Fréttablaðið - 09.11.2005, Side 61
Riskið í dílum
Stefán Svavarsson, einn helsti
fræðimaður landsins á sviði end-
urskoðunar og stjórnarformað-
ur Fjármálaeftirlitsins, er um-
hugað um íslenskt málfar. Kom
það skýrt fram í ræðu hans á
ársfundi Fjármálaeftirlitsins á
mánudaginn þegar hann sagði
alltof algengt í umræðu um fjár-
hagsleg málefni fyrirtækja að
menn sletti ensku. Vonlaust
væri að nota ebitda eða jafnvel
e-bytta þegar unnt væri að segja
rekstrarhagnaður án afskrifta.
Nefndi hann dæmi um orðnotk-
un í opinberri umræðu sem hann
hefði heyrt og væri ótæk: „Ebit-
dan verður að duga fyrir vakk-
inu af hæfilegu kapitali, einkum
ef riskið er mikið í struktueruð-
um dílum og þegar hedgið er illa
unnið.“
Sambankahlaup
Stór hópur manna úr fjármála-
lífinu flaug til New York fyrir
síðustu helgi og hljóp þar mara-
þon á sunnudaginn. Þetta var
sannkallað sambankahlaup því
þarna sameinuðust menn úr
nokkrum fjármálafyrirtækjum.
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson,
Guðmundur Þ. Guðmundsson og
Stefán Ákason, sem allir starfa
hjá KB banka, tóku vel á því. Vil-
helm Þorsteinsson og Jóhannes
Baldursson, hjá Íslandsbanka,
létu sig ekki vanta. Ekki heldur
Ómar Sigtryggsson frá MP
banka né Halldór Friðrik Þor-
steinsson hjá HF Verðbréfum.
Helgi Eysteinsson hjá Úrval –
Útsýn getur líka hlaupið því
hann fylgdi köppunum eftir, sem
allir kláruðu hlaupið. Nokkrir
„hittu vegginn“ eftir 35 kíló-
metra enda NY-hlaup talin erfið
vegna mikils hæðarmismunar.
Hlaupið var í gegnum fimm
hverfi og var það mikil upplifun.
Spurningin sem vaknar er hvort
Landsbankamenn geti ekkert
hlaupið?
Hækkun í hafi
Danskir fjölmiðlar láta sitt ekki
eftir liggja þegar tækifæri er til
að sá tortryggni um íslenska
fjárfesta í Danmörku. Þeir tóku
því gagnrýni Vilhjálms Bjarna-
sonar, aðjúnkts við Háskóla Ís-
lands, fagnandi og gerðu henn
góð skil sem og þeimi sögusögn-
um sem hafa verið í gangi um FL
Group og Sterling.
Svona til þess að gefa Vilhjálmi
aukið vægi var hann af Dönun-
um tiltlaður lektor sem er föst
staða við háskóla. Fjarlægðin
gerir víst fjöllin blá og mennina
mikla og þegar viðskiptalífið var
í föstum skorðum þægilegra
hafta, þá var virðisauki af þessu
tagi kallaður hækkun í hafi.
160% 93 7,6%aukning í eignum Straums-Burðar-áss frá áramótum. þúsund gistinætur á íslenskum hótelum íseptember. samdráttur í verðmæti útfluttrasjávarafurða fyrstu níu mánuðiársins.
SÍMANÚMER MARKAÐARINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@markadurinn.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@markadurinn.is Veffang: visir.is
410 4000 | www.landsbanki.is
Við færum þér fjármálaheiminn
Nú býðst þér að eiga milliliðalaus verðbréfaviðskipti með E*TRADE í gegnum
netið á stærsta verðbréfamarkaði heims, Wall Street í Bandaríkjunum, og á
mörkuðum í Svíþjóð, Finnlandi og Danmörku.
Kynntu þér málið á www.landsbanki.is
B A N K A H Ó L F I Ð
01_24_Markadur-lesið 8.11.2005 15:54 Page 2