Fréttablaðið - 12.11.2005, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 12.11.2005, Blaðsíða 26
 12. nóvember 2005 LAUGARDAGUR26 timamot@frettabladid.is Tilkynningar um merkis- atburði, stórafmæli, andlát og jarðarfarir í smáletursdálkinn hér að ofan má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5000. ELIZABETH CADY STANTON (1815-1902) FÆDDIST ÞENNAN DAG. „Biblían og kirkjan hafa verið stærstu ásteytingarsteinarnir á leið kvenna til frelsis.“ Elizabeth Cady Stanton barðist fyrir kvenfrelsi í Bandaríkjunum. Á þessum degi árið 1982 slepptu pólsk yfirvöld Lech Walesa, leiðtoga hinnar útlægu hreyfingar Samstöðu, úr haldi eftir ellefu mánaða prísund. Aðeins tveimur dögum áður hafði lögregla notað táragas og vatns- sprautur til að kveða niður mótmæli stuðningsmanna Samstöðu í Varsjá og öðrum pólskum borgum. Walesa var ákaft fagnað þegar hann var látinn laus en hann hafði verið handtekinn 13. desember árið áður þegar herlög voru sett í landinu. Flokkur hans var samt sem áður bannaður áfram og fékk ekki leyfi til að starfa á ný fyrr en árið 1989. Walesa hlaut friðarverðlaun Nóbels árið 1983 en þorði ekki að fara úr landi af ótta við að fá ekki að snúa heim. Verðlaunin urðu þó til að auka stuðning við Samstöðu en ríkjandi stjórn varð æ óvinsælli meðal íbúa landsins. Árið 1990 var Samstaða komin í ríkisstjórn og Walesa var kosinn forseti Póllands en því embætti gegndi hann til ársins 1995. ÞETTA GERÐIST > 12. NÓVEMBER 1982 Lech Walesa sleppt úr haldi LECH WALESA. MERKISATBURÐIR 1927 Leon Trotsky er vísað úr Kommúnistaflokknum í Sovétríkjunum. 1944 Bretar sökkva þýska her- skipinu Tirpitz þar sem það liggur við akkeri í norskum firði. 1954 Ellis-eyja, aðal innflytjenda skráningarstöð Bandaríkj- anna í 62 ár, lokar. 1967 Síðustu tíu íbúarnir flytja úr Flatey á Skjálfanda. Nokkr- um árum áður bjuggu þar um hundrað manns. 1974 Þórbergur Þórðarson rithöf- undur andast 85 ára. 1980 Geimskipið Voyager 1, tekur fyrstu nærmyndirnar af Satúrnusi. 1991 Gjaldþrotaskipta er óskað fyrir Íslenska stálfélagið hf. ANDLÁT Ingibjörg Þórólfsdóttir, Voga- tungu 35, Kópavogi, andaðist á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð, miðvikudaginn 9. nóvember. Kristine Karoline Jónsdóttir, Veghúsum 31, Reykjavík, andaðist á heimili sínu miðvikudaginn 9. nóvember. JARÐARFARIR 11.00 Geir Dalmann Jónsson, Dalsmynni, Norðurárdal, verður jarðsunginn frá Hvammskirkju. 11.00 Sverrir Steindórsson, Grundartjörn 14, Selfossi, verður jarðsunginn frá Selfosskirkju. 13.00 Sigríður Jónsdóttir frá Stóruvöllum, Bárðardal, síðast til heimilis að Ási í Hveragerði, verður jarðsungin frá Hveragerð- iskirkju. 13.00 Skúli Jónsson bóndi á Selalæk, Rangárvöllum, verður jarðsunginn frá Keldnakirkju. 13.30 Ásgerður Theodóra Jónsdóttir, Hrísholti 12, Selfossi, verður jarðsungin frá Selfosskirkju. 14.00 Helga Karítas Rögnvalds- dóttir, Sundstræti 25a, Ísafirði, verður jarðsungin frá Ísafjarðarkirkju. 14.00 Hermann Búason, Dvalar- heimili aldraðra, Borgarnesi, verður jarðsunginn frá Borgarneskirkju. 14.00 Óli Sveinbjörn Júlíus- son, verður jarðsunginn frá Hafnarkirkju, Höfn í Hornafirði. Fyrir fjörtíu árum var Guð- laugur Bergmann, umboðs- maður hljómsveitar Lúdó og Stefáns, að leita að ungu fólki sem vildi skemmta ungu fólki. Þá voru haldnir unglingadansleikir í Lídó, Bítlarnir að verða vinsælir og allt í einu urðu ungling- ar sérstakur þjóðflokkur. Það var um þetta leyti sem Guðlaugur uppgötvaði hina sextán ára Þuríði Sigurðar- dóttur sem síðar varð ein ástsælasta dægurlagasöng- kona þjóðarinnar. „Guðlaugur var í hand- bolta með bróður mínum og nefndi við hann hvort hann vildi koma fram. Það þótti Ævari bróður mínum fráleitt og benti því á mig,“ segir Þuríður þegar hún minnist upphafs ferils síns. Þau systkin voru börn Sig- urðar Ólafssonar söngvara og því þótti sjálfsagt að þau gætu sungið. Þuríður var nú heldur treg til en Guð- laugur fékk hana þó til að mæta á æfingu í Þórskaffi þar sem hún tók eitt lag með hljómsveitinni. „Ég ætlaði að láta þar við sitja, því mér leið ekkert rosalega vel með þetta og var bara feimin,“ segir Þuríður en þá var of seint að hætta við því Guðlaugur hafði þá þegar auglýst hana sem nýja söng- konu þann örlagaríka dag, 13. nóvember 1965. Þuríður minnist þess að hún hafi ekki átt nein föt til að syngja í, en þemað var Sonny og Cher. „Cher var sérkennilega klædd í þröngum buxum með útvíðum skálmum, sem var tíska sem varla var komin til landsins og fékkst ekki í verslunum,“ minnist Þuríður en hún dó þó ekki ráðalaus. „Ég fór í fata- skápinn, tók sparikjólinn hennar mömmu og klippti hann niður í svona búning,“ segir Þuríður og skellir upp úr, en móðir hennar fyrir- gaf henni þó athæfið. Þuríður segist í eðli sínu vera feimin og því alls ekki sjálfgefið að hún yrði lang- líf í sviðsljósinu. Eitt leiddi þó af öðru og Svavar Gests hafði samband við hana og vildi láta hana syngja inn á hljómplötu og Þuríður lét til leiðast. „Ég var eina stelpan og datt inn í þetta karlasam- félag í hljómsveit Magn- úsar Ingimarssonar og fór að syngja fyrir fólk sem var mun eldra en ég,“ segir Þuríður sem hafði ekki einu sinni aldur til að vera inni á ballstöðunum. Hún segir reynsluna þó ekki hafa verið skemmandi á neinn hátt fyrir hana sem ungl- ing enda hafi strákarnir í hljómsveitinni komið fram við hana sem slíkan. „Þegar við vorum búin að spila úti á landi var ég kysst góða nótt, meðan þeir fóru kannski í partí,“ segir hún hlæjandi og grunar að faðir hennar hafi haft þar einhver áhrif. Þuríður söng með ýmsum hljómsveitum á næstu árum en það var þó alltaf draumur hennar að gerast myndlistamaður og var það upphaflegt markmið hennar með því að ráða sig með hljómsveit að spila öll kvöld að geta safnað fyrir námi í myndlistarskólan- um. Draumurinn rættist og útskrifaðist Þuríður með BA gráðu í myndlist árið 2001. Í fyrra var hún útnefnd bæj- arlistamaður Garðabæjar. „Þetta var mikill heiður og mig langaði að borga fyrir mig,“ segir Þuríður sem fékk þá hugmynd að gera það með tónlist. Þuríður heldur þrenna tónleika á næstunni þar sem hún rifj- ar upp dægurlög sem hún hefur sungið á ferli sínum. Lög eins og Ég ann þér enn, og Ég á mig sjálf, sem er einnig heiti tónleikaraðar- innar. Fyrstu tónleikarnir verða á Hótel Geysi í kvöld, á Garðatorgi fimmtudaginn 17. nóvember og í Salnum, Kópavogi sunnudaginn 20. nóvember, en efnisskráin á tónleikunum verður ekki öll sú sama. ■ ÞURÍÐUR SIGURÐARDÓTTIR Á FJÖRUTÍU ÁRA SÖNGAFMÆLI: Klippti sparikjól mömmu í Sonny og Cher-búning FEIMIN AÐ EÐLISFARI Það var aldrei ætlun Þuríðar að gerast söngkona enda leið henni ekki vel á sviði til að byrja með. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM SPILAÐ Á RÖÐLI Þuríður syngur með hljómsveit Magnúsar Ingimarssonar. Í kvöld eru fyrstu tónleikar af þremur þar sem hún rifjar upp dægurlög sem hún hefur sungið á ferli sínum. 1840 Auguste Rodin myndhöggvari. 1866 Sun Yat-Sen, kínverskur uppreisnarleiðtogi. 1929 Grace Kelly leikkona. FÆDDUST ÞENNAN DAG BEÐIÐ Í KATMANDÚ Hindúar biðja í ánni Bagmati á Chhat-hátíðinni í Katmandú í Nepal. AP AFMÆLI Samúel Örn Erlingsson sjón- varpsmaður er 46 ára. Sigurlaug Margrét Jónasdóttir útvarps- kona er 42 ára. Arnar Gauti Sverr- isson sjónvarps- maður er 34 ára. www.steinsmidjan.is Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Sigríður Jósefsdóttir Hringbraut 50, (áður Tómasarhaga 44) Reykjavík, andaðist á hjúkrunarheimilinu Grund miðvikudaginn 9. nóvember. Útför hennar verður gerð frá Eyvindarhólakirkju, Austur-Eyjafjöllum, og verður auglýst síðar. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.