Fréttablaðið - 09.11.2005, Blaðsíða 38
MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2005 MARKAÐURINN10
F R É T T A S K Ý R I N G
Forstjóri Fjármálaeftirlitsins, Jónas Fr.
Jónsson, sagði á ársfundi eftirlitsins á
mánudaginn að spurningar hefðu vaknað
um mörk eiginlegrar fjármálastarfsemi
og annars reksturs, eins og fasteignaum-
sýslu eða flugvélarekstur sem dæmi. Í lög-
um væri kveðið á um starfsheimilidir fjár-
málafyrirtækja og þeim sett ákveðin
mörk. Heimild til hliðarstarfsemi miðaðist
að því að ljúka viðskiptum eða endur-
skipuleggja starfsemi viðskiptaaðila. Það
væri til að takmarka áhættutöku, koma í
veg fyrir hagsmunaárekstra og stuðla að
viðunandi áhættustýringu. Ætlast væri til
að fyrirtæki upplýsi Fjármálaeftirlitið um
stöðu slíkrar atvinnuþátttöku tvisvar á ári.
„Það verður að segjast að nokkur mis-
brestur hefur verið á að fjármálafyrirtæk-
in hafi sinnt upplýsingagjöf til Fjármála-
eftirlitsins á fullnægjandi hátt. Einnig
virðist vera einhver túlkunarágreiningur
um það hversu víðtækar heimildir fjár-
málafyrirtækin hafi til slíkrar hliðar- eða
tímabundinnar starfsemi og eru nokkur
tilvik nú til skoðunar af hálfu eftirlitsins.
Á næstu mánuðum mun Fjármálaeftirlitið
leggja áherslu á að bæta framkvæmd
þessa, afgreiða ágreiningsmál og hugsan-
lega endurskoða tilmæli sín og vænti ég
góðs samstarfs fjármálafyrirtækjanna í
þessu efni,“ sagði Jónas í ræðu sinni.
VILJA MÁLSSKOTSRÉTT
Stjórn Fjármálaeftirlitsins telur afar
brýnt að eftirlitinu verði veittur réttur til
að skjóta niðurstöðum kærunefndar til
dómstóla. Viðskiptaráðherra skipar full-
trúa í kærunefndina og þangað geta máls-
aðilar skotið úrskurðum Fjármálaeftirlits-
ins.
Stefán Svavarsson, stjórnarformaður
stofnunarinnar, sagði á ársfundinum að í
mörgum tilvikum hefði eftirlitið ekki fall-
ist á röksemdir kærunefndarinnar. Nánast
allar ákvarðanir Fjármálaeftirlitsins sem
kærunefndin fengi til umfjöllunar lytu að
því að treysta reglur. Nauðsynlegt væri að
allir þátttakendur á markaði og almenn-
ingur megi trúa að hér á landi væri eins
skilvirkur markaður og kostur væri.
Stefán sagði að þrátt fyrir að Fjármála-
eftirlitið væri ekki alltaf sammála rök-
semdum kærunefndarinnar gæti eftirlitið
ekki fengið niðurstöður nefndarinnar
prófaðar. Í lögum segði að úrskurðum
kærunefndarinnar yrði ekki skotið til við-
skiptaráðherra. Eftirlitið gæti ekki búið
við óvissu um heimildir sínar og brýnt
væri að bregðast við án tafar með laga-
setningu.
BRÉF SENT VIÐSKIPTARÁÐHERRA
Fjármálaeftirlitið hefur sent iðnaðar- og
viðskiptaráðherra bréf þar sem farið er
fram á þessu verði breytt. Í því segir:
„Fjármálaeftirlitið telur aðkallandi að
kveðið verði á um málskotsrétt Fjármála-
eftirlitsins vegna niðurstaðna kærunefnd-
ar. Úrlausnarefni kærunefndar geta haft
slíka grundvallarþýðingu fyrir starfsemi
Fjármálaeftirlitsins, stefnu þess og þróun
fjármálamarkaðar, að óeðlilegt verður að
teljast að þær geti ekki sætt endurskoðun
dómstóla. Í tilteknum tilvikum hafa niður-
stöður kærunefndar verið svo umdeilan-
legar að mati Fjármálaeftirlitsins, að ljóst
má vera að þær hefðu verið bornar undir
dómstóla, ef málskotsréttur hefði verið
fyrir hendi. Þá er rétt að benda á, að nú-
verandi fyrirkomulag hvetur málsaðila til
þess að kæra ákvarðanir Fjármálaeftir-
litsins, þar sem þeir hafa engu að tapa, en
geta treyst því að hagstæð niðurstæða í
kærunefnd sætir ekki endurskoðun dóm-
stóla.“
Jónas Fr. Jónsson, sem tók við starfi
forstjóra Fjármálaeftirlitsins 1. júlí síð-
astliðinn af Páli Gunnari Pálssyni, fór yfir
áherslur eftirlitsins á næstu mánuðum.
Útskýrði hann hvernig Fjármálaeftirlitið
hygðist framfylgja nýjum ákvæðum laga
um verðbréfaviðskipti sem tóku gildi í
sumar. Síðan þá hefðu þessi ákvæði verið
kynnt markaðsaðilum en kæmust í fram-
kvæmd eftir ársfund eftirlitsins að teknu
tilliti til kærufrests.
Jónas sagði að Fjármálaeftirlitið myndi
almennt birta samandregna niðurstöðu at-
hugana á starfsháttum fjármálafyrir-
tækja, hvað varði framkvæmd verðbréfa-
viðskipta. Í þeim tilvikum þar sem Fjár-
málaeftirlitið kæmist að þeirri niðurstöðu
að beita ætti stjórnvaldssektum yrðu
helstu efnisatriði málsins birt og aðilar
nafngreindir. Ekki yrði greint frá nöfnum
ef ástæða væri til að vísa málum til lög-
reglu en þó yrði greint frá efnisatriðum
slíkra mála. Það væri svo lögreglunnar að
rannsaka málið frekar.
STJÓRNENDUR Í HÆFISMAT
„Vegna þjóðfélagslegs mikilvægis fjár-
málaþjónustu hefur löggjafinn gert ríkari
kröfur til stjórnenda þessara fyrirtækja
en annarra félaga. Snúa þær kröfur að trú-
verðugleika slíkra aðila en varðandi fram-
kvæmdastjóra eru gerðar enn frekari
kröfur um faglegt hæfi, það er menntun
og starfsreynslu,“ sagði Jónas þegar hann
fjallaði um hæfismat stjórnenda. Val á
stjórn og helstu stjórnendum skipti miklu
máli. Fjármálaeftirlitinu bæri að fylgjast
með því að ákvæði laga um hæfi stjórn-
enda væru í heiðri höfð. Um nokkurt skeið
hefði það tíðkast að framkvæma sérstakt
hæfismat í þeim tilvikum þegar nýir
framkvæmdastjórar kæmu að vátrygg-
ingastarfsemi eða miðlun. Þetta verklag
hefði gefist vel og mælst vel fyrir.
„Fjármálaeftirlitið hyggst nú taka upp
þetta verklag við hæfismat fyrir nýja
stjórnendur sem koma að fjármálafyrir-
tækjum og lífeyrissjóðum, og við útgáfu
nýrra eða breyttra starfsleyfa til slíkra
aðila. Hæfismatið mun fara þannig fram
að stjórnendur munu þurfa að skila inn
svörum við spurningalista sem snýr al-
mennt að hæfi þeirra auk nauðsynlegra
vottorða. Framkvæmdastjórar munu jafn-
framt þurfa að mæta til fundar hjá Fjár-
málaeftirlitinu þar sem þekking þeirra á
lögum og reglum sem gilda um viðkom-
andi starfsemi verður könnuð,“ sagði
Jónas.
Ágreiningur um heimild fjármálafyrir-
tækja til þátttöku í atvinnurekstri
Jónas Fr. Jónsson, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, segir misbrest á upplýsingagjöf frá fjármálafyrirtækj-
um um þátttöku í atvinnutengdri starfsemi. Þá sé einnig ágreiningur um túlkun á heimildum fjármála-
fyrirtækja til að stunda hliðar- eða tímabundna atvinnustarfsemi. Björgvin Guðmundsson sat ársfund
Fjármálaeftirlitsins.
FJÖLMENNUR FUNDUR Fjölmargir
starfsmenn og stjórnarmenn fyrirtækja á
fjármálamarkaðnum sóttu fund FME.
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/V
al
ga
rð
ur
N O K K R A R T Ö L U R U M A Ð G E R Ð I R F M E
(Fjöldi bréfa/ákvarðana) 1. júlí 2003 – 1. júlí 2004 –
30. júní 2004 31. júní 2005
Veiting leyfa (starfsleyfi, virkur eignarhlutur o.fl.), samþykki o.fl. 187 294
Athugasemdir, ábendingar, kröfur um úrbætur (fjöldi bréfa). 456 224
Dagsektir. 20 2
Stjórnvaldssektir (einungis úrræði á afmörkuðu sviði verðbréfamarkaðar). 10 14
Ríkislögreglustjóra greint frá máli skv. 12. gr. laga nr. 87/1998. 1 1
10_11_Markadur-lesin 8.11.2005 15:33 Page 2