Fréttablaðið - 12.11.2005, Síða 83

Fréttablaðið - 12.11.2005, Síða 83
28. janúar 2005 FÖSTUDAGUR 83LAUGARDAGUR 12. nóvember 2005 59 fyrst þegar hann var nítján ára gamall og var í sveit í nokkrar vikur á Ingólfshvoli í nágrenni Selfoss. Þar fékk hann hug- myndina að hryllingsmyndinni Cabin Fever sem hann sló óvænt í gegn með árið 2002. Eli segir að hann hafi einnig gert Hostel undir sterkum íslenskum áhrif- um og hann hafi því látið eina aðalpersónuna vera Íslending. Eli kynntist Eyþóri, sem leikur íslenska stuðboltann Óla, þegar hann kom hingað að kynna Cabin Fever. Það fór vel á með þeim og hann fékk Eyþór til að leika Óla. „Við unnum persónuna í samein- ingu en gerðum hann enn klikk- aðari en Eyþór sjálfur er,“ segir Eli, sem hælir Eyþóri í hástert og segir það alltaf ánægjulegt þegar besti maðurinn sem hægt sé að hugsa sér í tiltekið hlut- verk sé einnig skemmtilegur og verði vinur manns. Tarantino heillaðist af Cabin Fever og hann hefur verið Eli innan handar síðan og segist afskaplega ánægður með að vera kominn með honum til Íslands. „Ég veit ýmislegt um Ísland en mest af því hef ég frá Hebu Þórisdóttur sem vann með mér við gerð Kill Bill. Ætli mig hafi ekki langað að koma hingað í svona tíu ár,“ segir Tarantino og rifjar svo upp Íslandstengingu sem hann laumaði inn í Kill Bill. „Heba gaf mér einhvern tíma flösku af Svarta dauða, þessum gamla góða með haukúpunni og hattinum. Þegar Michael Mad- sen kom í heimsókn til mín til að ræða persónu hans í Kill Bill bauð ég honum staup.“ Eftir að flaskan hafði gengið á milli þeirra dágóða stund stakk Mad- sen upp á því að persóna hans drykki íslenskan snafs í mynd- inni og það varð úr. „Ég lét hann líka segja það við Daryl Hannah að hann vildi fá milljón dollara fyrir Hattori Hanzo-sverðið sitt vegna þess að það mætti kaupa helling af íslenskum snafs fyrir þá upphæð. Þetta var svo klippt út úr myndinni.“ Tarantino sagðist aðspurður ekki leggja mikið upp úr því að framleiða bíómyndir. „Ég nenni sjaldan að framleiða. Ef ég er að gera myndir á annað borð vil ég leikstýra þeim. En af og til koma vinir mínir til mín með frábærar hugmyndir sem ég verð spenntur fyrir og þá er sjálfsagt mál að leggja fólki lið. Þá kem ég líka í þetta af fullum krafti. Mér finnst Hostel frábær mynd. Ég get að vísu ekki sagt það en hún er besta myndin sem ég hef séð á þessu ári.“ Tarant- ino bætir því svo við að hann sé orðinn tvísaga í þessu máli þar sem hann hafi marglýst því yfir í fjölmiðlum að Sin City sé besta mynd ársins. „Ég get auðvitað ekki sagt þetta þar sem ég teng- ist báðum þessum myndum en þetta er satt.“ Hostel er önnur kvikmynd Elis og sem fyrr heldur hann sig við hryllinginn þó hann skilji ekk- ert í því hvaðan óhugnanlegar hugmyndir hans séu sprottnar. „Ég átti góða æsku og foreldrar mínir eru frábærir. Ég varð ekki fyrir neinum áföllum. Ég held að ef ég hefði alist upp við ofbeldi og hrylling væri ég örugglega að gera rómantískar gamanmyndir. En þar sem ég ólst upp í öryggi bandarísks úthverfis dettur mér endalaust einhver viðbjóður í hug. Ég veit ekki hvaðan þetta kemur og hvers vegna þetta gerjast í kollinum á mér en ég held að eina leiðin til að losna við þetta sé að menga líf annarra og trufla svefn fólks með því að gera hryllingsmyndir.“ thorarinn@frettabladid.is Hey Baddi, þú fílar Star Wars er það ekki? Jú, ég á nokkur dót, allar myndirnar, 5 plaggöt, fer á allar ráðstefnurnar, beið í 3 daga eftir seinustu mynd klæddur sem Svarthöfði, kann allar myndirnar utan að og borgaði 300.000 krónur fyrir mold sem var notuð í gerð fyrstu myndarinnar. Og ÉG er á lausu!
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.