Fréttablaðið - 09.11.2005, Síða 25
][
Ferðafélag Akureyrar hefur
lokið við byggingu nýs ferða-
skála við Drekagil hjá Öskju.
Ferðafélag Akureyrar hefur
byggt upp fyrsta flokks aðstöðu
fyrir ferðafólk. Nýi skálinn hefur
fengið viðurnefnið Nýi-Dreki en
á svæðinu er fyrir eldri skálinn,
Gamli-Dreki. Sá er frá árinu
1968 og hefur tuttugu svefnpláss
en Nýi-Dreki er með gistipláss
fyrir fjörutíu manns. Tvö svefn-
herbergi eru á jarðhæð sem
hvort um sig rúmar fimm gesti.
Svefnloftið er tvískipt með upp-
hækkuðum bálkum fyrir þrjá-
tíu manns. Þá er mjög rúmgóð
borðstofa með eldhúsaðstöðu,
rúmgóð forstofa og vatnssalerni.
Raflýsing er í húsinu knúin af
sólarsellum. Á svæðinu er einn-
ig snyrtihús frá árinu 2001 með
vatnssalernum og gaskyntum
sturtum. Á sumrin eru tvö tjald-
stæði við Drekagil og þar er
landvarsla í júlí og ágúst.
Nýr Dreki við Öskju
Gistinóttum á íslenskum hót-
elum í september fjölgaði um
rúmlega 13 prósent milli ára.
Í tölum sem Hagstofa Íslands
hefur birt kemur fram að gisti-
nætur á hótelum í september 2005
voru 92.900 en voru 81.900 í sama
mánuði í fyrra. Þetta samsvarar
13,4 prósenta aukningu. Mesta
aukningin varð á Suðurnesjum,
Vesturlandi og Vestfjörðum þar
sem aukningin var rúm tuttugu
prósent. Á höfuðborgarsvæðinu
fjölgaði gistinóttum úr 53.700
í 64.600. Í öðrum landshlutum
fækkaði gistinóttum milli ára.
Þessi aukning er nánast ein-
göngu rakin til erlendra gesta
en gistinóttum Íslendinga fjölg-
aði aðeins um tæpt eitt prósent.
Einnig getur það haft áhrif á
aukna eftirspurn að framboðið
hefur aukist. Í september á síðasta
ári höfðu sjötíu hótel opið allt árið
en nú eru hótelin sjötíu og fimm.
Herbergjum hefur líka fjölgað og
fjöldi rúmplássa aukist. Frá því á
síðasta ári hefur hótelum fjölgað
um tvö á höfuðborgarsvæðinu,
tvö á Vesturlandi og eitt á Norður-
landi eystra.
Gistinóttum fjölgar
Apollo, einn stærsti ferða-
skipuleggjandi á Norður-
löndum, hefur numið land á
Íslandi. Um leið bjóðast Ís-
lendingum sólarferðir á kjörum
sem norræn frændsystkini hafa
ein setið að til þessa.
Um miðjan október keyptu eigendur
Apolloferða, Kuoni Scandinavia, 70
prósenta hlut í Langferðum á Íslandi.
Í kjölfarið var ráðist í að auka við
starfsemina og býður nú Apollo á
Íslandi mikið úrval af leiguflugi um
víðan heiminn. Ný heimasíða er í
vinnslu hjá ferðaskrifstofunni þar
sem sjá má áfangastaði og verð.
Þátttaka Apollo á íslenskum
ferðamarkaði hefst á hefðbundn-
um nótum með leiguflugi til Gran
Canaria, sólríkustu eyju Kanarí-
eyja, sem er stærsti áfangastaður
Apollo yfir vetrarmánuðina. Fjöldi
Íslendinga hefur ferðast með Apollo
frá Danmörku, en Appollo býður
upp á fjölbreyttar leiguflugsferðir
á góðu verði. Vert er að kynna sér
möguleikana því senn kemur að því
að pælingar um næsta sumarleyfi
hefjast.
Nýr möguleiki á
ferðamarkaði
Nýi Dreki. Nýr skáli Ferðafélags Akureyrar við Drekagil.
Gistipláss eru orðin fleiri í Reykjavík.
Ferðaskrifstofan Appollo hefur blandað
sér í samkeppnina um ferðir til Kanaríeyja
í vetur.
Frá Orlando.
SKÍÐAMENN SITJA NÚ LÍMDIR YFIR
VEÐURFRÉTTATÍMUNUM OG BÍÐA
Í VON OG ÓVON EFTIR FRÉTTUM
AF SNJÓKORNUM SEM VILJA BÚA Í
SKÍÐABREKKUM.
Akureyringar eru yfirleitt fyrstir til
að laða til sín snjóinn í brekkurnar
og þeir eru búnir að setja lúffurnar
upp og eru til í tuskið. Skíðasvæðið í
Hlíðarfjalli tekur á móti skíðamönn-
um með hvítum faðmi. Svæðið
verður opið á laugardag og sunnu-
dag frá tíu til fimm og á miðvikudag
til föstudag frá fjögur til sjö næstu
vikurnar en opnunartíminn lengist
þegar líða tekur á vetur. Í Hlíðarfjalli
er góður snjór og hefur bætt aðeins
á hann frá því um helgina. Göngu-
brautin er einnig opin og troðin
daglega. Göngubrautir á skíðasvæði
Ísafjarðar eru opnar og Dalvíkur-
menn vinna hörðum höndum að
því að setja upp snjókerfi og vonast
til að opna seinna í mánuðinum.
Skíðasvæðin á höfuðborgarsvæðun-
um eru lokuð. Um daginn leit smá
snjór þar við en hann reyndist ekki
nægur til að vinna úr honum fyrir
skíðasvæðin. Höfuðborgarbúar neyð-
ast því til að setja hjól undir skíðin
eins og staðan er núna. En það mun
snjóa um síðir.
Skíðin dregin fram
GÓÐ BÓK er lykillinn að því að gera ferðalög milli staða þægi-
leg. Þeir sem hafa með sér spennandi kilju þarf aldrei að leiðast,
jafnvel þótt seinkun verði á flugi.
Skíðasvæði Dalvíkinga. Örvæntið ekki,
seint snjóar sumstaðar en snjóar samt.
skíðafærið }
frá9.700
3 dagar í Þýskalandi
Ford KA eða sambærilegur
kr. - ótakmarkaður akstur,
kaskó, þjófavörn, flugvallargjald
og skattar.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
H
ER
3
00
09
10
/2
00
5
Sími: 50 50 600
www.hertz.is
Bókaðu bílinn heima
- og fáðu 500 Vildarpunkta
�������������������������������� ����������������������������������������������������������
������������������������������������������������������������
���������������������������������������
��������������������������������������������
���������������
���������������������������������
�������������������
���������������
������������������ ���������������
�����������������������������