Fréttablaðið - 15.11.2005, Blaðsíða 37
me› okkur!
Upplýsingaþjónusta
Vegagerðarinnar
opin alla daga kl. 07:00 – 22:00 í vetur
Færð og veður
Textavarp síður 470–490
Talvél sími 1779
Engin gjöld eru tekin fyrir að leita
upplýsinga hjá Vegagerðinni
1777
www.vegagerd in . i s
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Leiðin að hjarta mannsins...
...liggur um maga hans
La Vita e Bella
Ítalskur veitingastaður í hjarta bæj-
arins. Heimalagað pasta og nýbak-
að ítalskt brauð eins og það gerist
best. Umhverfið er umgjörð
elskenda og fagurkera. Þjónustan
æðisleg og réttirnir framandi;
beikonvafðir sniglafylltir sveppa-
hattar, rjómasoðinn camembert og
lax með gullstöngulhjúp, í bland við
hefðbundnar pitsur og ravíólí. Opið
alla daga frá kl. 18.
Friðrik V Brasserie
Heimsborgarleg eldamennska á al-
íslenskum, ferskum afurðum sem
flestar koma úr nærsveitum Akur-
eyrar. Mjúkir leðursófar í koníaks-
stofunni og íslensk list í öndvegi.
Núna dásamleg leirlist Margrétar
Jónsdóttur að norðan. Friðrik Val-
ur, matreiðslumeistari og eigandi
staðarins, ber fram lostæti úr eld-
húsinu og eiginkonan Adda geng-
ur um beina. Eins og einkaheim-
sókn til guðlegra matgæðinga.
Opið alla daga nema mánudaga
frá kl. 18.
Fiðlarinn
Háklassa veitingahús með ómót-
stæðilegu útsýni yfir Pollinn,
Vaðlaheiðina og reyndar til allra
átta. Einn af fínni stöðum Akureyr-
arbæjar, þangað sem Norðanmenn
fara gjarnan við hátíðleg tilefni lífs-
ins. Matseðill a la carte og eðal-
veigar á barnum.
Kaffi Akureyri
Stofnað af Grétari Örvarssyni, Siggu
Beinteins og Magnúsi Sigurbjörns-
syni árið 1996 og rekið af þeim í
þrjú ár. Róleg kaffihúsastemming á
virkum dögum en stuð, stuð, stuð
um helgar, enda einn vinsælasti
skemmtistaður Akureyrar. Lifandi
tónlist og diskótek um helgar í
bland við kanilstráð cappuchino,
eplamarengs og fleira góðgæti fyrir
mallakút.
Bautinn
Elsta veitingahús landsins og
skylduheimsókn nyrðra. Staðsett í
meira en hundrað ára gömlu húsi
með notalegum anda og hlýlegheit-
um. Maturinn alltaf afbragð eins
og þjónustan. Staðsett á besta stað
í bænum, með útsýni yfir í göngu-
götuna. Dýrindis salatbar og glóð-
arsteiktar steikur, fiskur og ham-
borgarar. Upplifun fyrir tungu og
maga.
Tikk Takk
Geggjað góður „take away“-staður
ef löngun er til þess að gera sér
dagamun á exótískan máta undir
berum himni eða í stofunni heima.
Indversk, ítölsk, amerísk, mexíkósk
og austurlensk áhrif á girnilegum
matseðli, sem endar í freistandi
hvítum öskjum sem varðveita
gæði, bragð og ilm á ferðalaginu
heim eða út í skóg.
Bláa kannan
Yndislegt kaffihús í göngugötunni
þar sem mannlíf og fegurð iðar
innandyra sem utan. Endalaust
freistandi tertur og hvers kyns
kruðerí, undir turnþaki eins fegursta
húss Akureyrar; nefnilega París. Á
neðri hæðinni er skemmtistaðurinn
Græni hatturinn, þar sem boðið er
upp á menningarviðburði af ýmsu
tagi og lifandi tónlist um helgar.
Café Karólína
Listrænt umhverfi og matur eldaður
af hjarta og listfengi. Kaffihúsið á
neðri hæðinni er einn af föstu
punktunum í menningarlífi Akur-
eyrar og þar jafnan margt um
manninn yfir gómsætum hádegis-
súpum og eðalkaffi. Á efri hæðinni
er ein af betri matarupplifunum
nyrðra; sælkeraeldhús með ómót-
stæðilegum krásum þar sem lögð er
áhersla á að hráefnið haldi sínu
náttúrulega bragði.
Greifinn
Geysivinsæll veitingastaður fyrir
fjölskylduna, vinahópinn eða
turtildúfur. Óvenju fjölbreyttur
matseðill með dýrindis réttum sem
hver er öðrum betri og ýmislegt
framúrstefnulegt innan um.
Spennandi leikherbergi fyrir börnin
meðan hinir fullorðnu gera sælker-
afóðri Greifans rólegri skil.
Café Amor
Fallegt kaffihús við Ráðhústorgið,
með útsýni yfir þá sem keyra rúnt-
inn og ganga glaðlega um fagran
miðbæinn. Úrval girnilegra rétta og
drykkja í boði og einkar flott innan-
húshönnun umlykur gesti staðarins.
Er á góðri leið með að verða
vinsælasti skemmtistaður ungu
kynslóðarinnar.
...um mat
á föstudögum í Fréttablaðinu.
Hafið samband við auglýsingadeild „Allts“
Síminn er 550-5000
markvissar auglýsingar
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
L†
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
E
H
F.
/S
IA
.I
S
-
PR
E
28
02
3
0
4/
20
05
08-09 Norðurland-lesið 14.11.2005 16:20 Page 3