Fréttablaðið - 15.11.2005, Side 38

Fréttablaðið - 15.11.2005, Side 38
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ UPPLIFÐU JÓLAVEISLUNA FRIÐRIK V - Strandgötu 7 - 600 Akureyri - s: 461 5775 - www.fridrikv.is - fridrikv@fridrikv.is - opið frá þriðjudagi til sunnudags.                                                 ! "     # $  %  #    "                                          !  #$    %&   '  ( !  )                              ! "  #          #$   !          !    " # !                %&        '  ! #                 !"#   $ %  & '( #  )  %***+"+                  , #"-+.+ +/     , #"-)++ +/       , #"-)+..+ +/ Næturlíf í norðri Skemmtanalífið á Akureyri hefur lengi verið með miklum ágætum og hafa Norðlendingar ekki verið taldir síðri djammarar en frændur þeirra fyrir sunnan. Okkur langaði að fræðast nánar um hvernig skemmtanalífinu væri háttað á Akureyri um þessar mundir og fengum Arnar Elíasson, 25 ára borinn og barnfæddan Akureyr- ing í lið með okkur í þeim tilgangi að fara nánar ofan í saumana á partístandi Norðlendina. Að sögn Arnars hefur Kaffi Akureyri verið aðal djammstaður- inn á Akureyri um nokkurt skeið en á undanförnum mánuðum hef- ur nýr staður verið að ryðja sér til rúms sem aðalskemmtistaður bæj- arins. „Skemmtistaðurinn Amour hef- ur allt frá í fyrravetur verið að taka við hlutverki Kaffi Akureyrar sem fremsti staðurinn í bænum, sér- staklega hjá aldurshópnum á milli tvítugs og þrítugs,“ segir Arnar. Þegar hann er spurður hvert þeir sem komnir eru á miðjan ald- ur haldi þegar helgin birtist og kvölda tekur vill Arnar meina að Oddvitinn og Vélsmiðjan séu þeir staðir sem höfði sérstaklega til þeirra sem komnir séu yfir þrítugs- aldurinn. „Oddvitinn býður líka upp á karókí sum kvöldin þannig að þá týnist yngra fólkið líka inn og tek- ur lagið. Ég mundi hins vegar segja að Vélsmiðjan væri klárlega sá staður sem eldra fólkið sækir hvað mest, og svo er auðvitað Sjallinn sá staður sem menn sækja grimmt á laugardagskvöldum þegar böll og tónleikar eru haldnir í bænum,“ segir Arnar og bætir því við að ástæðan sé einfaldlega sú að eng- inn annar staður í bænum rúmi þann fjölda af fólki sem sækir böll og aðra hljómleikaviðburði, en lengi hefur loðað við skemmtana- hald í Sjallanum að þar skemmti sér margar kynslóðir saman. Þegar Arnar er inntur eftir því hvort Akureyringar séu meiri djammarar heldur en Reykvíking- ar svarar hann því til að honum finnst það ólíklegt. „Ástæðan er fyrst og fremst sú að framboð á skemmtistöðum hér nyrðra er töluvert minna heldur en gengur og gerist í höfuðborginni. Þetta er alltaf sama rútínan hér á Akureyri og ef maður fer á djam- mið nokkrar helgar í röð fer maður strax að kannast nokkuð vel við þau andlit sem mæta á staðina um helgar. Því verður þetta dálítið leiðigjarnt með tímanum,“ segir Arnar, en mælir þó eindregið með næturlífinu norðan heiða. Vélsmiðjan. Hér gera sér glaðan dag þeir sem komnir eru yfir þrítugt. Sjallinn. Þar sem kynslóðirnar gleðjast saman. Fastur punktur í tilverunni. Kaffi Akureyri. Heldur stöðu sinni sem einn vinsælasti skemmtistaður Akureyringa um árabil. Sólskinsstund á Café Amor. Staðurinn er að verða sá vinsælasti meðal unga fólksins nyrðra og er frábær heim að sækja sem hefðbundið kaffihús á daginn. 10-11 Norðurland- lesið 14.11.2005 16:21 Page 2

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.