Fréttablaðið - 12.11.2005, Side 39

Fréttablaðið - 12.11.2005, Side 39
LAUGARDAGUR 12. nóvember 2005 3 Í desember verður kynntur nýr L200 pallbíll frá Mitsubishi. Við hönnun hans og smíði nýja l200 bílsins voru kröfur Dakar-ralls- ins hafðar til hliðsjónar og til að undirstrika það sækir bíllinn útlit til Pajero Evo sem hefur unnið Dakar-rallið. Miklu var tilkostað við að gera bílinn álíka þægilegan og fólksbíl í akstri og umgengni en þó án þess að slaka á kröfum sem gerðar eru til pallbíla sem vinnuþjarka. Að innan gefur hann stórum fólksbíl- um lítið eftir í búnaði og þægindum, til dæmis er bakhalli á aftursæti meiri en gengur og gerist í pall- bílum. Þá hefur farþegarými verið stækkað, beygjuradíus minnkaður og í bílnum má finna ýmsan stöð- ugleika- og öryggisbúnað sem ekki er algengur í pallbílum. Þetta er fjórða kynslóð þessa bíls sem hefur haft mjög sterka stöðu í Evrópu undanfarna áratugi. Stærðin hentar vel fyrir evrópskar aðstæður; þröngar götur, stórborg- ir og þröng stæði, enda var horft sérstaklega til þarfa Evrópubúa við hönnun bílsins. Gírkassinn í bílnum er mjög lipur og þegar bíllinn er á ferð þarf ekki að kúpla til að skipta um gíra. Pallurinn hefur fengið andlitslyftingu svo um munar og er ekki lengur bara kassi aftan á bílnum, heldur fylgir hann hönn- unarlínum hans og tekur þátt í að skapa álitlegt heildarútlit. Eftir sem áður hentar bíllinn vel sem vinnubíll, til dæmis er burðarget- an heilt tonn og pallurinn rúmar Euro-vörubretti, hvort sem um er að ræða Single Cab, Club Cab eða Double Cab útgáfu bílsins. Mótorinn er Common Rail 2,5 l díselknúinn með beinni innspýt- ingu og uppfyllir kröfur Euro-4 staðalsins um mengun, sá eini sem er í þessum flokki bíla, auk þess að vera sérlega eyðslugrannur. Bíll- inn fær 4 stjörnur í Euro-NCAP árekstrarprófun. Nýr L200 frá Mitsubishi verður í boði hérlendis fyrri part næsta árs. ■ Þegar ég var að læra á bíl átti öku- kennarinn minn það til að missa út úr sér óborganlega frasa. Þegar ég spurði hvort mætti taka U-beygju á ákveðnum stað svaraði hann: „Ef það er ekki bannað, þá má það.“ Þetta hafa reynst mér góð visku- korn. Þegar ég keyrði í Reykjavík í fyrsta sinn og drap á bílnum á rauðu ljósi, mitt á milli akreina, andvarp- aði hann þungan og sagði alvarleg- ur: „Einar...“ Enda var þetta í þrið- ja skipti þann daginn. Þegar hann sýndi mér í vélarhúsið benti hann á viftureimina og sagði: „Hana geta allir skipt um. Tja, nema konur.“ Ég vissi reyndar betur en glotti samt. Já, hann var oft spaugilegur, karlinn. Þau orð sem ég hef oftast minnst voru samt sögð í framhjá- hlaupi þegar hann var að útskýra eitthvað annað fyrir mér. „Reyndu bara að keyra alltaf þannig að far- þegunum líði vel.“ Ég reyndi að fara að þessum ráðum og hægði á mér fyrir allar beygjur, gaf hægt inn og forðaðist að bremsa harka- lega. Ekki stóð á viðbrögðunum. Fyrstu farþegarnir höfðu á orði hvað bílstjórinn væri nú góður öku- maður og brostu út að eyrum. Og ég brosti líka. Þremur árekstrum seinna fannst fólki reyndar ekki ástæða til að halda hrósinu áfram en ég reyni hvað ég get að minnast ráðanna góðu þegar ég get. Á síðustu vikum hef ég oft velt því fyrir mér hvern- ig ég mundi koma orðum að þessu góða veganesti ef ég væri ökukenn- ari í dag. Hvernig ég gæti reynt að hvetja unga ökumenn til að hræða ekki líftóruna úr farþegum sínum og öðrum í umferðinni og gera þá að deluxe-ökumönnum. Í þeirri von að þeim gengi betur en undirrituðum að taka fyrstu skrefin í umferðinni mundi setn- ingin líklega hljóða eitthvað á þessa leið: Reyndu bara að keyra alltaf þannig að bíllinn á undan þér sé að fara að nauðhemla vegna þess að bílstjórinn er að leita að húsnúmeri, sá á næstu akrein sé að bíða eftir að komast inn í hliðina á þér, bensínt- ankurinn sé tómur og þú keyrir á gufunni einni saman, bremsurnar séu svikular og þú sért sá eini sem man að minnsta kosti óljóst hvern- ig umferðarlögin eru. Reynslan kennir mér nefnilega að hvort sem maður er að reyna að vera deluxe eða ekki, þá þarf maður að horfa í kringum sig. ■ Deluxe ökumaður? Áfram veginn Einar Elí Magnússon kemst leiðar sinnar Þótt hann hafi færst nær fólksbílum í þægindum og öryggisbúnaði er L200 ennþá vinnu- þjarkur. Club Cab og Double Cab útgáfurnar rúma Euro-vörubretti á pallinum líkt og Single Cab útgáfan. Þægilegur pallbíll til allra nota 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.