Fréttablaðið - 15.11.2005, Page 6
6 15. nóvember 2005 ÞRIÐJUDAGUR
Sæ
ti
ME
T S
Ö L
U L
I S T
I
Pen
nan
s/E
ym
und
sso
nar
2
.-
8.
nó
vember
Handbækur, fræðib
æk
ur
og
æ
vi
sö
gu
r
H E I L LANDI
ÆVISAGA
Uppgjör
brautryðjanda
„Edda Andrésdóttir heldur fim-
lega um penna ... svo úr verður
bæði lífleg og fróðleg frásögn ...
bók sem ætti að bæta margan
manninn.“
Sigríður Albertsdóttir, DV
„Skyldulesning.“
Hemmi Gunn, Íslandi í bítið.
Bók sem setur
kardímommur í dagana!
B Ó K A F O R L A G
B R Æ Ð R A B O R G A R S T Í G 9 , S Í M I 4 1 4 1 4 5 0
w w w . v e r o l d . i s • v e r o l d @ v e r o l d . i s
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
L†
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
E
H
F.
/S
IA
.I
S
-
V
ER
3
02
27
1
1/
20
05
Auður Eir og Edda Andrésdóttir
KJÖRKASSINN
Kæmu óeirðirnar í París í veg
fyrir að þú færir þangað?
Já 58%
Nei 42%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Fylgdist þú með beinni útsend-
ingu frá Edduverðlaununum?
SKÓLAMÁL Nýbirt úttekt sérfræð-
inga innan Samtaka evrópskra
háskóla sem falið var að gera
almenna úttekt á starfi Háskóla
Íslands leiðir í ljós að Háskólinn á
talsvert í land með að njóta sömu
fjárveitinga og sambærilegir
erlendir skólar og það stendur
starfi hans fyrir þrifum.
Er þetta þriðja úttektin á
Háskóla Íslands á tveimur árum
og segir Kristín Ingólfsdóttir
háskólarektor að þær sýni allar
að skólinn sé þrátt fyrir allt á
góðri leið og þegar sé hafið starf
innan skólans við að koma á þeim
umbótum sem mælt er með í
úttektunum þremur. „Þarna koma
fram ábendingar um hvað betur
megi fara í innra starfi skólans og
við því höfum við þegar brugðist
og munum halda því áfram.“
Þorgerður Katrín Gunnars-
dóttir menntamálaráðherra
ítrekaði að úttektin sýndi að staða
Háskóla Íslands væri þrátt fyrir
allt sterk. „Það er vilji ríkis-
stjórnarinnar að styðja dyggilega
við þann stórhug sem stjórnendur
skólans hafa um að koma honum á
næstu árum í fremstu röð háskóla
í heiminum og við höfum verið að
auka það fjármagn sem hann fær
á síðustu árum. Það sést á þeim
fjárlögum sem nú liggja fyrir og
í framtíðinni er ætlunin að halda
þeim stuðningi áfram.“
- aöe
Ný úttekt Samtaka evrópskra háskóla á starfi Háskóla Íslands:
Fær minna fé en erlendir skólar
HÁSKÓLAREKTOR Kristín Ingólfsdóttir segir
þessa þriðju úttekt á Háskóla Íslands á
tæpum tveimur árum vera gott tæki til að
bæta innra starf skólans.
DÓMSMÁL Tæplega 23 milljón króna
skaðabótakröfu manns á fertugsaldri
hefur verið hafnað í Héraðsdómi
Reykjavíkur.
Maðurinn slasaðist þegar í hann
slóst 1,2 tonna þungur stálbiti sem
verið var að flytja með lyftara við
bæ í Borgarnesi í október 2003. Sam-
kvæmt framburði læknis nam örorka
mannsins vegna slyssins hundrað
prósentum í tólf mánuði, en varanleg
örorka samkvæmt skaðabótalögum
nam fjörutíu prósentum.
„Stefnandi tók þá ákvörðun að
ganga að stálbitanum eftir að hann tók
að sveiflast,“ segir í dómnum og var
talið að gáleysi mannsins sjálfs hefði
ráðið miklu um að svo fór sem fór. - óká
Fékk í sig níðþungan stálbita:
Átti að sýna
aðgæslu sjálfur
DÓMSMÁL Hilmar Ragnarsson, 43
ára gamall Reykvíkingur, var í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur í gær dæmd-
ur í tveggja ára fangelsi.
Hilmar og óþekktur félagi
hans réðust hettuklæddir inn í
útibú Sparisjóðs Reykjavíkur og
nágrennis í Hátúni 2 um klukkan
11:20 föstudaginn 9. janúar í fyrra.
Þeir voru vopnaðir rörbútum,
ógnuðu viðskiptavini bankans og
starfsfólki og komust undan með
610 þúsund krónur sem aldrei hafa
fundist.
„Ákærði á sér engar málsbæt-
ur,“ segir í dómnum og er tekið
fram að ljóst sé að ránið hafi verið
fyrir fram vel skipulagt, bæði með
það í huga að komast yfir mikla
peninga og tryggja undankomu
ræningjanna. „Við ákvörðun refs-
ingar er litið til þess að ákærði
framdi ránið á ófyrirleitinn hátt í
félagi við annan mann og voru þeir
báðir hettuklæddir.“
Fram kemur í dómnum að menn-
irnir hafi látið mjög dólgslega þegar
þeir réðust til inngöngu þar sem
þeir öskrandi slógu rörbútunum í
innanstokksmuni. Hilmar braut svo
glerið í gjaldkerastúku og hótaði að
drepa starfsstúlkuna ef hún afhenti
ekki peninga. Á meðan stökk félag- inn upp á afgreiðsluborð fyrir fram-
an aðra stúku og hrifsaði til sín
peninga. Ránið sjálft tók ekki nema
örfáar mínútur. Það hófst klukkan
11:19 og voru mennirnir á bak og
burt þegar lögregla kom klukkan
11:23. Þjónustufulltrúi í bankanum
hafði ýtt á neyðarhnapp og úti fyrir
hringdi vegfarandi á lögreglu.
Til ræningjanna sást þar sem
annar flúði á hjóli en hinn hlaup-
andi, en fjöldi vitna varð var við
ferðir þeirra. Hilmar var ekki yfir-
heyrður vegna málsins fyrr en um
einum og hálfum mánuði eftir ránið
og neitaði þá staðfastlega nokkurri
aðild en kvaðst á þessum tíma hafa
verið í mikilli fíkniefnaneyslu.
Lögregla fann hins vegar lífsýni úr
honum í nælonsokki sem hann not-
aði til að hylja andlit sitt við ránið.
Sokkurinn fannst við gatnamót
Laugavegar og Ásholts ásamt öðru
dóti sem ræningjarnir köstuðu frá
sér á flóttanum. Einnig fundust líf-
sýni úr Hilmari í gúmmíhanska og
húfu sem fannst á svipuðum slóð-
um.
Auk fangelsisdómsins var Hilm-
ari gert að greiða viðskiptavini
bankans sem þeir félagar hröktu
út með ofbeldi 300 þúsund krónur
í skaðabætur, bankanum rúmlega
709 þúsund krónur og rúmar 745
þúsund krónur í sakarkostnað.
olikr@frettabladid.is
Ræningi þegir um
félaga og ránsfeng
Maður var dæmdur í tveggja ára fangelsi í gær fyrir bankarán. Félagi mannsins
úr ráninu gengur enn laus og ránsfengur þeirra er ófundinn. Mennirnir voru
vopnaðir rörbútum og létu dólgslega. Annar hjólaði en hinn hljóp af vettvangi.
ÚR ÖRYGGISMYNDAVÉLAKERFI SPRON Annar bankaræninginn tekur hér við peningum úr
hendi gjaldkera. Lögreglan sendi frá sér myndir úr eftirlitskerfi bankans þegar ræningjanna
var enn leitað í ársbyrjun í fyrra.
LÖGREGLA Á VETTVANGI Mikill viðbún-
aður var vegna bankaránsins í Hátúni,
en lögregla var komin á vettvang örfáum
mínútum eftir ránið. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
HAFNARFJÖRÐUR „Ég hef það slæmt.
Það gengur ekkert með húsið og
ég get alveg eins keypt mér gám
og búið í honum,“ segir Örn Ægir
Óskarsson verkamaður, sem býr
við Vesturgötu 16 í Hafnarfirði.
Fyrr á þessu ári skemmd-
ist hús Arnar á Vesturgötunni
í sprengingum í tengslum við
framkvæmdir Hafnarfjarðar-
bæjar í nágrenninu. Hús Arnar
er talið ónýtt eftir sprengingarn-
ar og leiddar eru líkur að því að
klöppin undir því sé sprungin að
því marki að hún muni skemmast
frekar á næstu vetrum.
„Líklegasta lausnin á mál-
inu er að finna sambærilegt hús
á svipuðum slóðum,“ segir Jón
Briem hæstaréttarlögmaður, en
hann hefur tekið að sér málið
fyrir Örn. Jón segir bæinn hafa
reynt að finna slíka eign en það
hafi gengið erfiðlega. „Það er
verið að gera nýtt verðmat á eign-
inni og þetta er allt í farvegi,“
segir Jón.
Í sprengingunum, sem fram-
kvæmdar voru í mars á þessu ári,
mynduðust sprungur í veggjum
hússins og hillur hrundu niður.
Fulltrúi verktakanna sem
framkvæmdu sprengingarnar
lýsti því yfir á sínum tíma að þær
hefðu verið í eðlilegri fjarlægð
frá byggð í nágrenninu. - saj
Hús Arnar Óskarssonar metið ónýtt eftir sprengingar við Hafnarfjarðarhöfn:
Þurfa að finna annað hús
ÖRN ÆGIR ÓSKARSSON VERKAMAÐUR Örn
er ósáttur við framgöngu Hafnarfjarðar-
bæjar. Lögmaður Arnar er bjartsýnn á að
viðeigandi lausn finnist. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.