Fréttablaðið - 15.11.2005, Qupperneq 23
[ ]
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL
��������������
�������
������������������
�������������
��������
������
�����������������
��� ����
�������������������
�������
�������
�������������
��������������
��������������
���������������
��������������
� ��������
Góðan dag!
Í dag er þriðjudagur 15. nóvem-
ber, 319. dagur ársins 2005.
Nei, nei, ég er
ekkert týndur,
bara pabbi og
mamma!
KRÍLIN
Kolbrá Bragadóttir myndlistarmaður notar
ýmsar aðferðir til að rækta heilsuna. „Ég
er gangandi vegfarandi og á ekki bíl. Ég
stunda sund, nánar tiltekið pottana því mér
finnst afar mikilvægt fyrir heilsuna að
slappa vel af. Ég vinn stórar myndir og það
tekur á líkamann að þurfa að strekkja strig-
ann á blindrammann svo þar fæ ég bæði
þrekþjálfun og teygjur. Nú, svo brenni ég
nokkrum hitaeiningum við heimilisverkin
en ég set góða tónlist á fóninn og dembi mér
í þau.“
Hún er ekki jafn dugleg að passa upp á
mataræðið. „Ég held að ég sé haldin per-
sónuleikaröskun í mataræðinu, fer alveg
frá því að borða rosalega hollan mat og yfir
í að borða algert rusl. En ég er alin upp við
hollan mat og það er mér eðlislægt að borða
hollt.“
Kolbrá er hins vegar dugleg að rækta
andann og er sannfærð um að það skili
árangri á öllum sviðum. „Mikilvægast af
öllu finnst mér að vera í andlegu jafnvægi
og huga að andlegu heilsunni. Þá kemur
hitt sjálfkrafa og maður sinnir líkamanum
betur ef sálin er í lagi.“
Nú stendur yfir sýning á verkum Kol-
brár í baksalnum í Gallerí Fold við Rauðar-
árstíg þar sem hægt er að sjá afrakstur þess
að strekkja stóran striga á ramma, annan en
heilsufarslegan ávinning, og sitthvað fleira.
Sýningin stendur til 27. nóvember. ■
Strekki striga á ramma
Kolbrá Bragadóttir myndlistarmaður beitir ýmsum aðferðum til að halda
sér í formi en telur þó andlega heilsu mikilvægasta.
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 9.56 13.12 16.28
Akureyri 9.56 12.57 15.57
Heimild: Almanak Háskólans
Kolbrá Bragadóttir myndlistarmaður. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Kristbjörg Elí Kristmunds-
dóttir jógakennari verður með
áhugaverðan fyrirlestur í Manni
lifandi í Borgartúninu í dag, 15.
nóvember kl. 18-19.30. Fyrir-
lesturinn fjallar um íslensku
náttúrudropana sem hún hefur
þróað síðastliðin ár og hafa
hjálpað mörgum til að öðlast
jafnvægi, gleði og hamingju
í lífinu.
Tíunda tölublað Farsótt-
arfrétta sem var að koma
út er helgað inflúensu.
Í blaðinu er fjallað um
aðgerðir ríkisstjórnarinn-
ar og heilbrigðisyfirvalda
vegna heimsfaraldurs
inflúensu og verkaskipt-
ingu stofnana sem koma
að viðbúnaðaraðgerðum.
Ný íslensk rannsókn sýnir fram
á að D-vítamín sé nauðsynlegt
líkamanum til að hann geti
unnið úr því kalki sem hann
fær. Rannsóknin var unnin á
Landspítala - háskólasjúkrahúsi
í samvinnu við Lýðheilsustöð.
Samkvæmt rannsókninni
er betra að taka ráð-
lagðan dagskammt af
D-vítamíni og hæfileg-
an skammt af kalki
en að taka auka-
skammt af kalki.
Til þess að fá nóg
D-vítamín er best
að taka lýsi eða
D-vítamín í töflum
því fáar fæðuteg-
undir innihalda
það.
LIGGUR Í LOFTINU
[ HEILSA ]
Heilsa o.fl.
LJÓSALAMPAR
Veita birtu inn í sálina
bls. 2
Heilsa o.fl.
INSÚLÍN
Sagan rakin
bls. 4
Með haustinu og hálk-
unni fjölgar slysum á
gangandi fólki.
Þetta er eins og slysaalm-
anak. Það er alveg árvisst
að á haustin þegar hálkan
kemur verða beinbrot og
önnur meiðsli eftir byltur.
Þess gætir núna eins og
endranær. „Það er svolítið
mismunandi frá ári til árs
hversu stórar öldur koma
af fólki,“ segir Hlynur Þor-
steinsson, læknir á slysa-
deild Landspítalans. Hann
segir eldra fólkinu hætt-
ara við brotum en hinum
yngri en aldursdreifing sé
samt nokkur hjá þeim sem
leiti sér lækninga vegna
hálkumeiðsla. „Þegar fer
að kólna og frysta fara
börnin út að renna sér og
þau detta líka og meiða sig
þannig að meðalaldurinn
á þeim sem leita á slysa-
deild vegna hálkuslysa er
ekki mjög hár. Eldra fólkið
hefur frekar vit fyrir sér
en börnin. Það hættir sér
síður út þegar mjög hált er
og ef það þarf út setur það
frekar á sig brodda en þeir
sem yngri eru, enda eru
mannbroddarnir mikilvæg
vörn. Það er erfiðara að
varast byltur hjá börnum.
Það þarf bara að halda
fyrirlestur einu sinni enn,“
segir Hlynur og svo er
hann ekki tafinn lengur frá
skyldustörfunum.
Mannbroddar
mikilvæg vörn
Eldra fólki og börnum hættir einkum til að detta í hálkunni.