Fréttablaðið - 15.11.2005, Blaðsíða 25
ÞRIÐJUDAGUR 15. nóvember 2005
Nú telja vísindamenn sig hafa
fundið ástæðu þess að prótein-
ríkir megrunarkúrar minnka
hungurtilfinningu.
Rannsóknin var gerð á rottum á
franskri vísindastofnun. Rotturn-
ar fengu próteinríkt fæði með
samsvarandi magni og myndi vera
í sérstökum próteinmatarkúrum
sem mannfólkið neytir. Vísinda-
menn komust að því að prótein jók
framleiðslu glúkosa í smáþörmum
tilraunadýranna. Matarlyst stjórn-
ast af efnaskiptum, taugaboðum
og hormónum. Við aukna fram-
leiðslu glúkosa fær heilinn þau
skilaboð að líkaminn sé saddur.
Vel þekkt er að próteinkúrar dragi
úr hungurverkjum og fólk borðar
minna en það er vant að gera. Hins
vegar hefur það verið óljóst hing-
að til hvað nákvæmlega veldur
þessu. Ástæða aukins þyngdartaps
vegna próteinkúra getur því verið
vegna þess að hungurtilfinningin
hverfur en hefur minna að gera
með sjálft niðurbrotið á prótein-
inu. Niðurstöður rannsóknarinnar
birtust í tímaritinu Cell Metabol-
ism en það skal tekið fram að frek-
ari rannsókna er þörf á mannfólki
áður en nokkuð er fullyrt. ■
Próteinið platar
Í Svíþjóð er farið að gera við
tennur með lasertækni.
Ný lasertækni í tannlækningum
sem er í þróun í Svíþjóð leysir
hinn alræmda tannlæknabor af
hólmi. Einnig gerir hún tann-
viðgerðir sársaukalausar og
þar með deyfingar óþarfar.
Þetta eru góðar fréttir fyrir þá
sem þjást af ótta við tannlækna
og fá hroll þegar þeir heyra í
bornum. Enn eru rannsóknir
á þessari tækni þó á byrjun-
arstigi en þær sem farið hafa
fram lofa góðu að því er fram
kemur í dagblaðinu Expressen.
Ný tækni í
tannlækn-
ingum
Náttúrulækningafélag Reykjavíkur
stendur fyrir matreiðslunámskeiði
um næstu helgi. Félagið hefur fengið
til liðs við sig Dóru Svavarsdóttur
matreiðslumeistara frá veitingahús-
inu Á næstu grösum. Námskeiðið
verður haldið í Hússtjórnarskólanum
við Sólvallagötu og stendur yfir frá kl.
11 til 17. Kenndar verðar grunnað-
ferðir við vinnslu á grænmeti og
baunum þar sem fjölbreytileikinn er
hafður í fyrirrúmi og eldaðir gómsæt-
ir grænmetisréttir.
Dóra Svavarsdóttir er meistari frá
Hótel- og veitingaskóla Íslands og
hefur nýlokið námi í San Fransiskó
þar sem hún sérhæfði sig í hráfæði.
námskeið }
Gómsætir
grænmetisréttir
NÁTTÚRULÆKNINGAFÉLAG
REYKJAVÍKUR STENDUR FYRIR
MATREIÐSLUNÁMSKEIÐI.
Nú hillir undir nýja tækni í tannvið-
gerðum.
Öl er böl
Talið er að norsk fyrirtæki tapi
allt að 100 milljörðum á ári
vegna drykkju starfsmanna.
Talið er að próteinrík fæða stöðvi hungurtilfinningu.
Áfengisdrykkja veldur tjóni í norskum
fyrirtækjum.
Einn af hverjum þremur sem
er frá vinnu vegna veikinda í
skamman tíma í Noregi er fjar-
verandi vegna drykkju. Skýrsla
frá árinu 2000 sýnir að 34% nor-
skra starfsmanna sem eru veik-
ir í einn dag á rætur að rekja til
áfengisneyslu. Þetta á við um
bæði kyn og alla starfshópa.
Talið er að norsk fyrirtæki
tapi milljörðum króna á ári af
þessum sökum. Útreikningarnir
eru unnir í Rokan-miðstöðinni í
Björgvin og niðurstöður þeirra
benda til að norsk fyrirtæki tapi
10,5 milljörðum norskra króna,
eða um 100 milljörðum íslenskra
króna, á ári vegna fjarvista og
minni afkasta af völdum áfeng-
isneyslu.
Þrátt fyrir það hefur ekki
nema eitt af hverjum tíu fyrir-
tækjum í Noregi markað sér
sérstaka stefnu í áfengismálum.
Opið 8-24 alla daga
í Lágmúla og Smáratorgi
acidophilus_born 29.3.2005 15:38 Page 1
Composite
C M Y CM MY CY CMY K