Fréttablaðið - 12.11.2005, Side 80
12. nóvember 2005 LAUGARDAGUR56
Ingi Þór Jónsson, sendiherra
Alheimsleika samkynhneigðra í
Evrópu sem verða haldnir í Kan-
ada á næsta ári, er staddur hér á
landi á vegum Samtakanna 78.
„Þeir buðu mér að kynna þau
verkefni sem ég er að gera erlend-
is varðandi íþróttir og minnihluta-
hópa í heiminum,“ segir Ingi Þór,
sem er búsettur í Manchester.
Forsvarsmönnum ÍSÍ hefur einnig
verið boðið á fundinn ásamt meðal
annars Guðlaugi Þór Þórðarsyni
alþingismanni.
Ingi Þór játar að það sé brjálað
að gera sem sendiherra Alheims-
samtakanna. „Ég var líka nýlega
valinn forseti heimssamtakanna
Proud Out Olympians, sem berj-
ast fyrir hómófóbíu í sporti um
allan heim, svo samkynhneigðir
hafi til dæmis sama rétt og aðrir í
sambandi við styrkveitingar.“
Ingi segist vera feginn að vera
kominn til Íslands, en hann hefur
verið búsettur erlendis í átján ár.
„Ég frestaði meira að segja París-
arferð til að koma hingað. Þetta er
miklu, miklu merkilegra verkefni
og meira spennandi.“
Hrafnhildur Gunnarsdóttir,
formaður Samtakanna 78, segir
það mjög gott að fá Inga til lands-
ins. „Ég var himinlifandi þegar ég
las þessa grein í Fréttablaðinu í
sumar um hann. Þess vegna ákvað
ég að biðja hann um að koma.
Hann er í stöðu sem er að vekja
athygli á þessum málum og okkur
þótti tilvalið að fá hann heim. Við
ætlum okkur næstu tvö árin að
breyta þessu seinasta vígi homm-
afóbíunnar,“ segir Hrafnhildur.
Á hún þar við það andrúmsloft
sem virðist vera ríkjandi innan
íþróttahreyfingarinnar gagnvart
samkynhneigðum og sérstaklega
þá hommum.
Hrafnhildur segir að það sé
ekki á stefnuskránni að stofna
íþróttafélag samkynhneigðra.
„Við viljum ekkert vera sér. Við
viljum fá að vera með hinum,
eins og þetta á að vera. Við erum
bara hluti af landslaginu,“ segir
hún.
Heim til hjálpar samtökum 78
INGI ÞÓR JÓNSSON Ingi Þór er háttsettur fulltrúi innan íþróttahreyfingar samkynhneigðra.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Cameron Diaz hefur lýst því yfir að bestu verðlaunin sem hún hafi
fengið séu þau sem hún fékk
fyrir að vinna ropkeppni.
Leikkonan tók þátt í
ropkeppni í sjónvarpinu.
„Ég vann einu sinni
Nickelodeon-ropkeppni
í litlum sjónvarpsþætti.
Ég gleypti heila dós
af Diet Coke áður en
ég fór á svið og svo
bara „rooop“. Ég held
að þetta séu bestu
verðlaunin sem ég hef
nokkurn tíma unnið,“
sagði leikkonan stolt.
Christina Aguilera er að plana brúðkaup-
ið sitt og Jason Bateman
sem haldið verður í næsta
mánuði. Söngkonan segir
að einungis nánir vinir og
fjölskylda verði viðstödd
athöfnina og að brúð-
kaupið verði alls ekki of
viðamikið. „Þetta verður
svona ekta helgar-
brúðkaup. Hvert
kvöld verður með
þema og ég held
þetta verði töfrum
þrungið allt saman,“ sagði
Christina ánægð.
Emma Bunton segist vera orðin of gömul til að klæðast mínípilsum. „Ég
ætla aldrei að klæðast mínípilsum aftur.
Ég hata tímaritin þar sem maður sér
myndir af einhverjum að stíga út úr bíl
og þeir hafa dregið hring utan um smá
appelsínuhúð sem
sést á myndinni.
Ég yrði miður mín
ef þetta kæmi
fyrir mig,“ sagði
hún. „Ég ætla
því að halda
mig við galla-
buxur núna.
Barnakryddið er
liðin tíð. Ég er
orðin of gömul
fyrir þessa litlu
búninga og mér
líður ekki vel í
þeim lengur.“
Pink segist myndu vilja táldraga
Kelly Osbourne.
Söngkonan, sem er
trúlofuð mótorhjóla-
töffaranum Carey
Hart, segist vera
pínu skotin í
dóttur Ozzy
Osbourne. „Ég
held að Kelly sé
gagnkynhneigð
en hún er samt
afar kynþokka-
full. Ég væri til í
að borða hana
upp til agna,“
sagði Pink.
Nýtt vefrit fór í loftið þann 19.
október síðastliðinn á slóðinni
www.rjominn.is og er um að ræða
íslenskt tónlistarvefrit þar sem
ungt fólk fjallar um hinar og þess-
ar plötur, tónleika og fleira. „Við
höfðum verið að ræða þetta okkar
á milli og áttuðum okkur á því að
þetta vantaði alveg og það kom
okkur í rauninni á óvart að svona
íslenskur tónlistarvefur væri í
rauninni ekki til,“ segir Stígur
Helgason, einn af tólf aðstandend-
um vefsins.
Nafnið Rjóminn vísar til þess
feitasta, þess sem flýtur ofan á og
þess allra besta en allir tíu aðstand-
endur vefsins eiga það sameiginlegt
að hafa brennandi áhuga á tónlist.
„Markmiðið með þessu verkefni er
að búa til einhvern vettvang á netinu
fyrir tónlistarumfjöllun á íslensku.
Síðan er alls ekkert einungis ætluð
fyrir fagfólk heldur bara almennt
fyrir Íslendinga sem vilja kynna
sér ýmiss konar tónlist.“
Að sögn Stígs er engin sér-
stök tónlistarstefna sem tekin
verður fyrir en óhjákvæmilega
miðast tónlistarumfjöllunin eitt-
hvað útfrá því á hvað pennarnir
hlusta. „Við erum svo í samstarfi
við verslanir og útgáfufyrir-
tæki eins og Skífuna, 12 Tóna og
Smekkleysu og fáum frá þeim
efni sem við fjöllum um.“ - bg
Rjóminn er það feitasta
RJÓMINN Nýtt tónlistarveftímarit er að finna á slóðinni www.rjominn.is. Þarna er að finna
daglega plötudóma, tónleikaumfjallanir og annað í sambandi við tónlist.