Fréttablaðið - 09.11.2005, Page 77
9. nóvember 2005 MIÐVIKUDAGUR32
Hundruð manna brugðu undir
sig betri fætinum á laugardags-
kvöldið og litu við á Radisson
SAS 1919 Hótel við Pósthússtræti
þegar hárgreiðslustofan Senter
og Snyrtistofan Jóna voru opn-
aðar hlið við hlið í hýbýlum þess.
Svavar Örn Svavarsson, eigandi
Senter, og Jónína Hallgrímsdóttir,
eigandi snyrtistofunnar, gerðu vel
við vini og vandamenn, bæði í mat
og drykk og var dansað langt fram
á kvöld. „Eins og sönnum Íslend-
ingum sæmir sat fólk sem fastast
þangað til dæmið var búið. Þetta
var mjög gaman,“ segir Svavar
Örn.
Þetta er fyrsta hársnyrtistofa
Svavars en fyrir á Jónína snyrti-
stofu í Hamraborg sem hún hyggst
starfrækja áfram.
Stuðningsmenn
Vilhjálms Þ.Vilhjálmssonar
Við óskum sjálfstæðismönnum í Reykjavík
til hamingju með glæsilegt prófkjör.
Þá þökkum við öllum sjálfboðaliðum
óeigingjarnt starf í þágu Vilhjálms Þ.
Vilhjálmssonar og meðframbjóðendum
drengilega baráttu.
Framundan eru spennandi tímar. Fyrsta
áfanganum að sigri sjálfstæðismanna í
borgarstjórnarkosningum næsta vor er
náð.
Hamingjuóskir
og þakkir
Einstakt enskunámskeið
�����������������������������������������
���������������������������
• Fjarnám með 27 1/2 tíma enskunámskeiði á cd diskum
• Slökunardiskur með jákvæðri staðfestingu með tónlist
frá Friðriki Karlssyni
• Vinnubók með enska og íslenska textanum
• Taska undir diskana
• Áheyrnarpróf í lok náms
Mörg stéttarfélög, fræðslusjóðir og fyrirtæki styrkja þetta námskeið
Allar uppl‡singar
www.pareto.is
eða í símum 540-8400 eða 820-3799
Í kvöld verður sannkölluð veisla
fyrir dansáhugafólk. Hitt húsið
verður með sýninguna Darraðar-
dans sem er hluti af Unglist Hins
hússins. „Sérstakir gestir okkar
í ár eru nemendur í Listdans-
skóla Íslands,“ segir Sóley Kaldal,
umsjónarmaður sýningarinnar.
„Það á nefnilega að loka Listdans-
skólanum í vor og þetta er mikið
hitamál. Af því tilefni ákvað ég
að bjóða menntamálaráðherra,
Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur,
að vera viðstödd sýninguna – ekki
til þess að vera með neikvæðni og
gagnrýni heldur til þess að leyfa
henni að fá innsýn í starfsemi
dansskólana og þá sérstaklega
Listdansskólans. Hún sýndi okkur
þann mikla heiður að þiggja boðið
sem mér fannst alveg rosalega
flott hjá henni.“
Listdansskóli Íslands hefur
verið starfræktur síðan árið 1952
og að sögn Arnar Guðmundssonar,
skólastjóra skólans, er lokun skól-
ans liður í einkavæðingu liststofn-
ana á Íslandi. „Það má segja að það
sé verið að kippa fótunum undan
faginu með þessum aðgerðum.“
Örn segir að flestir listdansskól-
ar í heiminum séu ríkisreknir og
nefnir þar sem dæmi Konunglega
danska ballettskólann sem einmitt
sýndi nýverið í Þjóðleikhúsinu við
frábærar undirtektir. „Skólinn
er fyrir þá sem ætla sér atvinnu-
mennsku í faginu og þetta hefur
vægast sagt verið mikið áfall fyrir
okkur.“
Því er vert að hvetja dansunn-
endur til að mæta á sýninguna
í kvöld í Tjarnarbíói sem hefst
klukkan átta og er ókeypis. „Sýn-
ingin verður mjög fjölbreytt og
skemmtileg, enda fáheyrt að
mismunandi dansskólar samein-
ist svona á einni sýningu,“ segir
Sóley. Meðal annarra atriða er
magadans frá Kramhúsinu og
frá Magadanshúsinu og sýningar
frá Jazzbellettskóla Báru og Ball-
ettskóla Guðbjargar Björgvins,
hip hop sýning frá Kramhúsinu
og dansar frá Dansskóla Birnu
Björnsdóttur. „Dansarar eru ekki
að rífast og skammast heldur vilja
sýna ráðherra fallegan dans.“
útskýrir Sóley. „Með þessu vonast
þeir til að ná til þeirra sem völdin
hafa.“
annabjornsson@frettabladid.is
DANSAÐ FYRIR RÁÐHERRANN
Darraðardans í Tjarnarbíói í kvöld
SÓLEY KALDAL Umsjónarmaður dans-
sýningarinnar Darraðardans í boði Hins
hússins.
HÁRPRÚÐAR Steinunn Hauksdóttir, Þóra
Steingrímsdóttir og Hrund Eðvarðsdóttir
voru ánægðar með nýju stofurnar.
STOLTIR EIGENDUR Svavar Örn og Jónína Hallgrímsdóttir opnuðu stofur sínar hlið við hlið í Radisson SAS hótelinu við Pósthússtræti.
Nýjar stofur á Radisson SAS
FJÖRUGAR Kristín Guðjónsdóttir og Rann-
veig Karlsdóttir skemmtu sér langt fram á
kvöld ásamt öðrum gestum.
ÁNÆGÐAR MEÐ ÁRANGURINN María Fjóla
Pétursdóttir og Þóra Baldvinsdóttir flug-
freyjur hönnuðu útlit hársnyrtistofunnar.
LÉTU SIG EKKI VANTA Lilja Rún Kristmundsdóttir, Daníel Örn Hinriksson og Björk María
Kristmundsdóttir.