Fréttablaðið - 15.11.2005, Blaðsíða 32
4 ■■■■ { norðurland } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Á Akureyri er starfrækt yngsta listasafn lands-
ins. Hugmyndina um stofnun listasafns á Akur-
eyri má rekja til uppástungu Jónasar Jónssonar
frá Hriflu í blaðagrein árið 1960, en töluverður
tími leið þangað til þessi hugmynd Jónasar
varð að veruleika og var listasafnið opnað á af-
mælisdegi bæjarins þann 29. ágúst 1993.
Þann 29. október síðastliðinn var opnuð í
safninu sýning á verkum Helga Þorgils Frið-
jónssonar undir heitinu Tregablandin fegurð.
Sýningunni er ætlað að veita heilsteypt yfirlit
yfir feril Helga á undanförnum árum og hefur
að geyma mörg af hans áhrifamestu málverkum
auk vatnslitamynda og skúlptúra. Að sögn
Hannesar Sigurðssonar, safnstjóra listasafnsins,
er sýningin opin allan nóvember og allt til 11.
desember að henni lýkur.
Spurður um næstu verkefni segir Hannes
þau vera næg. Þann 14. janúar opnar sýning
sem nú er sýnd í listasafni Sigurjóns Ólafsson-
ar í Reykjavík og nefnist Hraunblóm. Það er
samsýning íslenskra og danskra listamanna,
þeirra Sigurjóns Ólafssonar, Svavars Guðnason-
ar, Carls Henning Pedersen og Else Alfeldt.
Þarna er því um að ræða samvinnuverkefni á
milli Listasafns Akureyrar og Listasafns Sigur-
jóns Ólafssonar.
Listasafnið er opið alla daga nema mánu-
daga frá kl 12 til 17.
Leikfélag Akureyrar hefur um ára-
bil verið ákveðinn miðpunktur í
listalífi Norðurlands. Eftir nokkur
mögur ár þar sem erfitt var að fylla
sæti leikhússins hefur leikfélaginu
tekist að rétta nokkuð úr kútnum á
undanförnum misserum og er nú
mikill uppgangur þar á bæ. Starf
leikhússtjóra leikfélagsins hefur í
gegnum tíðina verið mikið ábyrgð-
arstarf og er enn. Magnús Geir
Þórðarson, núverandi leikhússtjóri,
er margreyndur í leikhúsbransanum
og hefur starfað lengi innan lista-
geirans.
„Ég gekk í Melaskóla og Haga-
skóla áður en ég fór í MR þaðan
sem ég er stúdent,“ segir Magnús,
en eftir stúdentspróf lá leið hans til
útlanda þar sem hann menntaði sig
í leikstjórn í Bristol á Englandi. Að
því loknu lá leiðin til Wales þar sem
Magnús stundaði meistaranám í
leikhúsfræðum. Þá lauk hann
einnig MBA-prófi frá háskólanum í
Reykjavík.
Eftir nám fór Magnús að leik-
stýra hér á landi og hefur í dag
mjög víðtæka reynslu af leikstjórn.
„Ég hef verið viðriðinn leikstjórn á
einn eða annan hátt í um tíu ár og
leikstýrt fjölda sýninga af öllu tagi,
bæði hérlendis sem erlendis. Þá
gegndi ég einnig stöðu leikhús-
stjóra Leikfélags Íslands og í apríl
2004 var ég síðan ráðinn til Leikfé-
lags Akureyrar.“
Þegar Magnús er spurður um
muninn á Leikfélagi Akureyrar og
þeim atvinnuleikhúsum sem eru í
höfuðborginni segir hann að Leik-
félag Akureyrar reyni eftir fremsta
megni að marka sér ákveðna sér-
stöðu gagnvart leikhúsunum í
Reykjavík. „Auðvitað er ljóst að
eina atvinnuleikhúsið utan höfuð-
borgarsvæðisins hefur ákveðna sér-
stöðu gagnvart þeim sem staðsett
eru í höfuðborginni. Það gefur
augaleið.“
Að mati Magnúsar er gott að lifa
og starfa á Akureyri. „Hér kann ég
mjög vel við mig. Fallegur og góð-
ur bær sem byggður er almennilegu
og skemmtilegu fólki. Mér hefur
fundist mjög gott að vinna leikhús
hér á Akureyri.“
Að sögn Magnúsar fer yfirstand-
andi leikár afskaplega vel af stað.
„Við erum núna að sýna Fullkomið
brúðkaup sem gengið hefur rosa-
lega vel, og hefur verið troðfullt á
allar sýningar hingað til. Þá er Ed-
ith Piaf sýnd hérna sem gestasýn-
ing frá Þjóðleikhúsinu og fljótlega
byrjum við að æfa Litlu Hryllings-
búðina sem verður stórsýning þessa
vetrar og frumsýnd í febrúar.“
Ljóst er að Magnús hefur í nógu
að snúast við að stjórna leikfélagi
sem hefur upp á ýmislegt spenn-
andi að bjóða á næstunni.
Ökumenn landsins kannast við það
að þurfa að auka umhirðu farartækja
sinna yfir vetrartímann vegna salts
sem er dreift um götur bæja víða um
land. Samt sem áður eru þeir nokkr-
ir sem þekkja ekki þetta vandamál
sem annars fylgir vetrartíðinni. Á Ak-
ureyri hefur nefnilega viðgengist um
langan tíma að nota sand á götur
bæjarins í stað salts.
Að sögn Gunnþórs Hákonarsonar,
yfirverkstjóra gatnamála á Akureyri,
er meginástæðan fyrir þessu sú að
veðurfarið á Akureyri er öðruvísi en
annars staðar á landinu.
„Ef við berum okkur saman til
dæmis við Reykjavík er það alveg
ljóst að hér fyrir norðan er nokkrum
gráðum kaldara að meðaltali en fyr-
ir sunnan. Það gerið að verkum að
sandur hentar mun betur á göturnar
en salt, því í miklu frosti gerir saltið
ekki eins mikið gagn og sandur.“
Þar að auki, að mati Gunnþórs, fer
saltið mun verr með bílana þar sem
þeir ryðga frekar ef mikið salt er á
götum.
„Menn hafa því oft nefnt að betra
sé að kaupa sér notaða bíla á Norð-
urlandi þar sem salttæring er mun
minni á bílum sem keyrðir hafa ver-
ið hér en á notuðum bílum úr höf-
uðborginni.“
Einnig bendir Guðmundur á að salt
sé mun verri kostur fyrir gangandi
vegfarendur þar sem salt eyðileggi
skófatnað og föt í mun ríkara mæli
en sandur.
„Við dreifum um 300 til 500
rúmmetrum af sandi á göturnar ár
hvert og notum salt í algjörum und-
antekningartilfellum.“
Karl Örvarsson tónlistarmaður er bú-
settur í Reykjavík. Þrátt fyrir það á
hann margar góðar minningar frá
heimabæ sínum, Akureyri. Að mati
Karls varð honum ekki ljóst hver
þægilegur bær Akureyri er fyrr en
hann flutti til höfuðborgarinnar.
„Rólegheitin er það sem maður
saknar mest frá Akureyri. Maður fer
kannski í burtu af því að tilbreyt-
ingarleysið verður of mikið á ein-
hverjum tímapunkti, en síðan áttar
maður sig á því að hvergi er nú
betra að koma heldur en aftur í
áhyggjuleysið þegar maður hefur
umgengist hinn mikla skarkala
Reykjavíkur í langan tíma. Svo
klikkar aldrei Smiðjuborgarinn á
Bautanum.“
Að sögn Karls tók hann margar
góðar minningar með sér frá Akur-
eyri. „Allir krakkarnir í hverfinu léku
sér saman í stórum hópum og þá var
oft glatt á hjalla. Oft lá líka við stríði
á milli hverfa og maður var að
lumbra á Kringlumýrarhálfvitunum,
eins og þeir voru kallaðir,“ segir Karl
að lokum og hlær dátt.
Sandur í stað salts
Leikhússtjóri í nærmynd
Karl Örvarsson, auglýsingateiknari og tónlistarmaður:
Smiðjuborgarinn bestur
SJÁLFSMYND SEM UNGUR DRENGUR MEÐ ÁVAXTAKÖRFU Málverk eftir
Helga Þorgils Friðjónsson sem nú sýnir verk sín í Listasafni Akureyrar.
Listagyðjan nýtur sín fyrir norðan
UNGUR OG REYNSLUMIKILL. Sýnir nú Fullkomið brúðkaup fyrir fullu húsi í fegursta leikhúsi landsins.
BROTTFLUTTUR BORGARI. En fer þó reglulega heim í norðrið og fær sér gómsætan
Smiðjuborgarann á Bautanum.
04-05 Norðurland-lesin 14.11.2005 16:04 Page 2