Fréttablaðið - 09.11.2005, Qupperneq 32
MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2005 MARKAÐURINN4
F R É T T I R
Breskir fjölmiðlar segja
Baug sniglast í kringum
bresku verslunarkeðjunna
Woolworths.
Fjárfes t ingafé lag ið
Apax sem tók þátt í kaup-
um á Somerfield
vildi kaupa
Woolworths á
sínum tíma en
gekk úr skaftinu
á síðustu
stundu, þar sem
áreiðanleikakönnun
stóðst ekki vænting-
ar þeirra.
Samkvæmt heim-
ildum er ekki fótur
fyrir orðrómnum um
áhuga Baugs á félaginu.
Woolworths er ekki
talið falla vel að
stefnu Baugs um að
kaupa í fyrirtækjum
með skýra stefnu. -
hh
„Það er orðið full bókað á öll
námskeið í Reykjavík en við
bættum því við fimm námskeið-
um í morgun [þriðjudagsmorg-
un] en þau urðu full um leið,“
segir Ragnar Már Vilhjálmsson,
vörumerkjastjóri hjá Íslands-
banka, en Íslandsbanki hefur að
undanförnu auglýst námskeið
um fjármálalæsi fyrir almenning
undir nafninu Peningarnir þínir.
Mikil aðsókn hefur verið á nám-
skeið og fullbókað er á tólf nám-
skeið sem bankinn hóf að auglýsa
í síðustu viku. Enn er laust á
námskeið Í Reykjanesbæ, Sel-
fossi og á Akureyri en fullt er á
öll námskeið í Reykjavík.
„Þetta er framar okkar vonum
en við fundum að það er mikil
þörf fyrir svona fræðslu. Við
erum ekki að auglýsa okkur með
þessu, þetta er fyrst og fremst
fræðsla fyrir almenning. Við
munum auglýsa fleiri námskeið á
næstunni en ekki alveg strax því
við erum bara með einn leiðbein-
anda í þessu og það er meira en
nóg að gera hjá honum,“ segir
Ragnar. - hb
Hólmfríður Helga Sigurðardóttir
skrifar
Á Flúðum búa stærstu jarðar-
berjaframleiðendur landsins,
hjónin Eiríkur Ágústsson og Olga
Guðmundsdóttir. Þau hafa nú í
smíðum tvö þúsund fermetra
gróðurhús undir framleiðsluna
sem verður tekið í notkun næsta
vor. Hjónin keyptu reksturinn
árið 2002 en jarðarber hafa verið
ræktuð á Flúðum frá árinu 1995.
Eiríkur hefur þó lengi verið með
puttana í ræktun og var meðal
annars framleiðslustjóri hjá
Flúðasveppum í 11 ár.
Eiríkur segir ræktun jarðar-
berja sérstaklega dýra og pláss-
freka og flesta aðra ræktun í
gróðurhúsum gefa meira af sér.
Verð vörunnar hafi lítið hækkað
milli ára og ekki í samræmi við
aðrar hækkanir á neysluvörum.
Framleiðsla hjónanna á jarð-
arberjum hefur verið um átta
tonn á ári. Með nýja gróðurhús-
inu gera þau ráð fyrir að auka
hana um að minnsta kosti fjögur
tonn. Tilgangurinn með nýja
gróðurhúsinu er ekki að auka
framboðið á hverju tímabili held-
ur lengja tímabilið og fylla
þannig það skarð sem hefur
myndast yfir sumartímann. Upp-
skeran hingað til hefur verið í
maí og júní og aftur í september
og október. Engin framleiðsla
hefur verið í júlí og ágúst en með
nýja húsnæðinu verður uppsker-
an samfelld frá maí fram í októ-
ber.
Þrjátíu til fjörutíu prósent af
veltu búsins koma af jarðar-
berjaframleiðslunni. Á búinu fer
einnig fram tómata- og kálrækt.
Til þess að geta framleitt jarðar-
ber yfir vetrarmánuðina þarf
lýsingu og Eirkíkur telur það
ekki borga sig sem stendur. Hins
vegar muni hann hugsanlega
leggja hluta þess pláss sem hann
hefur haft undir tómataræktun
undir jarðarberin þar sem að allt
stefni nú í offramleiðslu á tómöt-
um.
Innlend framleiðsla stendur
undir um það bil fimm prósent-
um heildarneyslu á jarðarberj-
um.
Framleiða tólf tonn
af jarðarberjum
Hjón á Flúðum eru stærstu jarðarberjaframleiðendur lands-
ins og eru að byggja tvö þúsund fermetra gróðurhús.
Straumur Burðarás þreifar fyrir sér með sölu á hlut sínum í Íslands-
banka, samkvæmt heimildum Markaðarins.
Straumur er stærsti hluthafinn í bankanum og hefur um skeið
skoðað leiðir til þess að selja hlutinn. Í upphafi sumars voru áætlanir
í gangi um að Milestone undir forystu Karls Wernerssonar, FL Group
og Baugur myndu standa að félagi um kaup á hlutnum.
Björgólfur Thor Björgólfsson er stjórnarformaður Straums Burða-
ráss. Talið er ólíklegt að hann vilji selja Jóni Ásgeiri hlut í bankanum
og kærleikar milli þeirra séu takmarkaðir. Er sú ályktun dregin með-
al annars af grein Financial Times þar sem Björgólfur Thor lýsti
áhyggjum af Baugsmálinu og varaði við þeirri
ályktun að stjórnmálamenn hefðu átt þátt í
málinu.
Straumur þarf að draga eign sína í Íslands-
banka frá eigin fé sínu samkvæmt reglum um
fjármálafyrirtæki og eignin í Íslandsbanka
gæti því orðið hindrun vilji félagið ráðast í stór
erlend verkefni. Straumur á um 26 prósenta hlut
og er virði hans yfir fimmtíu milljarðar
króna. -hh
Jónas Fr. Jónsson, forstjóri Fjár-
málaeftirlitsins, sagði á ársfundi
eftirlitsins á mánudaginn að í
september hefðu þremur stóru
tryggingafélögunum hér á landi
verið veitt heimild til að veita
þjónustu án starfsstöðvar í til-
teknum ríkjum EES. Í október
hefði VÍS svo keypt tæplega tíu
prósent hlut í norsku vátrygg-
ingafélagi og fyrir tæpri viku
keypti sama félag meirihluta í
bresku tryggingafélagi. Félagið
boðaði aukin umsvif á erlendri
grund.
„Ljóst er að þessi nýja útrás
mun hafa frekari áhrif á starf-
semi Fjármálaeftirlitsins og auka
mikilvægi alþjóðlegs samstarfs.
Hér mun og reyna á mikilvægi
áhættustýringar eftirlitsskyldra
aðila og mögulega reglur um fjár-
málasamsteypur,“ sagði Jónas.-bg
Við verðum við
símann til kl. 20 í kvöld.
Hafðu samband
í síma 550 1310 og
við ráðum þér heilt.
JARÐARBERJARÆKT Í SILFURTÚNI Áætlað er að jarðarberjaframleiðslan aukist úr átta tonnum í tólf með tilkomu nýja húsnæðisins.
Lög um
lágmarkstíma
Viðskiptaráðuneytið hefur nú til
skoðunar hvort lögbinda eigi til-
tekinn eignarhaldstíma starfs-
manna fjármálafyrirtækja. Þetta
kemur fram í svari viðskiptaráð-
herra við fyrirspurn Jóhönnu Sig-
urðardóttur á Alþingi um við-
skipti fruminnherja á fjármála-
markaði.
Í svari ráðherra kemur fram
að í Danmörku sé kveðið á um sex
mánaða eignarhaldstíma og í Nor-
egi um tólf mánaða eignarhalds-
tíma. Hér á landi er kveðið á um
þrjá mánuði að lágmarki nema
sérstakar aðstæður komi til. -hb
Alþjóðlegt samstarf mikilvægt
Tryggingafélögin komin í hóp útrásarfyrirtækja
FORSTJÓRI FME Eftirlitið þarf að fylgjast
með dótturfélögum íslenskra fyrirtækja er-
lendis.
Leitar kaupanda
að Íslandsbankahlut
Mikill áhugi á fjármálum
Fullt á nær öll námskeið Íslandsbanka.
Baugur orðaður
við Woolworths
04_05_Markadur-lesin 8.11.2005 15:57 Page 2