Fréttablaðið - 12.11.2005, Side 36

Fréttablaðið - 12.11.2005, Side 36
 12. nóvember 2005 LAUGARDAGUR36 Nýverið lauk þriggja daga opinberri heimsókn Hu Jintao, forseta alþýðulýð- veldisins Kína, til Norður-Kóreu. Var þetta fyrsta heimsókn Hu til landsins eftir að hann tók við embætti. Yfirlýstur tilgangur heim- sóknarinnar var að innsigla vin- áttu hinna gömlu bandamanna og kepptust þeir Kim Jong-il, forseti Norður-Kóreu, við að mæra sam- félags- og efnahagshorfur beggja ríkja við hátíðlegar athafnir. Stjórnmálaskýrendur bæði austan hafs og vestan eru hins vegar sammála um að meg- intilgangur heimsóknarinnar hafi verið undirbúningur fyr- irhugaðra kjarnorkuviðræðna ríkjanna sex, Bandaríkja Norð- ur-Ameríku, Japans, Kína, Norður-Kóreu, Suður-Kóreu og Rússlands, sem nú standa yfir í Peking. Þá hefur heimsóknin hleypt nýju lífi í samsæriskenn- ingar um samband Kína og Norð- ur-Kóreu. Kínverska ríkisfréttastofan hélt því til dæmis fram að mark- mið Hu með heimsókninni hefði ekki einungis verið að tryggja að Norður-Kóreumenn mættu til viðræðnanna heldur hefði ferðin verið farin til að fá ríkisstjórn- ina í Pjongjang til að standa við samning þann sem Kínverjar lögðu fram og undirritaður var í Peking í september síðastliðnum. Sá samningur er almennt talinn marka þáttaskil varðandi kjarn- orkuuppbyggingu á Kóreuskag- anum. Septembersamningur við Norður- Kóreu Með samkomulaginu féllust Norður-Kóreumenn meðal ann- ars á að hverfa frá áformum sínum um smíði kjarnorkuvopna, láta af hendi þau kjarnorkuvopn sem nú þegar eru til staðar í landinu og heimila eftirlitsmönn- um frá Alþjóðakjarnorkumála- stofnuninni að koma til lands- ins í skiptum fyrir ýmiss konar efnahags- og þróunaraðstoð frá Bandaríkjunum og Japan. Suður-Kóreumenn héldu því fram að engin kjarnorkuvopn væru til staðar innan þeirra landamæra og Bandaríkjamenn sögðust ekki hafa uppi nein áform um að ráðast inn í Norður- Kóreu. Eftir undirritun samningsins hefur ríkisstjórnin í Pjongjang hins vegar gefið frá sér ýmsar yfirlýsingar sem ekki þykja lofa góðu um áframhaldandi sam- starf. Viðskiptahagsmunir ýta undir stöðugleika Ljóst er að samband Kínverja og Norður-Kóreumanna er flóknara í dag en það var á árum áður, enda hafa þessar þjóðir verið að þróast hvor í sína áttina. Valdhaf- ar í Peking hafa verið í klemmu um hvort þeim beri að styðja við bakið á bandamönnum sínum eða tryggja frið og stöðugleika á Kór- euskaganum. Með aukinni alþjóð- legri samvinnu hafa Kínverjar viljað sýna fulla ábyrgð í utanrík- ismálum og hafa því verið treg- ari til að taka undir þær kröfur Norður-Kóreumanna sem styggt geta vesturveldin auk þess sem viðskiptahagsmunir kalla á vin- samlegri samskipti við Bandarík- in og Suður-Kóreu. Ýmis ummerki eru þó um að bræðralag þjóðanna vari eitthvað áfram því Kínverjar eru eftir sem áður mikilvægustu bandamenn Norður-Kóreu. Peking er í raun eina höfuðborgin þar sem Kim Jong-il getur treyst á pólitískan stuðning auk þess sem mikilvæg efnahagsleg aðstoð í formi mat- vælagjafa, orku og tækniaðstoð- ar við atvinnuuppbyggingu berst frá Kína. Norður-Kóreumenn eru á hinn bóginn landfræðilega mik- ilvægir bandamenn ríkisstjórn- arinnar í Peking þar sem löndin liggja saman að hluta. Pólistísk- ur og efnahagslegur stöðugleiki í Norður-Kóreu þjónar því beinum hagsmunum Kínverja þar sem efnahagslegt hrun og hugsanlegt fall kommúnistastjórnarinnar í Pjongjang gæti svipt Kínverja þeirri landfræðilegu hindrun sem Norður-Kórea gegnir gagnvart hernaðarlegum uppgangi Banda- ríkjanna í Suðaustur-Asíu, en hernaðarsamvinna Bandaríkja- manna og Japana hefur eflst auk þess sem Bandaríkjamenn hafa talsvert herlið í Suður-Kóreu. Forgangsverkefni að koma í veg fyrir vígbúnaðarkapphlaup Flestum þeim sem tjá sig um málið í Kína ber saman um að það sé forgangsverkefni í kínverskri utanríkisstefnu að halda Kóreu- skaganum kjarnorkuvopnalaus- um þó ekki sé nema til að koma í veg fyrir hugsanlegt vígbúnaðar- kapplaup í álfunni þar sem Suður- Kórea, Japan og jafnvel Taívan færu að keppast við að koma sér upp kjarnorkuvopnum. Hins vegar er einnig mikilvægt fyrir þá að halda í mikilvægan bandamann í norðaustri, sem óneit- anlega flækir málið. Það verður því fróðlegt að sjá hvernig Kín- verjum tekst upp í yfirstandandi viðræðum og hvort þeim tekst að fá alla samningsaðila til að halda áfram á þeirri braut sem lagt var upp með í septembersamningnum, sem bersýnlega þjónar kínversk- um hagsmunum best. Byggt á fréttum í Kína og frétta- skýringum. Sveinn Kjartan Einarsson. Kína og kjarnorkuvandi á Kóreuskaganum Þessa dagana standa yfir í Peking viðræður um kjarnorkumál á Kóreuskaganum. Þótt öll spjót beinist nú að Norður-Kóreu eru Kínverjar einnig í flókinni stöðu þar sem þeir freista þess að fá deilendur til að sættast á tímamótasáttmála sem undirritaður var í byrjun september. Á sama tíma reynir á áratugagamalt vináttusamband þeirra við ríkisstjórnina í Pjongjang. HÖFÐINGJARNIR HEILSAST Hu Jintao, forseti Kína (til vinstri), heilsaði starfsbróður sínum í Norður-Kóreu, Kim Jong-il, með virktum við komuna til Pjongjang í októberlok. Staða Kínverja með tilliti til kjarnorkumála á Kóreuskaga er allflókin. NORDIC PHOTOS/AFP LOKASÝNING OKTÓBERBÍÓFEST OG ALHEIMSFRUMSÝNING HOSTEL Í KVÖLD. AÐ VIÐSTÖDDUM QUENTIN TARANTINO, ELI ROTH, DEREK RICHARDSON, BARBARA NEDELJAKOVA, CHRIS BRIGGS OG EYÞÓRI GUÐJÓNSSYNI. UPPSELT. Í Háskólabíói og Regnboga 26. október - 14. nóvember „Aukasýning? Meira svona plebbasýning.“ - jökull ii AUKASÝNINGARNAR Á HOSTEL ERU Á MORGUN, SUNNUDAG OG Á MÁNUDAG, KL. 20:00 Í REGNBOGANUM. ÖRFÁ SÆTI LAUS.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.