Fréttablaðið


Fréttablaðið - 15.11.2005, Qupperneq 34

Fréttablaðið - 15.11.2005, Qupperneq 34
Hvað þarf til að jólin komi? Voðalega lítið, en það heldur eng- inn eins jól. Hver og einn hefur í heiðri sína jólasiði og oft þarf ekki nema eina styttu á sínum stað heima til að jólin séu komin. Þannig snúast jólin um minningar. Án þeirra koma jólin síður. Hvað finnst þér jólalegast af öllu? Það er gamall eldspýtu- stokkur sem hangir heima á jóla- trénu mínu. Hann fékk ég frá for- eldrum mínum árið 1962 en þá hafði mamma pakkað honum inn í jólapappír og sett á slaufu. Í þess- um gamla eldspýtustokki felast jól- in mín. Hvernig getur þú verið í jóla- skapi í júlí? Jólaskap júlímánaðar er allt öðruvísi en jólaskap þegar jólin nálgast. Hér í Jólagarðinum ríkir hátíðastemming allan ársins hring og um leið og ég kem hingað inn verð ég glaður, áhyggjulaus og fullur vellíðunar. Hér býr nefnilega jólaandinn sem kemur með dótinu og gestunum og margir skynja um leið og þeir stíga inn fyrir þrösk- uldinn. En hvað er jólaskap?Jólaskap getur verið mismunandi hugará- stand. Það getur verið hrifning, en getur líka verið depurð. Það fer allt eftir því við hvað mann- eskjan tengir jólin. Flestir fara sem betur fer í hátíðaskap, en margir eiga mjög um sárt að binda; hafa kannski misst ástvin í kringum hátíðarnar og verða því sorgmæddir í skapi þegar jóla- ljósin kvikna. Eru jólakötturinn, Grýla og Leppalúði ljóta hliðin á jólun- um? Nei, alls ekki. Þau eru hluti af okkar þjóðtrú sem við eigum endilega að halda sem fastast í. Þessar forynjur hræddust forfeður okkar en með ljósadýrð nútímans hefur hræðslan hörfað. Margir af eldri kynslóðinni koma hingað og segja engu skipta hvað árin eru mörg; maður verði aldrei of gamall til að losna undan hræðslunni við jólaköttinn og Grýlu. Þannig safna margir íslensku jólasveinunum en láta ekki hvarfla að sér að kaupa jólaköttinn eða þau foreldra jóla- sveinanna af því að sú þrenning þótti ekki æskilegur félagsskapur um jól. Trúir þú á jólasveininn? Já, það geri ég. Jólasveinninn býr innra með okkur öllum og við öll jóla- sveinar upp að vissu marki. Þannig er ég alltaf að rembast við að leika mann. Eru jólin í tísku? Jólin eiga mis- mikið upp á pallborðið hjá fólki og fylgja sjálf sterkum tískustraumum, en rautt og hvítt er hinn sígildi lit- ur jólanna. Er Jesús algengasta táknmynd jólaskrautsins? Nei, afmælisbarn jólanna er fjarri Íslendingum þegar kemur að jólaskrauti. Komi útlend- ingar hingað spyrja þeir undan- tekningarlaust um jólaskraut með kristinni tilvísun, en Íslendingar vilja frekar sína eigin jólasveina og þjóðtrú. Eiga jólin sér neikvæða hlið? Já, því miður fyrir suma og sér- staklega í seinni tíð. Fólk hefur mismikil fjárráð og þarf að sníða sér jólastakkinn eftir vexti í stað þess að hlaupa eftir því sem ná- granninn gerir eða kaupmaðurinn segir. Jólin eru auðmjúk og nægjusöm í sjálfu sér, og mega ekki vera þungur baggi sem sligar jólaandann í manneskjunni. 6 ■■■■ { norðurland } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ Láttu eftir þér... ...að dýfa táslunum í silkimjúk og vermandi jarðböðin á Mývatni. Þau eru yndisleg vin í snjókomunni nyrðra og bíltúrsins vel virði að baða sig undir stjörnunum og njóta ótrúlegrar náttúrufegurðar um leið og húð, hár og sálartetur fá veglega upplyftingu. ...að tölta upp tröppurnar að einu fegursta guðshúsi landsins, Akureyr- arkirkju. Það var húsameistari ríkisins, Guðjón Samúelsson, sem teikn- aði þetta sérstaka guðshús sem vígt var um miðjan nóvember 1940. Kirkjan þykir kaþólsk í útliti, íburðarmikil og sláandi fögur, auk þess sem gestaþraut er að telja þrepin frá kirkjunni niður í bæ, en víst bannað að kjafta frá. ...að kaupa norðlenskan listmun. Það er nauðsynlegt að koma heim með áþreifanlegar minningar líka. Á Norðurlandi úir og grúir allt af handverki og fögrum munum fólks sem býr í sveitunum í kring sem og í bænum sjálfum. Ómótstæðilegir leirmunir, málverk, glerlist og fleira úr smiðju atvinnu- sem leikmanna í listum. Rembist við að leika mann Benedikt Ingi Grétarsson, eigandi Jólagarðsins, er jólasveinninn sjálfur. ALLIR MENN ERU JÓLASVEINAR Eða svo segir Benedikt í Jólagarðinum. Hann trúir einlægt á jólasveininn sem hann segir lifa innra með öllum sönnum jólamanneskjum og honum líka, enda er hann alltaf í jólaskapi. FRÉTTABLAÐIÐ/KRISTJÁN KRISTJÁNSSON 06-07 Norðurland-lesin 14.11.2005 16:18 Page 2
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.