Fréttablaðið - 15.11.2005, Síða 8

Fréttablaðið - 15.11.2005, Síða 8
8 15. nóvember 2005 ÞRIÐJUDAGUR F í t o n / S Í A Sævarhöf›a 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opi›: Mánudaga – föstudaga kl. 9:00-18:00 og laugardaga kl. 12:00-16:00 Micra Ver› 1.490.000.- Me› nagladekkjum. Sjálfskiptur, 6 diska geislaspilari, lyklalaus, sjálfvirkar rú›uflurrkur. MICRA NISSAN SÆTUST! SKIPT_um væntingar AMMAN, AP Vart er talað um annað í Jórdaníu en Sajida Mubarak Atr- ous al-Rishawi sem játaði í sjón- varpsútsendingu að vera fjórði árásarmaðurinn í hryðjuverkun- um í Amman í síðustu viku þar sem 57 manns létu lífið. Al-Rishawi varð heimsfræg að endemum á sunnudag þegar hún kom fram í sjónvarpi á sunnudag, gyrt sprengjubelti, og viðurkenndi að hafa mistekist að sprengja það í brúðkaupsveislu á Radisson SAS-hótelinu í síðustu viku. Eig- inmanni hennar tókst hins vegar að sprengja sína sprengju. „Ég sat og horfði á þetta og ég gat ekki skilið hvernig hún gat sagt frá þessu af slíkri yfirveg- un,“ sagði Adel Fathi í samtali við AP-fréttastofuna, en þrír ættingj- ar hans fórust í brúðkaupinu. „Úr hverju er þetta fólk?“ bætti hann við beiskum rómi. Margir Jórdanar efast hins vegar um að al-Rishawi hafi nokk- ur tengsl við al-Kaída heldur sé jórdanska lögreglan einungis að láta líta út fyrir að hún sé að ná árangri, „Ég trúi þessu ekki. Of margar þversagnir eru í mál- inu og þetta kemur ekki heim og saman,“ sagði Mohammed al-Fakh- iri, símasölumaður frá Amman. „Hún hefði byrjað á að losa sig við sprengjubeltið og því er afar ólík- legt að lögreglan hafi tekið hana fasta nokkrum dögum síðar með það vafið um sig.“ - shg GYRT SPRENGJUBELTI Mörgum Jórdönum finnst grunsamlegt að al-Rishawi hafi ennþá verið með sprengjubeltið þegar hún var handtekin fjórum dögum eftir árásirnar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Játningar Sajida al-Rishawi vekja mikið umtal í Jórdaníu og sýnist sitt hverjum: Efast um tengsl við al-Kaída Bíll brennur Eldur kviknaði í fyrrinótt í jeppa í Víkurskarði í Eyjafirði. Ökumaður, sem var einn í bílnum, slapp ómeiddur. Bíllinn var orðinn alelda þegar lögregla og slökkvilið komu frá Akureyri. Elds- upptök eru ókunn en lögregla vinnur að rannsókn málsins. LÖGREGLUFRÉTTIR Flýtti sér í heiminn Lítil stelpa fædd- ist neðst í Ártúnsbrekkunni aðfaranótt mánudags. Var verið að flytja móðurina í sjúkrabíl á fæðingardeild Landspítalans þegar stelpan taldi sig tilbúna til að koma í heiminn. Sjúkraflutningamenn tóku á móti telpunni ásamt föðurnum sem var einnig í bílnum. Auk þess sem lögregla kom á vettvang til að aðstoða. Móður og dóttur heilsast vel. Ofbeldi og ölvun Lögreglan í Keflavík þurfti að hafa afskipti af tveimur ölvuð- um mönnum á krá í bænum aðfaranótt mánudags. Mennirnir höfðu slegist um hríð og skakkaði lögregla leikinn. Annar mannanna þurfti að leita sér læknisað- stoðar vegna áverka eftir slagsmálin. PÓSTLISTI FVH -SKRÁÐU ÞIG! ERT ÞÚ NOKKUÐ AÐ MISSA AF FRÉTTUM, TILKYNNINGUM OG HAGSTÆÐARI KJÖRUM FRÁ FVH? Kristján Óskarsson framkvæmdastjóri útibúasviðs Íslandsbanka Hafsteinn Már Einarsson forstöðumaður Gallup Kristinn Tryggvi Gunnarsson Stjórnunarráðgjafi hjá IMG Brynjólfur Bjarnason Forstjóri Símans Samstarfsaðilar eru Íslandsbanki, IMG, KPMG, Deloitte, Síminn, VR, Vífilfell, Bros, Lausn, Prentmet, Grand Hótel og Pósturinn. Vill þitt fyrirtæki gerast samstarfsfyrirtæki FVH? Hafðu samband - kannaðu málið! fvh@fvh.is BORGARMÁL „Þetta frumvarp að fjárhagsáætlun ber með sér að borgarbúar eru að uppskera árangur traustrar fjármálastjórn- ar í borginni undanfarin ár,“ segir Steinunn Valdís Óskarsdóttir borg- arstjóri. Borgarstjóri kynnti í gær fjárhagsáætlun sína fyrir næsta ár. Þar kemur fram að hreinar skuldir borgarinnar eiga að lækka um rúman milljarð króna og gert er ráð fyrir 1,4 milljarða króna rekstrarafgangi. Heildartekjur borgarsjóðs eru áætlaðar rúmar 45 milljarðar króna sem er tæpum tíu prósentum meira en gert er ráð fyrir á yfirstandandi ári. Á móti hækka rekstrargjöld úr tæpum 39 milljörðum í tæpa 42 milljarða en áætlanir gera ráð fyrir að rekstrarafgangur verði nálægt 1,4 milljörðum króna, sem er öllu hærra en þær tæpu fimm hundruð milljónir sem útkomuspá þessa árs gerir ráð fyrir. Bókfærðar heildareignir munu lækka á tímabilinu um fimm millj- arða króna, fyrst og fremst sökum sameiningar Fráveitu og Orku- veitu Reykjavíkur. Heildarskuldir borgarsjóðs munu lækka um rúma átta millj- arða króna miðað við að útkomu- spá þessa árs og áætlanir þess næsta náist. Hefur heildarskulda- staða borgarinnar því ekki verið betri síðustu fjögur ár. Sem fyrr vega menntamál þyngst í útgjöldum sjóðsins í áætluninni. Alls 46 prósent allra útgjalda eru eyrnamerkt til menntastofnana af einu eða öðru tagi. Velferðarmál taka sextán prósent en önnur mál mun minna. Steinunn Valdís segir að skatt- ar og gjöld á hvern borgarbúa séu með því lægsta sem gerist í þétt- býli í borginni og að borgarsjóður muni njóta þeirra þenslu sem fyrir- sjáanleg er á næsta ári í formi hækkandi útsvari og væntanlega lægri útgjöldum vegna fjárhags- aðstoðar af ýmsu tagi. Borgarstjóri segir að fjárhags- áætlunin sýni að staða borgarsjóðs sé sterk þrátt fyrir tal margra um að svo sé ekki og að miðað við þá þjónustu og verkefni sem borgin innti og ætlaði sér að inna af hendi fyrir íbúa sína sé um góða og heil- brigða áætlun að ræða. „Auðvitað erum við með útsvarsprósentuna í toppi en það er hluti af okkar áætl- un. Við viljum fremur fá eins mikið og hægt er og nota það fé í samfé- lagslega sjóði sem öllum borgar- búum nýtast. Þess vegna getum við haldið þjónustu ódýrri, boðið gjaldfrjálsan leikskóla og lækkað fasteignagjöld eins og hugmyndir okkar standa til.“ albert@frettabladid.is Skuldir lækka um milljarð Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir næsta ár var kynnt í gær. Stefnt er að lækkun skulda og tölu- verður afgangur verður af rekstrinum. STYRK FJÁRMÁLASTJÓRN Borgarstjóri er afar ánægður með þá fjárhagsáætlun fyrir næsta ár sem lögð verður fyrir borgarstjórn. Segir hún hana sýna að staða borgarinnar sé sterk ólíkt því sem margir vilji vera láta. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL. TÓKÝÓ, AP Japanska geimferða- stofunin hefur misst samband við geimkannann Mínervu sem var skotið frá móðurfari sínu, Hayabusa, á laugardag. Mínerva átti að lenda á loft- steininum Itokowa í æfingarskyni fyrir lendingu Hayabusa, sem á snemma í desember að hafa tekið sýni af yfirborði steinsins áður en það snýr aftur til jarðar. Itok- awa er í 290 milljón kílómetra fjarlægð frá jörðu og er búist við að heimferðin taki tæp tvö ár. Bilun Mínervu er Japönunum talsvert áfall en ferð Hayabusa hefur verið þyrnum stráð hingað til. ■ Japanskt könnunarfar: Bilun í Mínervu

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.