Fréttablaðið - 12.11.2005, Page 12

Fréttablaðið - 12.11.2005, Page 12
12 12. nóvember 2005 LAUGARDAGUR F í t o n / S Í A Sævarhöf›a 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opi›: Mánudaga – föstudaga kl. 9:00-18:00 og laugardaga kl. 12:00-16:00 Primera Ver›tilbo› 2.090.000.- Me› nagladekkjum. Sjálfskiptur, cruise control og bakkmyndavél í lit. PRIMERA NISSAN EKKERT VENJULEGUR SKIPT_um stíl Karl Gústaf og Sylvía Svíakonungur og -drottning arka hér um Walpa-gljúfr- ið við Kata Tjuta, um 300 kílómetra frá Alice Springs í Ástralíu, á fimmta degi af sex í opinberri heimsókn þeirra. MYND/AP KYNJADÝR Vísindamenn hafa fund- ið hauskúpu af sjávarkrókódíl sem svamlaði um heimsins höf fyrir 135 milljónum ára. Fjölþjóðlegur hópur vísinda- manna kynnti rannsóknir sínar á hauskúpunni í fyrradag í vef- útgáfu tímaritsins Science en tæp tíu ár eru síðan kúpan fannst á fornum sjávarbotni í Argentínu. Hún er talin vera af tæplega fjög- urra metra langri risaeðlu sem var uppi á júratímabilinu. Beinaleifar benda til að hún hafi haft fjórar sundblöðkur og sporð. „Þetta dýr var að líkindum það síðasta af sinni ætt og án efa það furðulegasta í hópi sjávarkrókó- díla,“ sagði Diego Pol, einn vísinda- mannanna, í samtali við AP-frétta- stofuna. Það eru orð að sönnu því trjóna dýrsins er mun styttri en sú sem krókódílar skarta yfirleitt og tennurnar eru stórar og sagarlaga. Af því draga vísindamennirnir þá ályktun að aðalfæða Godzilla, eins og þeir eru þegar farnir að kalla kvikindið sem á latínu nefnist Dakosaurus andiniensis, hafi verið stórar sjávarskepnur. Af þeim var nóg í höfunum á þessum tíma eins og hinar 22 metra löngu hvaleðlur eru dæmi um. Ekki er þó talið að Godzilla hafi getað lagt sér slík- ar ófreskjur til munns, þrátt fyrir sagartennurnar ógurlegu. - shg Beinaleifar áður óþekkts fornkrókódíls hafa fundist í Argentínu: Gerólíkur öðrum krókódílum DAKOSAURUS Til vinstri sést ljósmynd af höfuðkúpunni en til hægri er tölvugerð mynd af höfði skepnunnar eins og vísinda- menn telja það hafa litið út. FRÉTTABLAÐIÐ/AP LÍBERÍA Ellen Johnson-Sirleaf er fyrsta konan sem nær kjöri sem forseti Afríkuríkis en þegar þorri atkvæðanna í líberísku þingkosn- ingunum hefur verið talinn hefur hún öruggt forskot á George Weah, keppinaut sinn. Hann segir brögð hafa verið í tafli. Þegar 91 prósent atkvæðanna úr síðari umferð líberísku forseta- kosninganna, sem fram fór fyrr í vikunni, hafði verið talið í gær höfðu 59 prósent kjósenda greitt Johnson-Sirleaf atkvæði sitt en 41 prósent Weah. „Ég held að úrslitin séu mjög skýr, ég er afar auðmjúk yfir að líberíska þjóðin skyldi hafa valið mig til að leiða lands- menn á braut sátta og uppbygg- ingar,“ sagði hún í útvarpsviðtali við BBC. Hún kvaðst vonast til að sigur sinn hvetti kynsystur sínar í Afríku til frekari dáða. Enn á eftir að telja atkvæði úr afskekktari sveitahéruðum landsins og því gæti dregist um tvær vikur að tilkynna endanleg úrslit. Bráðabirgðaniðurstöður kosningaeftirlitsmanna á vegum Efnahagsbandalags Vestur-Afr- íkuríkja benda til að kosningarn- ar hafi farið heiðarlega fram og litlir hnökrar verið á framkvæmd þeirra. George Weah og stuðnings- menn hans vísa þeim dómi hins vegar algerlega á bug og segja að brögð hafi verið í tafli. Weah sýndi blaðamönnum kjörseðla sem hann sagði formerkta John- son-Sirleaf. Þessum seðlum hafi starfsmenn kjörstjórna stungið í kjörkassana. Johnson-Sirleaf fæddist árið 1938 en á sínum yngri árum naut hún þeirra forréttinda að hljóta menntun í bestu háskólum Banda- ríkjanna. Á áttunda áratugnum gegndi hún embætti fjármálaráð- herra Líberíu en í kjölfar herfor- ingjabyltingar árið 1980 missti hún embætti sitt og sat um tíma í fangelsi. Þegar Charles Taylor tók að þjarma að herforingjunum upp úr 1990 gerði Johnson-Sirleaf þau mistök að styðja hann tíma- bundið en það kom á daginn að hann var engu skárri en þeir sem höfðu haldið um valdataumana í landinu. Erfitt verk bíður nýja forset- ans því efnahagur landsins er í rúst og tortryggni er enn ríkjandi eftir margra ára borgarastyrj- öld. Johnson-Sirleaf virðist hins vegar horfa björtum augum til framtíðar. „Konur eru reiðubúnar að skrifa söguna,“ sagði hún við stuðningsmenn sína í gær. „Og karlarnir eru tilbúnir að vinna með okkur.“ sveinng@frettabladid.is Sirleaf kjörin forseti Líberíu Allt bendir til að Ellen Johnson-Sirleaf sé sigurveg- ari forsetakosninganna í Líberíu. Hún er þar með fyrsta konan sem er kjörin forseti Afríkuríkis. KJARNAKONA „Konur eru reiðubúnar að skrifa söguna,“ sagði Ellen Johnson-Sirleaf við stuðningsmenn sína í gær. „Og karlarnir eru tilbúnir að vinna með okkur.“ NORDICPHOTOS/AFP DÓMSMÁL Dómur yfir síbrota- manni sem dæmdur hafði verið í eins árs fangelsi fyrir margvís- leg brot var ómerktur að hluta í Hæstarétti í vikunni. Héraðsdómur Norðurlands eystra lét í vor gera upptæka loftbyssu sem fannst við leit hjá manninum, en hann var einnig dæmdur fyrir innbrot. Hæstiréttur benti á að mað- urinn hefði játaði hluta sakar- gifta en neitað öðrum án þess að verjandi hans væri viðstadd- ur. Var þeim hluta sakargifta sem maðurinn játaði vísað aftur heim í hérað til aðalmeðferðar og dóms. - óká Síbrotamaður dæmdur: Málið að hluta aftur í hérað DANMÖRK Hafi Dani stutta skóla- göngu að baki er líklegast að hann hangi lengstum á barnum og dreypi á öli en sé um langskóla- genginn Dana að ræða svigna hill- ur hans af bókum og hann sækir leikhús og óperur. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem Danska hagstofan hefur sent frá sér og sýnir að ímynd Dana um sjálfa sig er á rökum reist. Sýnir hún mikinn mun á áhugamálum og líferni eftir lengd skólagöngu og menntun hvers og eins. ■ Sjálfsmynd Dana er á rökum reist: Skólinn skiptir máli BRAUTSKRÁNING Því fleiri gráður, því fleiri bækur í hillum og færri stundir á barnum. DÓMSMÁL Hæstaréttur hefur vísað aftur heim í hérað til málflutnings og dómsálagningar bótakröfu sjó- manns á hendur Granda hf. Hér- aðsdómur Reykjavíkur dæmdi í apríllok sjómanninum rúma millj- ón króna í bætur, en fyrir hafði hann fengið greiddar tæpar fjórar milljónir. „Ekki verður séð að héraðs- dómari hafi tekið rökstudda ástæðu til málsástæðna áfrýjanda sem snerta staðgreiðslu opinberra gjalda og afsal hans á rétti til fyrr- greindra bóta,“ segir í dómi Hæsta- réttar og taldir annmarkar á hér- aðsdómnum. Fyrir Hæstarétti dró sjómaðurinn úr kröfum sínum, en enn var deilt um við hvað ætti að miða bótagreiðslurnar og eins að dregin hafði verið frá bótum fjárhæð sem svaraði staðgreiðslu opinberra gjalda. - óká Dómi vísað til héraðsdóms: Annmarkar ollu ómerkingu

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.