Fréttablaðið - 15.11.2005, Síða 21

Fréttablaðið - 15.11.2005, Síða 21
ÞRIÐJUDAGUR 15. nóvember 2005 Landsteinar Strengur er stærsti sölu- og þjónustuaðili Microsoft viðskipta- hugbúnaðar á Íslandi. Sérfræðingar okkar aðstoða þig við að ná markmiðum þínum í rekstri þannig að þitt fyrirtæki geti vaxið og dafnað. Navision Small Business er viðskiptahugbúnaður sem getur vaxið og þróast með fyrirtæki þínu. Ef fyrirtækið þitt stækkar og stækkar, getur Navision Small Business orðið Navision Big Business! Taktu rétta ákvörðun strax. Veldu Navision Small Business. Nú getur þú tryggt þér öruggan og hnökralausan aðgang að fjárhags- og viðskiptaupp- lýsingum fyrirtækisins í eitt skipti fyrir öll. Það gerir þú með Navision Small Business. Það þarf ekki að kosta mikið að verða stór Nú á aðeins kr. 115.038 Hafðu samband núna! Hringdu í síma 550-9000 og fáðu réttu lausnina fyrir þitt fyrirtæki Ármúla 7 | 108 Reykjavík | www.landsteinarstrengur.is MEIRA SKART Baugur er á lokastigi viðræðna um kaup á skartgripaverslanakeðju sem verður sameinuð rekstri Goldsmiths sem Baugur á fyrir. Baugur er langt kominn með að kaupa bresku skartgripakeðjuna MW Group. Líklegt er að gengið verði frá kaupunum um miðja þessa viku og er kaupverðið um tuttugu milljón- ir punda eða rúmir tveir milljarð- ar króna. Baugur á fyrir skartgripa- verslanakeðjuna Goldsmiths og er ætlunin að sameina félögin. MW Group rekur skartgripaverslanir undir merkjunum Mappin & Webb og Watches of Switzerland. Versl- anir M&W og Goldsmiths eru ólíkt staðsettar og skörun í verslunum lítil. Samanlagt verður til með kaupunum stærsta skartgripa- keðja Bretlands. Samkvæmt heimildum eru ekki fyrirhugaðar miklar breytingar á rekstrinum fyrsta kastið, enda vilja menn ekki trufla jólavertíðina sem er stærsta sölutímabilið. Hins vegar er talið að ná megi fram hag- ræðingu með því að draga verulega úr stjórnunarkostnaði félagsins. - hh Gull í greipar Breta Baugur er í viðræðum um kaup á annarri skartgripakeðju. KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf] ICEX-15 4.753 +0,51% Fjöldi viðskipta: 187 Velta: 2.346 milljónir HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: ACTAVIS 43,80 +0,00% ... Bakkavör 44,80 +0,00% ... FL Group 14,70 +0,69% ... Flaga 4,15 +2,22% ... HB Grandi 9,35 +0,54% ... Íslandsbanki 15,60 +0,65% ... Jarðboranir 22,10 +0,00% ... KB ba- nki 595,00 -0,34% ... Kögun 55,30 +0,00% ... Landsbankinn 23,30 +0,87% ... Marel 64,20 +0,00% ... SÍF 4,35 +0,00% ... Straumur- Burðarás 15,00 +4,17% ... Össur 98,00 +0,51% MESTA HÆKKUN Straumur 4,17% Flaga 2,22% Landsbankinn 0,87% MESTA LÆKKUN Hampiðjan -3,49% Atorka -1,77% Dagsbrún -0,39% Umsjón: nánar á visir.is SPÁR UM HAGNAÐ ACTAVIS Á 3. ÁRSFJÓRÐUNGI Spá Íslandsbanka 2.336 Spá KB banka 1.746 Spá Landsbankans 1.695 Meðaltalsspá 1.926 Actavis birtir í dag níu mánaða uppgjör og er því spáð að fyrir- tækið skili um 1,9 milljarða hagn- aði á þriðja ársfjórðungi saman- borið við 1.228 milljónir á sama tíma í fyrra. Það er meira en helmingsaukning. Þar sem félag- ið gerir upp í evrum er aukningin enn meiri. Velta Actavis jókst mjög á þriðja ársfjórðungi eftir að banda- ríska samheitalyfjafyrirtækið Amide kom inn í bækur félagsins. Á fyrri hluta ársins hagnaðist Actavis um rúmlega 1,6 milljarða króna. - eþa Tveir milljarðar í hagnað RÓBERT WESSMAN, FORSTJÓRI ACTAVIS Lyfjafyrirtækinu er spáð um 1,9 milljarða hagnaði á þriðja ársfjórðungi, sem er veru- leg aukning frá sama tíma í fyrra. „Við ætluðum okkur inn á sjón- tækjamarkaðinn. Þetta er eitt af þeim sviðum sem við viljum stækka á,“ segir Hrund Rudolfs- dóttir, framkvæmdastjóri Lyfja og heilsu, um kaup félagsins á gleraugnaversluninni Augnsýn í Hafnarfirði. Lyf og heilsa, sem starfrækir yfir þrjátíu lyfjaverslanir á land- vísu, rekur nú þrjár gleraugna- verslanir; eina í Mjódd, á Selfossi og í Hafnarfirði. Fyrirtækið hefur jafnframt frá því á síðasta ári selt gleraugu og skyldar vörur í apótekunum. Stækka í gleraugunum KAUPA AUGNSÝN Lyf og heilsa ætlar að stækka á markaði með gleraugu og skyldar vörur.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.