Fréttablaðið - 12.11.2005, Page 94
12. nóvember 2005 LAUGARDAGUR70
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
����������������
��������������������
�����������������������
��������������������������
���������
�����������������������������
��������������������
����������������������
�������������
Heiðarlegur matur. Veitingastaðir- hættið þessu skrau-
ti á diska og minimalisma. Bjóðið upp á kartöflumús,
kjöt og vínsósur. Og mikið af því.
Rokkabillí. Já gott fólk, takið
fram hvítu támjóu stígvélin og
skellið hressandi rokkabillí á
fóninn. Rokkabillí er hið nýja
rapp.
Brönsj. Hættið að bjóða fólk
í dinner, heldur hóið í stóra
sem smáa í almennilegan
sunnudagsbrönsj. Egg bene-
dikt,french toast, croissant, appelsínusafi og kampavín.
Sokkar yfir gallabuxur. Takið stígvélatískuna skrefi lengra
og hafið háa ullarsokka yfir þröngu buxunum. Hlýtt og
jafnvel ögn erótískt.
Sumarið er því miður búið. Takið
því eins og menn og klæðið ykkur
eftir veðri. Verum jákvæð gagnvart
íslensku veðurfari.
Skærir litir. Þetta tilheyrði kannski
sumrinu, en geymið túrkislituðu bol-
ina og appelsínugulu treflana fram á vor.
Hnakkamellur. Slátrum þeim strax. Burt
með gervibrúnkuna og glennuskapinn,
inn með dömurnar.
Engin gagnrýni. Hættið að tala
um „enga gagnrýni“ eins og það
sé bannorð. Gagnrýni er góð.
LÁRÉTT 2 jarðvegsójafna 6 samtök 8 efni 9
þakbrún 11 tveir eins 12 rými 14 svalla 16
borðaði 17 kopar 18 smátt lausagrjót 20
grískur bókstafur 21 tigna.
LÓÐRÉTT 1 viðskipti 3 utan 4 flutningaskip
5 drulla 7 orkuver 10 horfðu á 13 gerast 15
einsöngur í óperu 16 tunna 19 tveir eins.
LAUSN
LÁRÉTT: 2 þúfa, 6 aa, 8 tau, 9 ufs, 11 rr, 12
pláss, 14 sukka, 16 át, 17 eir, 18 möl, 20 pí,
21 aðla.
LÓÐRÉTT: 1 kaup, 3 út, 4 farskip, 5 aur, 7 afl-
stöð, 10 sáu, 13 ske, 15 aría, 16 áma, 19 ll.
HRÓSIÐ
...fær kvikmyndaleikstjórinn
bandaríski Quentin Tarantino
fyrir að mæta á heimsfrumsýn-
inguna á Hostel í Reykjavík
og snæða á Bessastöðum með
forseta vorum.
Í kvöld verður bandaríska hryll-
ingsmyndin Hostel frumsýnd í
Smárabíói að viðstöddum leik-
stjóranum Eli Roth og framleið-
anda myndarinnar, Quentin Tar-
antino, auk stórs hluta leikhópsins.
Við Íslendingar eigum þar okkar
fulltrúa því Eyþór Guðjónsson fer
með frekar stórt hlutverk í mynd-
inni en hann leikur stuðboltann
Óla sem kennir tveimur banda-
rískum ferðalöngum hvernig á að
skemmta sér.
„Ég er ævintýramaður og þá
lendir maður stundum í skemmti-
legum hlutum,“ útskýrir Eyþór
þegar hann er krafinn útskýringa
á því að leika í bandarískri kvik-
mynd. Það er reyndar ansi löng
saga að segja frá hvernig þetta
vildi til. Ísleifur B. Þórhallsson
fékk leikstjórann Eli Roth til að
koma hingað þegar fyrsta kvik-
myndin hans, Cabin Fever, var
frumsýnd. Eyþór var beðin um að
kynna fyrir honum land og þjóð.
„Eli lýsti því yfir að hann ætlaði
að nota mig í einhverri kvikmynd
en ég hélt að hann væri bara að
grínast.“ Eli var síður en svo að
henda þessu fram í einhverju
gamni því þegar handritið að Hos-
tel var að verða tilbúið bað hann
Eyþór um að taka hlutverkið að
sér. „Í fyrstu hafði ég ekki tíma en
kom með nokkrar hugmyndir til að
útfæra og laga persónuna. Þegar
á hólminn var komið gat ég síðan
ekki skorast undan,“ viðurkennir
Eyþór en tekur þó skýrt fram að
hann hafi ekki gengið með ein-
hverja leikaradrauma í maganum.
„Það er bara gaman að fá innsýn í
draumaverksmiðjuna.“
Hann segir að vafalaust myndu
margir leikarar skera af sér hand-
legginn fyrir hlutverk af þessari
stærðargráðu. „Það var farið með
mig eins og Arabíuprins, leigðar
svítur og mér fylgt yfir götu til að
koma í veg fyrir að ég yrði fyrir
einhverju óhappi,“ segir Eyþór og
skellir upp úr.
„Leikarinn“ segir að íslenskir
áhorfendur geti ekki búist við nein-
um leiksigri frá hans hendi. „Ég
syng og dansa og hverf jafnskjótt
og ég birtist,“ útskýrir Eyþór og
hlær. Hann tekur þó fram að
honum finnist myndin ekki alveg
eins hrikaleg og látið hefur verið
af. „Þetta er bara hluti af kynn-
ingarstarfinu,“ útskýrir Eyþór og
bætir við að nú þegar hafi banda-
rískt stórfyrirtæki þegar lofað
einum milljarði í kynningarstarf
fyrir myndina. „Það er eiginlega
hálf súrrealískt að lenda í svona.“
freyrgigja@frettabladid.is
EYÞÓR GUÐJÓNSSON: LEIKUR STUÐBOLTA Í HOSTEL
Komið fram við mig eins
og arabíuprins
EYÞÓR GUÐJÓNSSON MEÐ ELI ROTH Leikur stórt hlutverk í hryllingsmyndinni Hostel sem frumsýnd verður í kvöld að viðstöddum þeim
tveimur og Quentin Tarantino.
NÚNA BÚIÐ
FRÉTTIR AF FÓLKI
Bandaríska hryllingsmyndin Hostel verður heimsfrumsýnd í Reykjavík
í kvöld að viðstöddum leikstjóranum
Eli Roth og einum framleiðendanna,
sjálfum Quentin Tarantino. Að sýningu
lokinni verður slegið upp teiti á veit-
ingastaðnum Rex og það er óhætt að
fullyrða að þar munu færri komast að
en vilja enda þessir kappar eftirsóknar-
verður félagsskapur og fólk leitar nú log-
andi ljósi að boðsmiðum í gleðskapinn.
Drjúgur hluti íslenska þotuliðsins verður
væntanlega á staðnum auk þess sem
Matthew Barney og Björk Guðmunds-
dóttir hafa boðað komu sína. Stuðbolt-
arnir Eli og Quentin ætla að eyða deg-
inum í sveitasælunni á Ingólfshvoli þar
sem Eli var í sveit fyrir nokkrum árum.
Þar er hestaleiga og Eli hefur ákveðið að
draga Quentin vin sinn á bak. Áður en
þeir yfirgefa borgina munu þeir koma
við hjá 66 gráður norður þar sem Eli
ætlar að kaupa kuldaföt á Tarantino.
Sjálfur er Eli yfir sig hrifinn af hlífðarfatn-
aðinum frá 66
gráðum norður
og klæddist
þessum
íslensku
flíkum
á töku-
stað
Hostel í
Prag.
Össur Skarphéðinsson bregður sér í stundum í hlutverk fjölmiðlarýnis.
Nýlega tekur þingmaðurinn sig til og
hrósar Kastljósi Ríkissjónvarpsins, sem
honum finnst reyndar vera full langt
og í of miklum „Séð&heyrt“ stíl. Telur
það samt fjölbreytt. Hann segir Þórhall
Gunnarsson og Kristján Kristjánsson
vera harðskeytta spyrla en viðurkennir
að honum finnist hann sjá of lítið af
þeim síðarnefnda. Þingmaðurinn óttast
þó að allt þetta góðhjartaða hjal verði
honum að falli því hrósi menn eins
og hann fjölmiðlamönnum of mikið
eigi þeir á hættu að vera settir út af
sakramenntinu. „Þeir Þórhallur
og Kristján eru svo yfirmáta
hlutlausir að tali maður vel
um þá er stórhætta á að
þeir þori aldrei að tala
við mann aftur nema
yfir pissuskál á
kallaklóseti
sem eng-
inn
heyr-
ir.“
SVÖR
1. Hansína Ásta Björgvinsdóttir
2. 50 milljónir
3. Til Skotlands
Í dag fara fram próf fyrir nýjan
spurningaþátt Stöðvar 2, Meistar-
ann. Verða þau á fjórum stöðum: í
Háskólanum á Akureyri, Mennta-
skólanum á Egilsstöðum og Ísafirði
auk Hagaskóla. Ekki þarf að skrá
sig á neinn hátt heldur eingöngu
mæta á svæðið og svara þeim
spurningum sem lagðar eru fyrir
en það kostar ekkert að taka þátt.
Þátttaka fyrir sjónvarpsþætti hefur
verið með eindæmum góð að und-
anförnu og sagðist Logi Bergmann
Eiðsson því vera bjartsýnn á fram-
haldið. „Viðbrögðin hafa verið góð
og við erum með allt klárt,“ segir
spyrillinn. „Spurningarnar eru
komnar í hús og öll gögn tilbúin,“
bætir hann við.
Logi getur ekki leynt eftirvænt-
ingu sinni enda segist hann aldrei
hafa verið jafn spenntur fyrir neinu
í sjónvarpi. „Það má kannski líkja
þessu við fyrstu Idol - þáttaröð-
ina því við rennum blint í sjóinn,“
útskýrir hann og bætir við að fyrir-
varinn sé kannski ekki mikill.
Mikil leynd hefur hvílt yfir
spurningunum en Logi segir að þær
verði ekki á neinn hátt svínslegar.
„Þú getur verið spurður að því hver
sé formaður verkamannaflokksins
í Noregi, hver málaði Ópið eða hver
sé söngvarinn í Coldplay,“ útskýrir
Logi og keppnin sé fyrir alla því
hún byggist ekki síður á heppni en
á gáfum. Sá sem stendur uppi sem
sigurvegari mun hljóta fimm millj-
ónir en allir þeir sem komast í þátt-
inn verða leystir út með einhvers
konar gjöfum.
Að undanförnu hafa birst mynd-
ir af Loga í stellingum fyrir þátt-
inn. Haft hefur verið á orði að hann
líkist Magnúsi Magnússyni sem
stjórnaði Mastermind við góðan
orðstír en Logi segir það ekki hafa
verið ætlunina. Þá hefur einhverj-
um einnig þótt hann ógnandi. „Það
er nú alls ekki tilgangurinn en við
vildum hafa smá dulúð og ég held
að Ara Magg hafi tekist það.“ - fgg
Leitin að Meistaranum hefst í dag
LOGI BERGMANN
Þykir vera ansi ógnandi á
þeim myndum sem voru
teknar en segir að það
hafi ekki verið ætlunin.