Fréttablaðið - 09.11.2005, Page 68
MIÐVIKUDAGUR 9. nóvember 2005
Hærri útgjöld munu fækka
störfum og auka ver›bólgu
Ari Edwald, framkvæmdastjóri
Samtaka atvinnulífsins, segir í
frétt á heimasíðu SA að ef útgjöld
fyrirtækja hækki í tengslum við
launahækkanir á vinnumarkaði,
muni það einungis verða til þess
að fækka störfum og auka verð-
bólgu.
„Seðlabankinn mun væntan-
lega hækka stýrivexti sína enn
meira en ella verði aukið við
samningsbundnar hækkanir í
kjarasamningum, sem umsvifa-
laust mun hækka gengi krónunn-
ar,“ segir Ari.
Hann segir enn fremur að að-
koma stjórnvalda að íbúðalána-
markaði sé með endemum því
Íbúðalánasjóður megi taka lán hjá
sér á lægri vöxtum en hægt er að
fá í ávöxtun með kaupum á bréf-
um sem gefin eru út af Íbúðalána-
sjóði. „Engar fréttir eru um að
ríkið hyggist fylgja ábyrgu for-
dæmi Landsbankans, sem dregur
nú í land varðandi lánshlutföll,“
segir Ari. - hb
SO YOU THINK YOU CAN DANCE
MIÐVIKUDAGA KL. 21.00
FRAMLEIÐENDUR AMERICAN IDOL KYNNA NÝJAN ÞÁTT ÞAR
SEM LEITAÐ ER AÐ BESTA DANSARA BANDARÍKJANNA.
FYLGSTU MEÐ!
Norræni flugrisinn SAS hagnaðist
um tæpa fjóra milljarða króna á
þriðja ársfjórðungi sem er ríflega
fjórfalt meiri hagnaður en á sama
tíma í fyrra þegar afkoman var já-
kvæð um einn milljarð króna.
Frá áramótum er hagnaður fé-
lagsins hins vegar ekki nema um
430 milljónir króna þannig að tapið
var verulegt á fyrri hluta ársins.
Þriðji ársfjórðungur er að jafn-
aði besti hluti ársins í rekstri SAS,
eins og annarra flugfélaga, en oftar
en ekki er tap á rekstri SAS á þeim
fjórða. Stjórnendur SAS búast við
að fyrirtækið skili hagnaði á árinu.
- eþa
Fjórföldun hagna›ar hjá SAS
SAS RÉTTIR ÚR KÚTNUM Hagnaður
SAS var tæpir fjórar milljarðar á þriðja árs-
fjórðungi sem er fjórfalt betri afkoma en á
sama tímabili í fyrra.
ARI ED-
WALD Segir
að launa-
hækkanir á
vinnumark-
aði muni
stuðla að því
að störfum
fari fækk-
andi og
verðbólga
hækkandi.
Viðskipti lesið 8.11.2005 21:30 Page 3