Fréttablaðið - 09.11.2005, Síða 89
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
ER FÆDDUR!
ÍSLENSKU SPENNUSÖGUNNAR
KRÓNPRINS
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
1
5
1
0
0
- Páll Baldvin Baldvinsson, DV
„HÖRKUSPENNANDI... GLÆSILEG SAKAMÁLASAGA“
- Kolbrún Bergþórsdóttir, Blaðið
„KROSSTRÉ ER SÉRLEGA VEL SKRIFUÐ BÓK“
KROSSTRÉ EFTIR JÓN HALL STEFÁNSSON
Fertugur arkitekt finnst lífshættulega slasaður við sumarbústað sinn við Þingvallavatn. Við rannsókn kemur í ljós að hinn slasaði er
flæktur í þéttan vef svika og lyga þar sem fjölskylda hans, ástkona og samstarfsmenn eru bæði fórnarlömb og þátttakendur.
SIGRÍÐAR DAGGAR
AUÐUNSDÓTTUR
BAKÞANKAR
Mér finnst alltaf svo skemmti-legt að bera saman tölur í því
skyni að ráða eitthvað út úr þeim
og jafnvel spá fyrir um óorðna
hluti - að sjálfsögðu þó frekar í
gamni en alvöru. Þess vegna rak
forvitni mín mig til að bera saman
tölur úr formannskjöri Samfylk-
ingarinnar, sem fram fór í lok maí,
við tölur úr prófkjöri Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík um síðustu
helgi.
NÁNAST jafnmargir kusu í
prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík og kusu í formannskjöri
Samfylkingarinnar, sem fram fór
með póstkosningu, eða rétt ríflega
tólf þúsund manns. Ein af ástæð-
unum fyrir því að ákveðið var að
hafa póstkosningu var sú að þátt-
takan yrði þannig sem mest. En
ekki þurfti það til svo Sjálfstæðis-
menn nýttu atkvæði sitt, því þeir
flykktust á kjörstað.
FÉLAGAR í Sjálfstæðisfélögun-
um í Reykjavík eru að sama skapi
nánast jafnmargir og félagar í
Samfylkingu á landsvísu, eða um
tuttugu þúsund. Kosningaþátttak-
an í báðum tilfellum var þar af
leiðandi jafnmikil, eða um sex-
tíu prósent, sem telst víst mjög
gott. Báðir flokkar stærðu sig að
sjálfsögðu af frábærri kosninga-
þátttöku sem þeir sögðu til marks
um hversu vel flokkurinn stæði
og fylgi hans væri gott um þær
mundir.
SMÖLUNIN var mikil í aðdrag-
anda beggja kosninganna. Sam-
fylkingarfélögum fjölgaði um sjö
þúsund fyrir formannskjörið og
Sjálfstæðismönnum um tæp fjög-
ur þúsund.
EF gert væri ráð fyrir því að tölu-
legt samhengi héldi áfram milli
Samfylkingarinnar á landsvísu og
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
mætti leika sér að því að reikna
hvernig Sjálfstæðisflokknum
kemur til með að ganga í borg-
arstjórnarkosningunum í vor. Ef
hlutfall Sjálfstæðismanna, sem
tók þátt í prófkjörinu miðað við
þá sem kjósa munu flokkinn í
vor, er hið sama og hlutfallið milli
Samfylkingarmanna sem tók þátt
í formannskjöri og kaus Sam-
fylkinguna í Alþingiskosningum
er ljóst að Sjálfstæðisflokkurinn
mun gjörsigra borgina!
SAMFYLKINGIN hlaut alls
56.700 atkvæði í síðustu þingkosn-
ingum. Ef Sjálfstæðisflokkurinn
fengi jafnmörg atkvæði í borgar-
stjórnarkosningunum í vor væri
það 70 prósent atkvæða. Það yrði
nú aldeilis stórsigur.
xS=xDRvk.