við AC Milan og Chelsea.
Hann nýtur mikilla vinsælda á
meðal samlanda sinna og telja marg-
ir hann vera það sameiningartákn
sem þessi stríðshrjáða þjóð þarfnast.
Auðæfi hans eru slík að ólíklegt
þykir að hægt sé að spilla honum en
reynsluleysi hans í stjórnmálum gæti
reynst honum fjötur um fót.
GEORGE WEAH ELLEN JOHNSON-SHIRLEAF
JÁRNFRÚIN FRÁ HARVARD
Í hópi stuðningsmanna sinna gengur
Ellen Johnson-Shirleaf, 67 ára, undir
nafninu járnfrúin enda hefur hún
komist áfram á eigin verðleikum í
þjóðfélagi þar sem karlar hafa að
öllu jöfnu tögl og hagldir. Hafi hún
sigrað í kosningunum verður hún
fyrsti þjóðkjörni leiðtogi Afríkuríkis
úr röðum kvenna.
Óhætt er að segja að Johnson-Shir-
leaf sé eldri en tvævetur á sviði
stjórnmálanna. Hún er með hag-
fræðigráðu frá Harvard-háskólanum
og gegndi embætti fjármálaráðherra
Líberíu á áttunda áratugnum. Þegar
herforingjabylting var framin í land-
inu árið 1980 var járnfrúin fangelsuð
en síðar gekk hún í lið með uppreisn-
arleiðtoganum Charles Taylor áður
en hún snerist gegn honum að lokum.
Ragnheiður ráðin Ragnheiður Inga
Þórarinsdóttir var í gær ráðin til að
gegna nýju starfi aðstoðarorkumála-
stjóra Orkustofnunar. Hún var áður
deildarstjóri á orkumálasviði en ákveðið
hefur verið að það skuli lagt niður með
skipulagsbreytingum sem taka gildi 1.
janúar næstkomandi. Ragnheiður hefur
doktorsgráðu í verkfræði frá Danska
Tækniháskólanum og MBA gráðu frá
Háskóla Íslands.
ORKUSTOFNUN
AKUREYRI Fjárhagsáætlun Akur-
eyrarbæjar fyrir næsta ár gerir
ráð fyrir tæplega 400 milljóna
króna rekstrarafgangi en áætlunin
var tekin til fyrri umræðu á fundi
bæjarstjórnar í gær. Kristján Þór
Júlíusson bæjarstjóri segir vöxt
og grósku hafa sett mark á bæjar-
braginn á Akureyri undanfarin ár
og svo verði áfram.
Samkvæmt fjárhagsáætlun-
inni verða heildartekjur bæjarins
á næsta ári tæpir 10,7 milljarð-
ar króna en heildargjöld um 10,3
milljarðar króna. Tekjuaukningin
frá árinu í ár verður um 630 millj-
ónir króna en gert er ráð fyrir að
útgjöldin aukist heldur minna eða
um 580 milljónir króna.
Kristján Þór segir að áætlunin
geri ráð fyrir miklum fjárfesting-
um í grunngerð samfélagsins en
framkvæmt verður í A-hluta fyrir
tæpan 1,2 milljarð króna.
„Fjárhagsstaða sveitarfélagsins
er mjög sterk og við gerum ráð fyrir
að íbúum bæjarins fjölgi áfram en
það sem af er þessu ári hefur þeim
fjölgað um 257. Útsvarsprósent-
an mun ekki hækka á næsta ári
og leikskólagjöld ekki heldur en
við reiknum með að álagningar-
prósentan vegna fasteignagjalda
lækki nokkuð en of snemmt er að
segja til um hversu mikil lækkun-
in verður,“ segir Kristján Þór. - kk
Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar fyrir árið 2006:
400 milljóna rekstrarfgangur
FJARHAGSÁÆTLUNIN KYNNT Dan Jens
Brynjarsson, sviðsstjóri fjárreiðudeildar,
Kristján þór Júlíusson bæjarstjóri og Jón
Bragi Gunnarsson, hagsýslustjóri Akureyr-
arbæjar, kynntu áætlunina á blaðamanna-
fundi í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/KK
SAMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR, AP Örygg-
isráð Sameinuðu þjóðanna sam-
þykkti í gær að framlengja um
eitt ár umboð erlenda herliðsins
sem er í Írak.
Ibrahim al-Jaafari, forsætis-
ráðherra Íraks, fór fram á fram-
lengingu umboðsins en það hefði
að óbreyttu runnið út 31. desem-
ber næstkomandi. Í samþykkt
öryggisráðsins er hins vegar
kveðið á um að endurskoða megi
framlenginguna fari íraska ríkis-
stjórnin fram á það.
180.000 erlendir hermenn eru í
Írak um þessar mundir. ■
Fjölþjóðlega herliðið í Írak:
Fer í fyrsta lagi
í árslok 2006
SVEITASTJÓRNARMÁL „Fulltrúar
Akraneskaupstaðar fóru á sínum
forsendum og bæjarráðsmenn
borguðu sjálfir fyrir eiginkon-
ur sínar,“ segir Guðmundur Páll
Jónsson, bæjarstjóri Akranes-
kaupstaðar.
Bæjarráðs-
f u l l t r ú a r n i r
G u ð m u n d u r
Páll Jónsson,
Gísli Gíslason,
Sveinn Kristj-
ánsson og Gunn-
ar Sigurðsson
h e i m s ó t t u
borgarstjórann
í Leeds á Eng-
landi, William Hyde, í lok síðasta
mánaðar. Með í ferðinni voru
Benedikt Guðmundsson, forstjóri
HB Granda, og Sturlaugur Har-
aldsson sölustjóri.
Borgarstjórinn í Leeds fór með
alla sendinefndina að borða á veit-
ingastað sem kaupir um 70 tonn
af sjófrystum flökum úr skipum
HB Granda, þeim Höfrungi III og
Helgu Maríu. Þar borðuðu menn
fisk og franskar að enskum sið.
„Okkur var síðan boðið í innstu
vé hjá borgarstjóranum og þar
kynntum við mikilvægi sjó-
mennsku og fiskveiða á Akranesi.
Með þessu leggjum við okkar
skerf til þess að efla þetta mik-
ilvæga starf HB Granda,“ segir
Guðmundur Páll bæjarstjóri.
Hann var áður starfsmannastjóri
hjá HB Granda.
„Við sáum Manchester United
leika gegn Tottenham og buðum
sir Alex Ferguson að vera við-
staddan vígslu á íþróttahúsi sem
tekið verður í notkun á Akranesi
í mars. Hann sagði það ekki úti-
lokað að hann kæmi,“ bætir Guð-
mundur við. saj@frettabladid.is
Borguðu fyrir
eiginkonurnar
Fjórir bæjarráðsfulltrúar Akraness fóru með for-
svarsmönnum HB Granda til Leeds í Englandi. Þeir
hittu Alex Ferguson sem fékk heimboð upp á Skaga.
GUÐMUNDUR PÁLL
JÓNSSON
AKRANESKAUPSSTAÐUR Guðmundur Páll Jónsson gerðist bæjarstjóri á Akranesi fyrir
skemmstu. Áður var hann starfsmannastjóri hjá HB Granda.