Fréttablaðið - 12.11.2005, Page 6
6 12. nóvember 2005 LAUGARDAGUR
DÓMSMÁL Hæstiréttur felldi niður
greiðslu skaðabóta og sektar sem
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi
í marslok lögreglumann til að
greiða fyrir að hafa ekið lögreglu-
bíl í veg fyrir mótorhjól við Ægi-
síðu í Reykjavík næstum ári fyrr.
Ökumanni bifhjólsins höfðu
verði dæmdar 195.000 krónur í
bætur, en Hæstiréttur taldi kröf-
una vanreifaða og vísaði henni frá
dómi. Dómurinn taldi hins vegar
bæði hættulegt og óforsvaranlegt
af lögreglumanninum að aka í veg
fyrir hjólið. Fyrr um kvöldið hafði
lögregla elt hóp bifhjólamanna
fyrir ofsaakstur.
Hæstiréttur ákvað að fresta
refsingu lögreglumannsins í tvö
ár og hún fellur niður haldi hann
skilorð þann tíma. Litið var til
þess að maðurinn hefur ekki áður
hlotið refsingu. - óká
Hæstiréttur um lögregluþjón:
Hættulegt og
óforsvaranlegt
ÞÝSKALAND, AP Stærstu stjórnmála-
flokkum Þýskalands tókst í gær að
ganga frá málefnasamningi sam-
steypustjórnar sem Angela Merk-
el, leiðtogi kristilegra demókrata,
mun fara fyrir. Hún verður fyrsta
konan sem sest í þýska kanslara-
stólinn.
„Við viljum gera meira úr
Þýskalandi og við, stóru flokkarn-
ir tveir, viljum með þessum stjórn-
arsáttmála vinna aftur traust fólks
á hæfni stjórnmálamanna (...)
og sýna að við getum fengið ein-
hverju áorkað fyrir landið okkar,“
sagði Merkel á blaðamannafundi
eftir að stjórnarmyndunarviðræð-
unum lauk í Berlín í gær, en þær
voru langar og strangar.
Stjórnarsáttmálinn verður á
mánudag lagður fyrir aukaflokks-
þing flokkanna, Jafnaðarmanna-
flokksins SPD, Kristilega demó-
krataflokksins og systurflokks
hans í Bæjaralandi, CSU, en þau
verða að leggja blessun sína yfir
hann til að hin nýja „stóra sam-
steypa“ geti sest að völdum. Gangi
allt að óskum mun þingið kjósa
Merkel kanslara hinn 22. nóvem-
ber. Nærri fjörutíu ár eru síðan
stóru flokkarnir störfuðu síðast
saman í stjórn. - aa
Stjórnarmyndun stóru flokkanna í Þýskalandi:
Stjórnarsáttmálinn tilbúinn
MERKEL HITTI HU Angela Merkel, verðandi kanslari Þýskalands, tók sér tíma frá stjórnar-
myndunarviðræðunum til að hitta Hu Jintao Kínaforseta í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SKOÐANAKÖNNUN Sjálfstæðismenn
fengju hreinan meirihluta ef kosið
yrði nú til borgarstjórnar sam-
kvæmt skoðanakönnun sem Frjáls
verslun gerði fyrir vefsvæðið
heimur.is.
Fylgi flokksins mældist 53 pró-
sent en með slíkt fylgi næði hann
níu mönnum inn í borgarstjórn.
Samfylkingin mældist með 31 pró-
senta fylgi og fengi því fimm menn
og Vinstri grænir sem mældust
með 10 prósenta fylgi fengju því
einn mann. Aðrir flokkar kæmu
ekki inn manni.
Einnig kom fram í könnun-
inni að Stefán Jón Hafstein nýtur
meira trausts sem borgarstjóra-
efni Samfylkingarinnar heldur en
núverandi borgarstjóri, Steinunn
Valdís Óskarsdóttir. 67 prósent
þeirra sem tóku afstöðu sögðust
treysta honum betur en 33 prósent
sögðust treysta Steinunni Valdísi
betur. Ekki var mikill munur á
milli kynja en þó nýtur Stefán Jón
heldur meira fylgis meðal kvenna.
Samtals voru 564 spurðir í
þessari könnun sem gerð var dag-
ana 7. til 8. þessa mánaðar. - jse
Skoðanakönnun Frjálsrar verslunar fyrir Heim:
Sjálfstæðismenn ynnu borgina
Í BORGARSTJÓRN
Ef marka má skoðanakönnun sem Frjáls
verslun gerði yrðu ýmsar sviptingar í borg-
arstjórn ef kosið yrði í dag.
KJÖRKASSINN
Á Fjármálaeftirlitið að birta
hvaða fyrirtæki hafa brotið af sér
við verðbréfaviðskipti?
Já 40,5%
Nei 59,5&
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Ætti Óperan að rísa í Reykjavík?
Segðu skoðun þína á Vísi.is
STJÓRNMÁL Halldór sagði það
eðlilegt að gengið væri hátt um
þessar mundir vegna þess hversu
þjóðin hefur ætlað sér mikils.
„Við höfum einmitt lagt áherslu
á það að atvinna sé mikil og vilj-
um við ekki frekar meiri spennu
en atvinnuleysi með öllum þeim
hörmungum sem því fylgir fyrir
heimilin í landinu. Ef ég mætti
velja þarna á milli þá vel ég frek-
ar mikla spennu og uppbyggingu
heldur en atvinnuleysi,“ sagði
Halldór.
Hann sagðist skilja áhyggjur
fólks vegna hás gengis og verð-
bólgu en nú væru vextir húsnæðis-
lána að lækka og eins gengið. „Og
að mínu mati er engin forsenda
fyrir því, eins og sakir standa,
að Seðlabankinn haldi áfram að
hækka vexti um næstu mánaða-
mót,“ sagði hann.
Halldór sagðist einnig vera
bjartsýnn á það að niðurstaða næð-
ist í viðræðum um kjarasamning-
ana svo að þeir héldust með eðlileg-
um hætti. Halldór leitaði skýringa
á því af hverju fylgi við Framsókn-
arflokkinn mældist jafn lítið í skoð-
anakönnunum og raun ber vitni um
þessar mundir. „Það verður að segj-
ast alveg eins og er að staða Fram-
sóknarflokksins í skoðanakönnun-
um er ekki ásættanleg.“
„Er það vegna þess að við
höfum staðið okkur illa?“ spurði
Halldór og svaraði sjálfur neit-
andi og taldi upp fjölmörg dæmi
máli sínu til stuðnings.
„Ég tel hins vegar að við séum
sem flokkur og einstaklingar ekki
nægilega stolt af okkar verkum,“
sagði hann sem eina af skýring-
unum og bætti við að framsóknar-
menn væru feimnir og hógværir
en tækju þó oftast við sér skömmu
fyrir kosningar.
Aðra skýringu sagði hann vera
þá að framsóknarmenn hefðu ekki
komið sínum málum nógu mikið á
framfæri og skýrt nægilega vel
frá árangri sínum.
Hann sagði mikið liggja við að
flokknum tækist vel til í sveitar-
stjórnarkosningunum í vor því
annars myndu menn taka því sem
svo að hann sé ekki líklegur til
stórræða í alþingiskosningum.
jse@frettabladid.is
Vill frekar spennu
en atvinnuleysi
Halldór Ásgrímsson fór vítt og breitt í ræðu sinni á miðstjórnarfundi Fram-
sóknarflokksins í Kópavogi í gær. Hann sagði engar forsendur fyrir því að
Seðlabankinn héldi áfram að hækka vexti.
HALLDÓR ÁSGRÍMSSON FORMAÐUR FRAMSÓKNARFLOKKSINS Halldór fór víða í ræðu sinni í gær og leitaði skýringa á litlu fylgi flokksins.
Einnig sagði hann að Seðlabankinn hefði engar forsendur til að halda áfram að hækka vexti. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
PERÚ Stjórnvöld í Perú hafa kall-
að sendiherra sinn í Japan heim
sökum þeirrar ákvörðunar jap-
anskra stjórnvalda að berjast
fyrir rétti Alberto Fujimori sem
bíður nú framsals til Perú frá
Chile.
Fujimori hefur bæði perúskt
og japanskt ríkisfang og hefur
síðastliðin fimm ár búið í Japan
í útlegð en dvelur nú í fangelsi í
Chile.
Verði hann framseldur til Perú
bíða hans löng réttarhöld en hann
er talinn bera ábyrgð á morðum
öryggissveita landsins á uppreisn-
armönnum í stjórnartíð sinni sem
forseti. ■
Fujimori-málið:
Sendiherra
kallaður heim
Slapp ómeiddur eftir bílveltu
Bíll valt á Biskupsstungnabraut,
skammt frá Svínavatni í gær. Ökumað-
urinn var einn í bílnum. Hann virðist
hafa sloppið með minni háttar meiðsl
en hann var fluttur á sjúkrahúsið á
Selfossi til rannsókna.
Sprengjusérfræðingar í útkall
Tveir menn úr sprengjusveit Landhelg-
isgæslunnar lögðu í gær af stað með
björgunarþyrlunni Líf til að gera óvirkt
tundurdufl sem kom upp með veiðar-
færum togarans Þórunnar Sveinsdóttur
VE-401. Skipið er statt á Skrúðsgrunni
út af Austfjörðum.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Tína upp hundaskít Hundaeig-
endur ætla að gera sér glaðan dag á
Geirsnefi í dag og tína hundaskít. Þrátt
fyrir að öll aðstaða sé til að hreinsa
upp eftir hunda þarna, skortir á hirðu-
semi hundaeigenda, sem getur leitt
til þess að hundar veikist og jafnvel
drepist.
HUNDAEIGENDUR