Fréttablaðið - 15.11.2005, Síða 37

Fréttablaðið - 15.11.2005, Síða 37
me› okkur! Upplýsingaþjónusta Vegagerðarinnar opin alla daga kl. 07:00 – 22:00 í vetur Færð og veður Textavarp síður 470–490 Talvél sími 1779 Engin gjöld eru tekin fyrir að leita upplýsinga hjá Vegagerðinni 1777 www.vegagerd in . i s ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ Leiðin að hjarta mannsins... ...liggur um maga hans La Vita e Bella Ítalskur veitingastaður í hjarta bæj- arins. Heimalagað pasta og nýbak- að ítalskt brauð eins og það gerist best. Umhverfið er umgjörð elskenda og fagurkera. Þjónustan æðisleg og réttirnir framandi; beikonvafðir sniglafylltir sveppa- hattar, rjómasoðinn camembert og lax með gullstöngulhjúp, í bland við hefðbundnar pitsur og ravíólí. Opið alla daga frá kl. 18. Friðrik V Brasserie Heimsborgarleg eldamennska á al- íslenskum, ferskum afurðum sem flestar koma úr nærsveitum Akur- eyrar. Mjúkir leðursófar í koníaks- stofunni og íslensk list í öndvegi. Núna dásamleg leirlist Margrétar Jónsdóttur að norðan. Friðrik Val- ur, matreiðslumeistari og eigandi staðarins, ber fram lostæti úr eld- húsinu og eiginkonan Adda geng- ur um beina. Eins og einkaheim- sókn til guðlegra matgæðinga. Opið alla daga nema mánudaga frá kl. 18. Fiðlarinn Háklassa veitingahús með ómót- stæðilegu útsýni yfir Pollinn, Vaðlaheiðina og reyndar til allra átta. Einn af fínni stöðum Akureyr- arbæjar, þangað sem Norðanmenn fara gjarnan við hátíðleg tilefni lífs- ins. Matseðill a la carte og eðal- veigar á barnum. Kaffi Akureyri Stofnað af Grétari Örvarssyni, Siggu Beinteins og Magnúsi Sigurbjörns- syni árið 1996 og rekið af þeim í þrjú ár. Róleg kaffihúsastemming á virkum dögum en stuð, stuð, stuð um helgar, enda einn vinsælasti skemmtistaður Akureyrar. Lifandi tónlist og diskótek um helgar í bland við kanilstráð cappuchino, eplamarengs og fleira góðgæti fyrir mallakút. Bautinn Elsta veitingahús landsins og skylduheimsókn nyrðra. Staðsett í meira en hundrað ára gömlu húsi með notalegum anda og hlýlegheit- um. Maturinn alltaf afbragð eins og þjónustan. Staðsett á besta stað í bænum, með útsýni yfir í göngu- götuna. Dýrindis salatbar og glóð- arsteiktar steikur, fiskur og ham- borgarar. Upplifun fyrir tungu og maga. Tikk Takk Geggjað góður „take away“-staður ef löngun er til þess að gera sér dagamun á exótískan máta undir berum himni eða í stofunni heima. Indversk, ítölsk, amerísk, mexíkósk og austurlensk áhrif á girnilegum matseðli, sem endar í freistandi hvítum öskjum sem varðveita gæði, bragð og ilm á ferðalaginu heim eða út í skóg. Bláa kannan Yndislegt kaffihús í göngugötunni þar sem mannlíf og fegurð iðar innandyra sem utan. Endalaust freistandi tertur og hvers kyns kruðerí, undir turnþaki eins fegursta húss Akureyrar; nefnilega París. Á neðri hæðinni er skemmtistaðurinn Græni hatturinn, þar sem boðið er upp á menningarviðburði af ýmsu tagi og lifandi tónlist um helgar. Café Karólína Listrænt umhverfi og matur eldaður af hjarta og listfengi. Kaffihúsið á neðri hæðinni er einn af föstu punktunum í menningarlífi Akur- eyrar og þar jafnan margt um manninn yfir gómsætum hádegis- súpum og eðalkaffi. Á efri hæðinni er ein af betri matarupplifunum nyrðra; sælkeraeldhús með ómót- stæðilegum krásum þar sem lögð er áhersla á að hráefnið haldi sínu náttúrulega bragði. Greifinn Geysivinsæll veitingastaður fyrir fjölskylduna, vinahópinn eða turtildúfur. Óvenju fjölbreyttur matseðill með dýrindis réttum sem hver er öðrum betri og ýmislegt framúrstefnulegt innan um. Spennandi leikherbergi fyrir börnin meðan hinir fullorðnu gera sælker- afóðri Greifans rólegri skil. Café Amor Fallegt kaffihús við Ráðhústorgið, með útsýni yfir þá sem keyra rúnt- inn og ganga glaðlega um fagran miðbæinn. Úrval girnilegra rétta og drykkja í boði og einkar flott innan- húshönnun umlykur gesti staðarins. Er á góðri leið með að verða vinsælasti skemmtistaður ungu kynslóðarinnar. ...um mat á föstudögum í Fréttablaðinu. Hafið samband við auglýsingadeild „Allts“ Síminn er 550-5000 markvissar auglýsingar ÍS LE N SK A A U G L† SI N G A ST O FA N E H F. /S IA .I S - PR E 28 02 3 0 4/ 20 05 08-09 Norðurland-lesið 14.11.2005 16:20 Page 3

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.