Fréttablaðið - 09.11.2005, Side 43
Landlæknir leggur til að fólk spari
aurana sína og, í stað þess að
kaupa fæðubótarefni, fá sér epli
og fara í göngutúr.
„Hreyfing og almenn líkamsrækt er
líklega einfaldasta og ódýrasta leið
til bættrar heilsu sem völ er á,“
segir Sigurður Guðmundsson
landlæknir.
Flest vítamín, steinefni og bætiefni
eru fáanleg úr fæðunni, og ef
hraust fólk borðar fjölbreytta fæðu
og hreyfir sig, þurfa fæstir á fæðu-
bótarefnum að halda, enda benda
fáar vísindalegar rannsóknir til að
þau bæti heilsu hrausts fólks.
„Fæðubótarefni eru yfirleitt mjög
dýr. Í flestum tilvikum er fólk að
borga fyrir vörur sem í besta falli
gagnast þeim ekki og í versta falli
skiljast óbreyttar út um ýmis lík-
amsop,“ segir landlæknir.
Lýðheilsustöð hvetur fólk til að borða fimm skammta eða 500 grömm af
grænmeti, ávöxtum og safa á dag fyrir fullorðna, þar af að minnsta kosti
200 grömm af grænmeti og 200 grömm af
ávöxtum, auk kartaflna.
Þetta þarf ekki að vera
erfitt, fólk getur til
dæmis fengið sér einn
ávöxt eða glas af
hreinum ávaxtasafa að
morgni, salat með há-
degismatnum, annan
ávöxt síðdegis og tvær
tegundir af grænmeti
með kvöldmatnum. Fjöl-
breytnin skiptir öllu máli,
og ekki eru þurrkaðir ávext-
ir síðri en þeir fersku.
500 grömm af ávöxtum og
grænmeti fyrir fullorðna
ávextir }
2 ■■■■ { líf & heilsa } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Icepharma varð til þegar fyrirtækin Heilsuverslun Íslands, Ísfarm og
Thorarensen lyf sameinuðust fyrir ári.
„Þau hafa lengi þjónað landsmönnum á sviði lyfja og tengdra vara, en
starfsemina má rekja allt til ársins 1919 er Stefán Thorarensen opnaði lyf-
sölu í Reykjavík sem síðar varð Thorarensen lyf ehf.,“ segir Bessi H. Jó-
hannesson, sviðsstjóri þjónustusviðs Icepharma, en tæplega 50 manns
vinna hjá fyrirtækinu sem hefur aðsetur á Lynghálsi.
Dýralæknir vinnur hjá fyrirtækinu, auk annars starfsfólks með bakgrunn í
lyfja-, viðskipta-, tann- og hjúkrunarfræði, sem og lyfjatækni, en
Icepharma flytur inn lyf fyrir fólk og dýr, og heilsu- og neytendavörur svo
sem dömubindi, tannkrem og plástra.
Haraldur Óskar Tómasson, reyk-
vískur heimilislæknir, er einn þeirra
lækna sem ferðast milli fyrirtækja
og gefur flensusprautuna.
„Við mælum fyrst og fremst með
því að fólk eldra en 65 ára og fólk
með hjarta- og æðasjúkdóma, syk-
ursýki eða aðra langvinna sjúk-
dóma fari og láti sprauta sig. Það
sama á við um heilbrigðisstarfs-
menn,“ segir Haraldur.
„Atvinnurekendur sjá sér hag í að
bjóða starfsmönnum sínum spraut-
una, en í sjálfu sér er ég ekkert að
mæla með því að ungt, hraust fólk
láti sprauta sig. Það er bara val
hvers og eins,“ segir hann og bætir
því við að hann láti alltaf sprauta
sjálfan sig, enda hafi hann ekki
fengið flensu síðan 1985.
Flensusprautan sér til þess að lík-
aminn myndar mótefni gegn þrem-
ur stofnum inflúensu sem Alþjóða-
heilbrigðisstofununin telur líklegt
að herja muni á hinn vestræna
heim í vetur og valda flensunni í ár.
Stofnarnir breytast ár frá ári, en in-
flúensan sem flensusprautan vinn-
ur gegn er þessi slæma flensa sem
flestir hafa upplifað, með 40 stiga
hita, þriggja til sjö daga rúmlegu og
slappleika næstu tvær vikurnar.
Sumir telja það víst að þeir veikist
fyrst ef þeir fái sprautuna, og kem-
ur það fyrir að fólk finni fyrir örlitl-
um flensueinkennum fyrst á eftir en
þau einkenni ganga fljótt yfir, að
sögn Haralds.
„En hins vegar ruglar fólk saman
inflúensu og öðrum veirusýkingum,
því á flensutíma ganga oft aðrar
pestir. Ég sprauta fyrir inflúens-
unni, sem kemur, eins og amen í
kirkju, á hverju ári,“ segir hann.
Í fyrra fór Haraldur á 70 manna
vinnustað, þar sem um helmingur-
inn lét sprauta sig. Af þeim sem
voru sprautaðir fékk einn slæma
flensu, en af hinum hópnum urðu
sjö manns veikir. „Þetta eru auðvit-
að engar rannsóknarniðurstöður,
en þetta segir manni kannski eitt-
hvað um gildi sprautunnar,“ segir
Haraldur.
Hann áréttar að flensusprautan er
eingöngu gegn þessum þremur
stofnum inflúensu sem vísinda-
menn Alþjóðaheilbrigðisstofunun-
arinnar telja að muni ganga í vetur.
Hún er alls ekki gegn öllum þeim
veirum sem ganga manna á milli,
hvað þá gegn fuglaflensunni.
„Fuglaflensan smitast ekki manna á
milli, og það er ekkert víst að hún
muni nokkurn tímann gera það,“
segir Haraldur.
Icepharma flytur inn lyf fyrir fólk og dýr.
Einföld leið til bættrar heilsu
hreyfing }
Flensusprautan er fyrirbyggjandi
Fjöldi fólks þyrpist þessa dagana í flensusprautu, en þó eru margir sem ekki vita
hvernig hún virkar eða hvort þeir eigi að láta sprauta sig.
Haraldur Óskar Tómasson heimilislæknir gefur starfsmönnum 365 flensusprautu.
Sinna bæði
dýrum og fólki
Icepharma er sterkt fyrirtæki sem veitir góða þjónustu
og er vel í stakk búið til að mæta aukinni samkeppni á
íslenskum lyfja- og heilbrigðismarkaði.
Græna bomban
Fæst í Jurtaapótekinu á Lauga-
vegi 2, og inniheldur ekki lækn-
ingarjurtir heldur spírúlínu, og er
full af járni, amínósýrum,
bygggrasi, steinselju, rauðrófum
og grænu þangi. Allt eru þetta
jurtir sem eru mjög ríkar af blað-
grænu, en neysla
hennar er rétt
eins og að taka
inn súrefni og
gefur manni
kraft og
byggir upp
ónæmiskerf-
ið. Græna
bomban er
til í duft- og
pilluformi og
það er hægt
að gera te úr
henni eða
setja út í safa.
02-03 lífogheilsa-lesin 8.11.2005 15:51 Page 2