Fréttablaðið - 12.11.2005, Qupperneq 41
LAUGARDAGUR 12. nóvember 2005 5
Um helgina stóðu yfir vaxtalaus-
ir dagar hjá Bílalandi B&L. Þetta
var í annað skipti á þessu ári sem
kaupendum gefst kostur á að
kaupa notaða bíla á vaxtalausum
lánum og án lántökukostnaðar.
Samkvæmt Helgu Guðrúnu
Jónsdóttur, kynningarstjóra B&L,
seldust 150 bílar um helgina. „Við
bjuggumst við að þeir yrðu um 120
en salan fór fram úr okkar vonum,
enda henta svona viðskipti mjög
vel fyrir ákveðinn kúnnahóp.“
Um venjulega helgi seljast allt frá
fimm og upp í tuttugu bílar hjá
Bílalandi svo að ljóst er að boðið
hefur höfðað til margra.
„Frekar en að fá bíl á venjulegu
tilboði og taka lán með vöxtum,
sem geta svo endað í misháum
greiðslum, er boðið upp á fastar
afborganir og bíllinn er seldur
á venjulegu verði. Með þessum
hætti geta viðskiptin orðið hag-
stæðari fyrir kaupandann þó að
verðið á afsalinu sé hærra,“ segir
Helga Guðrún.
„Framboð okkar af notuðum
bílum endurspeglast af sölu nýrra
bíla. Sala þeirra hefur verið mjög
mikil og því erum við með marga
uppítökubíla á sölu. Gæðastaðall
okkar miðar við að bílar stoppi
helst ekki lengur en þrjá mánuði
á planinu hjá okkur, það færi illa
með þá að standa mikið lengur
óhreyfðir. Þess vegna bregðum
við á það ráð einu sinni á ári að
bjóða vaxtalaus lán en í ár hefur
selst svo mikið að við þurftum að
endurtaka leikinn,“ segir Helga
Guðrún. ■
Vaxtalaus lán
heilluðu marga
150 bílar seldust um síðustu
helgi á vaxtalausum dögum
Bílalands B&L.
Í vefversluninni Varahlutir.is er
úrval varahluta. Þórður Braga-
son eigandi heldur verði lágu
með því að hafa umsvifin lítil.
Varahlutir í bíla fást í miklu úrvali í
netversluninni Varahlutir.is sem er í
eigu Þórðar Bragasonar. „Mér hefur
tekist að lækka verð varahluta með
því að hafa litla umsýslu í kringum
verslunina,“ segir Þórður sem selur
algengustu varahluti í fjölmargar
bílategundir í verslun sinni.
Hún hefur starfað um hríð og
segir Þórður að mjög vel gangi.
Hann útskýrir að vefurinn sé mjög
nákvæmur, viðskiptavinir velja
einfaldlega bíltegund og gerð og sjá
um leið hvaða hlutir eru til. Myndir
eru af öllum gerðum bíla sem í eru
seldir varahlutir og af hlutunum
sjálfum sömuleiðis.
„Ég tek eftir því að pantanir ber-
ast frá sumum verkstæðum eftir
að afgreiðslutíma þeirra lýkur. Þau
eru farin að nota vefinn til að panta
og þurfa því ekki að eyða tíma í
símtalið.“
Þórður sjálfur hefur margra
ára reynslu úr bílapartasölu. Langt
er síðan áhugi á tölvum kviknaði
og eftir að hafa spreytt sig í tölvu-
geiranum og lokið rekstrar- og
viðskiptanámi í Endurmenntun
Háskóla Íslands sameinaði hann
þessa ólíku reynslu og opnaði vef-
verslunina.
Verslunin er til húsa í Bæjar-
hrauni 6 í Hafnarfirði og áhuga-
samir geta kynnt sér málin betur á
veffanginu www.varahlutir.is. ■
Vefverslun með varahluti
Þórður Bragason hjá Varahlutum.is. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Framboð á notuðum bílum hjá umboðum
endurspeglast af sölu nýrra bíla.
Löður tók nýverið í notkun nýjan
vélbúnað í bílaþvottastöð sinni í
Bæjarlind í Kópavogi. Stöðin er búin
nýrri gerð af silkimjúkum svamp-
burstum. Þeir eru gerðir úr sérstöku
svampefni sem snertir bílinn mjög
mjúklega í sápulöðrinu og minnkar
þannig hugsanlegar skemmdir á
yfirborðinu.
Einnig er mögulegt að þvo bíla í
stöðinni án burstanna og eru þeir þá
meðhöndlaðir sérstaklega af starfs-
mönnum Löðurs í forþvottinum.
Nýja stöðin afkastar um 60 bílum á
klukkutíma og geta fjórir bílar verið í
stöðinni í einu.
bílaþvottur }
Silkimjúkir burstar
NÝR VÉLBÚNAÐUR LÖÐURS KEMUR
SÉRSTAKLEGA MJÚKLEGA VIÐ
BÍLINN.
1 dál ur 9.9.2005 15:19 Page 6