Fréttablaðið - 09.11.2005, Page 20
9. nóvember 2005 MIÐVIKUDAGUR20
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
19
10
5
Vertu me› fyrir kl.17.
807
509 1. vinningur
1306milljónir
Bónus-vinningur
10
milljónir
Alltaf á mi›vikudögum!
lotto.is
Me› LOTTÓ Í ÁSKRIFT gætir flú auk fless
hreppt einn af 30 glæsilegum aukavinningum.LOTTÓ
ÁSKRIFTAR
LEIKUR
Nú hefur›u meiri
tíma til a› vera me›.
Sölukerfi› er opi› til kl. 17 á veturna!
Davíð Oddsson fjallaði um loftslags-
hlýnun í ræðu sinni á landsfundi
Sjálfstæðismanna fyrir skömmu.
Davíð er þeirrar gerðar að hann
skynjar tíðarandann og veit þess
vegna að fjöldi fólks hefur áhyggjur
af áhrifum loftslagsbreytinga. Þess
vegna sagði hann í ræðunni að við-
leitnin með Kyoto-sáttmálanum
væri örugglega í rétta átt og að
Sjálfstæðismenn hefðu tekið fullan
þátt í umræðunni um hlýnun jarðar.
En hann stóðst ekki mátið og bætti
við: „Kyoto-samþykktin byggir
vissulega á afar ótraustum vísinda-
legum grunni. [...] Því miður hefur
sú umræða á köflum verið borin
uppi af óræðri tilfinningasemi og
í versta falli innantómum áróðri
fremur en rökum.“ Vegna þess
hversu margir taka mark á orðum
Davíðs finnst mér nauðsynlegt að
leiðrétta þessar fullyrðingar.
Lomborg efast ekki
Alþjóðleg nefnd vísindamanna,
hagfræðinga og embættismanna
sem Sameinuðu þjóðirnar settu á
laggirnar árið 1988 (IPCC) hefur
lagt mat á loftslagsrannsóknir sem
gerðar hafa verið og komst hún að
þeirri niðurstöðu árið 2001 að hlýn-
un loftslags sé að öllum líkindum
af mannavöldum. Magn koltvísýr-
ings í andrúmsloftinu hefur aukist
um 31 prósent frá því árið 1750 og
hefur ekki verið meira í um 420.000
ár, kannski milljónir ára. Þess
vegna er búist við því að hlýnunin
verði 1,4°C til 5,8°C á þessari öld,
meiri en orðið hefur í 10 þúsund ár.
Afleiðingar slíkrar hlýnunar ætla
ég ekki að ræða hér en þær munu
gjörbreyta lífsafkomu fjölmargra
þjóða, flestra til hins verra.
Samstaða vísindamanna um
þetta er mikil. Meira að segja Björn
Lomborg, sem er þekktur fyrir
efasemdir um ýmsar fullyrðingar
umhverfisverndarsinna segir í bók
sinni The Skeptical Environmen-
talist að það leiki enginn vafi á því
að mannkynið hafi aukið koltvísýr-
ingsmagn í andrúmsloftinu og að
það leiði til hlýnunar andrúmslofts-
ins. Kostnaðurinn af þeim völdum
verði um fimm þúsund milljarð-
ar dala! Hann efast því ekki um
að mannkynið hafi valdið hlýnun
loftslagsins. Efasemdir hans snú-
ast um það hvort borgi sig fyrir
mannkynið að draga strax úr losun
gróðurhúsalofttegunda. Hann vill
meina að það verði fjárhagslega
hagkvæmara fyrir mannkynið að
aðlaga sig að afleiðingum hlýnun-
arinnar í stað þess að reyna að snúa
þróuninni við með minnkaðri losun
koltvísýrings nú þegar. Hann hvet-
ur engur að síður til þess að meira
fé verði varið nú þegar í þróun og
rannsóknir á notkun sólarorku og
annarra endurnýjanlegra orku-
gjafa. Davíð Oddsson virðist því
vera meiri efasemdarmaður þegar
kemur að loftslagsmálum en sá vís-
indamaður sem hefur verið í for-
ystu efasemdarmanna í heiminum.
Hægrimenn hættir að efast
Sumir kunna að segja að Davíð
hafi í ræðu sinni verið að sýna
samstöðu með Bandaríkjastjórn
í loftslagsmálum. En svo er ekki
því þar í landi eru menn hættir að
berja höfðinu við steininn. Banda-
ríkjastjórn hefur viðurkennt að
0,6°C hlýnun síðastliðna hálfa öld
sé að öllum líkindum bein afleiðing
losunar mannkyns á gróðurhúsa-
lofttegundum. George Bush gerði
nýlega samkomulag við Indverja og
Kínverja um samstarf við að draga
úr losun koltvísýrings með þróun
umhverfisvænni orkugjafa og
fylki, borgir og fyrirtæki í Banda-
ríkjunum hafa sjálf sett sér skýr
markmið um minnkun á losun kol-
tvísýrings. Davíð Oddsson virðist
því vera meiri efasemdarmaður en
bandarískir stjórnmálamenn sem
hafa þó farið fremstir í flokki efa-
semdarmanna fram til þessa.
Í Bretlandi er David Cameron,
vonarstjarna breskra íhalds-
manna, á allt annarri skoðun en
Davíð. Hann hefur meðal annars
lagt áherslu á það í yfirstandandi
kosningabaráttu um leiðtogasæti
Íhaldsflokksins að loftslagsmál
séu ásamt hryðjuverkaógn stærsta
vandamál sem mannkynið stendur
frammi fyrir. En Davíð veit betur
- „umræðan um loftslagshlýnun er
borin uppi af óræðri tilfinninga-
semi og í versta falli innantómum
áróðri“.
Vonandi er ný forysta Sjálfstæð-
isflokksins sömu skoðunar og verð-
andi forysta breskra hægrimanna
í þessum efnum. Nýir leiðtogar
hljóta að átta sig á því að umræðan
um loftslagsmál snýst ekki lengur
um það hvort loftslagshlýnun sé
af mannavöldum heldur um það
hvernig brugðist verður við henni.
Þá gildir einu hver skoðun Davíðs
Oddssonar er í þeim efnum.
Höfundur stundar meistaranám
í umhverfisfræðum við Edinborgar-
háskóla. ■
Efasemdarmaðurinn Davíð
UMRÆÐAN
LOFTLAGSHLÝNUN
GUÐMUNDUR HÖRÐUR GUÐMUNDSSON
Davíð Oddsson virðist því vera
meiri efasemdamaður þegar
kemur að loftslagsmálum en sá
vísindamaður sem hefur verið í
forystu efasemdamanna í heim-
inum.