Fréttablaðið - 12.11.2005, Síða 44
[ ]
Mæðgur, gullsmiður og textíl-
hönnuður, reka saman verslun-
ina Hún og hún á Skólavörðu-
stíg. Þar selja þær hönnun sína.
Sif Ægisdóttir gullsmiður hefur
rekið skartgripaverslunina Hún og
hún á Skólavörðustígnum í þrjú ár.
Móðir hennar sem er textílhönnuð-
ur rekur verslunina með henni og
þær mæðgur hafa unnið skartgripi
saman.
Sif lærði gullsmíði í Finnlandi
og kláraði námið 1996. „Ég byrj-
aði reyndar á því að læra skúlptúr
í Myndlista- og handíðaskólanum
áður en ég fór í gullsmíði,“ segir Sif.
Fyrst eftir að hún kláraði gullsmíða-
námið vann hún við aðra hluti en
var með vinnustofu og seldi skart-
gripina sína í verslunum hjá öðrum.
Það kom þó að því að Sif ákvað að
opna verslun sjálf. „Við mamma
rekum verslunina tvær saman. Hún
er textílhönnuður og hefur verið
að vinna svolítið úr hrosshári og
ull. Við höfum líka verið að vinna
skartgripi saman,“ segir hún.
Sif segir að þótt hún hafi lært
skúlptúr líka sé hún aðallega að
gera skartgripi. „Ég fékk að vísu
það verkefni um daginn að gera
einn lítinn skúlptúr en ég hef ekki
gert mikið af skúlptúrum síðan
ég var að læra það. Ég hef að vísu
stundum blandað þessu aðeins
saman og lokaverkefnið mitt í
skólanum í Finnlandi voru hringar
sem voru eins og skúlptúrar þegar
þeir voru ekki í notkun og gátu þá
staðið sjálfir.“
Sif gerir aðallega skartgripi út
frá eigin hugmyndum en segir að
það komi þó fyrir að fólk sé með
sérstakar óskir sem hún reyni að
uppfylla. „Svo hef ég verið með
barnaskartgripi sem ég smíða
eftir barnateikningum. Ég byrjaði
að smíða skartgripi eftir teikn-
ingum minna eigin barna og svo
hefur fólk verið að koma með sínar
teikningar og ég hef smíðað eftir
þeim líka. Þetta eru aðallega háls-
men en ég hef líka gert nælur og
hringa.“
Sif segir að flestir skartgrip-
irnir sem hún hannar séu einstak-
ir en hún hefur þó aðeins verið að
gera skartgripalínur. Hún segir að
verslunin hafi gengið mjög vel frá
því hún opnaði og hún er ánægð í
starfinu. „Mér finnst mjög gaman
að skapa og fá útrás fyrir nýjar
hugmyndir,“ segir Sif.
emilia@frettabladid.is
Skartgripir og skúlptúrar
Mæðgurnar Sif Ægisdóttir gullsmiður og Guðrún Marinósdóttir textílhönnuður reka verslunina Hún og hún á Skólavörðustíg.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Hálsmen og dýranæla, hann-
að eftir barnateikningu.
Hálsmen, hannað eftir
barnateikningu
Hálsmen og næla með andliti,
hannað eftir barnateikningu.
Förðun við öll
tækifæri og
ýmis námskeið
Full búð af Madina snyrtivörum
Erum flutt á Laugaveg 30a
Laugaveg 30a
Lesendur „Allts“ er fólk með áhuga á efni
hverrar opnu og eru auglýsingarnar eðlilegur
hluti lesefnisins og ein af ástæðum þess að
þeir staldra við.
Það er með öðrum orðum, vel skilgreindur og
áhugasamur hópur, sem skoðar t.d. þessa
auglýsingu.
Grunnhugmyndin á bak við „Allt“ er að flokka
auglýsingar og staðsetja í lesefni sem vekur
áhuga þeirra sem auglýsandinn vill ná til.
„Allt“ er löngu tímabær og áhugaverður valkostur
á íslenskum auglýsingamarkaði.
...um hús og heimili
á mánudögum í Fréttablaðinu.
Hafið samband við auglýsingadeild „Allts“
Síminn er 550-5000
markvissar auglýsingar
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
L†
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
E
H
F.
/S
IA
.I
S
-
PR
E
28
02
3
0
4/
20
05
eru að komast aftur í tísku. Fyrir utan að vera flottar eru
þær frábærar til þess að halda hárinu frá andlitinu.
Hárspangir
...um nám
á miðvíkudögum í Fréttablaðinu.
Hafið samband við auglýsingadeild „Allts“
Síminn er 550-5000
markvissar auglýsingar
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
L†
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
E
H
F.
/S
IA
.I
S
-
PR
E
28
02
3
0
4/
20
05