Fréttablaðið - 12.11.2005, Síða 34

Fréttablaðið - 12.11.2005, Síða 34
 12. nóvember 2005 LAUGARDAGUR34 Esi Edugyan var stödd í bóka-búð í Viktoríuborg í Kan-ada árið 1999 þegar hún dró bók af handahófi fram úr hillunni. Bókin var Sjálfstætt fólk eftir Hall- dór Laxness, í enskri þýðingu J.A. Thompson. „Ég byrjaði að lesa þarna í búð- inni og langaði um leið að kaupa bókina og heimsækja Ísland,“ segir Esi, sem var tilnefnd til Hurston/ Wright Legacy verðlaunanna, sem afhent voru í New York fyrr í þessum mánuði, fyrir bók sína The Second Life of Samuel Tyne. Verðlaunin veita rithöfundar af afrískum uppruna hver öðrum. Bókin kom út hjá Knopf Can- ada forlaginu vorið 2004 og hlaut lofsamlega dóma. Síðan hefur hún komið út í Englandi og Bandaríkj- unum og nú síðast í Hollandi. Esi, sem nú er 28 ára, er stödd á Íslandi til að ljúka við næstu bók sína en hún gerist að hluta til hér á landi. Henni var úthlutuð fimm vikna dvöl á Skriðuklaustri en þar er lögð áhersla á að fá útlendinga til rit- og fræðistarfa. Kanadískar hefðir og afrískir siðir Foreldrar Esi eru báðir frá Gana en Esi fæddist og ólst upp í kúreka- borginni Calgary í Alberta-fylki í Kanada. „Ég ólst upp við skemmti- lega blöndu af kanadískum hefðum og afrískum siðum. Við borðuðum til dæmis mikið af afrískum mat og foreldrar mínir tilheyrðu sam- heldnum afrískum vinahópi,“ segir Esi, sem er yngst þriggja systkina. Eldri systkini hennar fæddust í Bandaríkjunum. „Þó foreldrar mínir séu báðir frá Gana kynntust þeir í San Franc- isco þar sem faðir minn var að ljúka meistaranámi í verkfræði og móðir mín var við hjúkrunarnám. Pabbi hafði heillast af Kanada svo þau fluttu þangað skömmu áður en ég fæddist,“ segir Esi. Sem barn las hún mikið og var sískrifandi og sinnti þessum áhuga- málum sínum af slíkum krafti að móður hennar leist vart á blikuna. „Mamma var búin að fá nóg af því að sjá mig sífellt með nefið niðri í bókunum,“ segir Esi og hlær. Hún lét hins vegar áhyggj- ur móður sinnir ekki á sig fá og lærði ritlist við Viktoríuháskóla í Kanada. Hún útskrifaðist svo með meistaragráðu í ritlist frá Johns Hopkins-háskólanum í Baltimore í Bandaríkjunum og kennir nú ritlist við Viktoríuháskóla. Hún tók sér þó frí frá kennslu í vetur og er eins og fyrr sagði að leggja lokahönd á annað handrit sitt á Skriðuklaustri. Jafnframt vonast hún til að geta byrjað að skrifa þriðju bókina sína þar. Fyrsta bók Esi, The Second Life of Samuel Tyne, fjallar um erfið- leika blökkumanns sem flytur frá Gana til Kanada. Esi byggir hana á reynslu foreldra sinna og annarra Afríkubúa sem fluttust frá Afríku til Vesturheims í byrjun síðustu aldar fram á miðja öld. Sagan gerist að miklum hluta til í kanadískum bæ sem blökkumenn byggðu í upphafi síðustu aldar en hvítir eru meirihluti íbúa þegar sagan gerist. „Ég skrifaði bókina árið eftir að ég lauk meistaranáminu en þá vann ég í lagadeild kanadísku rík- isstjórnarinnar í Toronto. Þetta var alveg hræðilegt starf og ég tók mér iðulega veikindafrí til þess að skrifa en mætti síðan í staðinn veik í vinnuna,“ segir hún og hlær dátt. Heillandi landslag á Íslandi Esi dvelur á þremur listamannsaf- drepum þennan vetur sem hún tekur sér frí frá kennslu. Í maí dvaldi hún í mánuð í kastala í Skotlandi og í mars fer hún til sex mánaða dval- ar í kastala skammt frá Stuttgart í Sjálfstætt fólk dró hana til Íslands Kanadíski rithöfundurinn Esi Edugyan var 21 árs þegar hún rakst af tilviljun á Sjálfstætt fólk og ákvað samstundis að hún yrði að fara til Íslands. Nú situr hún á Skriðuklaustri og lýkur við aðra bók sína, sem gerist að hluta í Reykjavík. Sigrún María Kristinsdóttir hitti Esi og forvitnaðist um uppruna hennar, ritstörfin og Íslandsáhugann. ESI EDUGYAN Kanadíski rithöfundurinn Esi Edugyan heillaðist af Íslandi þegar hún las Sjálfstætt fólk eftir Halldór Laxness.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.