Fréttablaðið - 15.11.2005, Page 40
12 ■■■■ { norðurland } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Heima er best }
Akureyri er alltaf í hjarta mér
vegna þess að...
...þar er ég innan um stóran hluta
af sjálfum mér.
Strandgötu 25 Akureyri s: 462-6640
www.daggir.is • Sendum hvert á land sem er
Steiking með eða án fitu
Maturinn festist ekki við
Verpist ekki
Sterk húð, flagnar ekki
Má nota málmáhöld
Þvoist ávallt m. sápu, má fara
í uppþvottavél
Má fara í ofn að 260˚c
Hvenær er Akureyrarbær og
landið í kring fegurst fyrir
augun? Það er mjög fallegt hér
snemma morguns á sumrin og
haustið er óskaplega yndislegur
tími. Ég hef stundum farið í
gæsaveiði utan við bæinn í dag-
renningu og algjörlega ómót-
stæðilegt að upplifa landið vakna.
Það er einfaldlega stórkostlegt að
heyra fyrsta fuglinn bjóða góðan
daginn, fyrsta jarmið og fyrsta
gargið í gæs. Ég held að tiltölu-
lega fáir hafi upplifað þá töfra, en
það er vel þess virði að vakna í
bítið með náttúrunni.“
Hvers vegna hefur þú alltaf
búið nyrðra? Ég er fæddur hér og
uppalinn og mér hefur alltaf liðið
vel á Akureyri. Mér hefur oft boðist
að vinna og flytjast til Reykjavíkur
en ekki orðið af því ennþá. Dóttir
mín og fjölskyldan hennar býr í
höfuðstaðnum en við hjónin hér
nyrðra og líkar vel. Ef maður hefur
áhugamál er svo stutt í að njóta
þeirra hér, og ég hef þau mörg. Við
förum mikið á skíði, í golf og
göngutúra, ég flýg mikið og get
farið á spariskónum að veiða, því
veiðiárnar eru allt í kring og allt
eins og best verður á kosið.“
Hvaða mann hafa Akureyringar
að geyma? Þeir eru alveg eins og
aðrir Íslendingar. Stundum er tal-
að um að þeir séu seinteknir en
það er þjóðsaga. Þá er einnig sagt
að aðkomumenn séu lengi að fá
ríkisborgararéttinn hér nyrðra, en
það er auðvitað grín, nema hvað
við verðum vitaskuld að velja og
hafna (hlær dátt). Ég get ekki séð
að gestir fái öðruvísi móttökur hér
en í Reykjavík og glöggt dæmi að
Akureyringar hafa fyrir sið að
sækja og skila gestum sínum á
flugvöllinn. Hér ríkir enn dálítill
sveitahugsunarháttur, sem er bara
gott, og margir sem enn fara heim
í hádeginu að borða.
Hvernig er að vekja þjóðina al-
einn í hljóðverinu á morgnana?
Mér finnst það indælt því mér líkar
að vakna einn og koma mér fyrir við
gluggann. Ég hef dásamlegt útsýni og
vakna oftast það snemma að ég næ
að keyra pínulítið um og líta í kring-
um mig meðan bærinn enn sefur.
Er Akureyri seinni að vakna en
Reykjavík? Já, en það gera náttúr-
ulega vegalengdirnar. Við erum ekki
nema í mesta lagi sjö mínútur í
vinnu og á milli staða, og aldrei
komin með bíl í aftursætið eftir
augnablik í umferðinni. Við getum
leyft okkur að sofa nokkrum mínút-
um lengur og þurfum ekki að vera
með neinn æsing yfir hlutunum.
Þannig er andrúmsloftið ekki endi-
lega letilegt en bæði afslappað og
þægilegt.
Færðu heimþrá þegar þú kveður
heimabæinn? Nei, því mér líður vel
hvar sem ég er. Gæti þannig vel
hugsað mér að búa í höfuðborginni
og færi létt með það. Hins vegar ber
ég sterkar taugar til norðursins þótt
ég skammi stundum mitt heimafólk
fyrir að láta of lítið á sér bera. Menn
verða að láta í sér heyra og vera
stoltir af því. Þetta skrifast þó hvorki
á minnimáttarkennd né lítillæti, held-
ur á það hve Akureyringar eru heima-
kærir.
Aleinn Gestur með augu
þjóðarinnar við gluggann
Það er stilltur morgunn við Pollinn þegar einn ástsælasti
útvarpsmaður þjóðarinnar sest með kaffibollann sinn við
hljóðnemann í hljóðveri Ríkisútvarpsins við Kaupvangs-
stræti og lýsir því sem fyrir augu ber í höfuðstað Norður-
lands. Þannig má segja að Gestur Einar Jónasson sé
gluggi landsmanna að norðlenskri náttúrufegurð, bæjar-
stemmingu og mannlífi allan ársins hring frá hálfníu til
tíu á Rás 2.
ÁRRISULL MORGUNHANI. Gestur Einar Jónasson vaknar daglega með þjóðinni á Rás 2 og lýsir því sem fyrir augu ber norðan heiða.
FRÉTTABLAÐIÐ/GUNNAR SVERRISSON
Sigmundur Ernir Rúnarsson,
fréttamaður á NFS:
Hluti af
sjálfum mér
12-13 Norðurland-lesin 14.11.2005 16:29 Page 2