Fréttablaðið - 15.11.2005, Page 58

Fréttablaðið - 15.11.2005, Page 58
 15. nóvember 2005 ÞRIÐJUDAGUR30 BJÖRGVIN OG MÆÐGURNAR Björgvin Hall- dórsson, Ragnhildur Reynisdóttir og Svala Björgvinsdóttir skörtuðu sínu fegursta. HELGA BRAGA Hún var glæsileg að vanda og skartaði í þetta sinn túrkísbláum silkikjól. Fræga og fallega fólkið fjölmennti á Edduhátíðina á sunnudaginn og klæddist hver og einn sínu fínasta pússi. Þessi uppskeruhátíð sjónvarps- og kvikmynda- fólks sýndi vel hversu vel Íslendingar kunna sig og hve fallegar flíkur þeir hafa verið að fela í fataskápnum. Þetta er hátíðin þar sem glamúrhrifningin brýst fram í fólki og nutu tískudrottningar sín til botns með því að skreyta sig frá hvirfli til ilja á meðan karlpeningurinn dró fram jakkafötin og tilheyrandi. Þorsteinn Guðmundsson var einn af þeim sem sýndu á sér nýja hlið og skartaði mjög svo glam- úrus og ó-látlausum gulljakkafötum. „Ég gerði það að skilyrði að ef ég ætti að vera kynnir fengi ég gulljakkaföt. Ég fílaði mig eins og samblöndu af Elvis og jólakúlum,“ sagði Þorsteinn ánægður með gallann. Glamúrinn réð ríkjum DAGUR KÁRI Hann var stjarna kvöldsins og vann fern verðlaun, mjög svo verðskulduð. Hann er hér með konu sína, Helgu Rakel Rafnsdóttur, sér á vinstri hönd. ÁGÚSTA EVA ERLENDSDÓTTIR Hún hefur töfrað sig inn í hjörtu landsmanna með hinni einstöku per- sónu Silvíu Nótt. Hér tekur hún við verðlaunum fyrir besta skemmtiþáttinn og Björk Jakobsdóttir afhendir henni þau. HRESS Lilja Pálmadóttir, Baltasar Kormákur og Þorfinnur Ómarsson voru að sjálfsögðu á staðnum. SILVÍA NÓTT Hin kostulega persóna var valin sjónvarpsmaður ársins. FÍN SAMAN Ari Sig- valdason og Ilmur Kristjáns- dóttir voru í sínu fínasta pússi. Ilmur var valin leikkona ársins. DÓMARARNIR Bubbi er hér með dóttur sína Grétu Morthens sér á hægri hönd og meðdómara sinn Pál Óskar á vinstri hönd. JÓI FEL Bakarinn mætti með spúsu sína, Unni Helgu Gunnarsdóttur, upp á arminn og voru þau bæði glæsileg á hátíðinni. FLOTT FJÖLSKYLDA Kári Sturluson, Hjördís Unnur Másdóttir og væntanlegur erfingi mættu saman á Edduna. EDDUVERÐLAUNIN LEIKARI/LEIKKONA Í AÐALHLUT- VERKI: Ilmur Kristjánsdóttir - Stelpurnar LEIKARI/LEIKKONA Í AUKAHLUT- VERKI: Pálmi Gestsson - Áramóta- skaupið KVIKMYND ÁRSINS: Voksne mennesker STUTTMYND ÁRSINS: Töframaðurinn LEIKIÐ SJÓNVAPSEFNI ÁRSINS: Stelpurnar TÓNLISTARMYNDBAND ÁRSINS: 70 mínútur vs. Quarashi SKEMMTIÞÁTTUR ÁRSINS: Sjáumst með Silvíu Nótt SJÓNVARPSÞÁTTUR ÁRSINS: Sjálfstætt fólk HANDRIT ÁRSINS: Dagur Kári/Voksne mennesker LEIKSTJÓRN ÁRSINS: Dagur Kári/ Voksne mennesker HEIMILDAMYND ÁRSINS: Africa United eftir Ólaf Jóhannesson ÚTLIT MYNDAR: Latibær - Brúður - Magnús Scheving, Guð- mundur Þór Kárason og Neal Scanlan HLJÓÐ OG TÓNLIST: Voksne mennesker - Slowblow ÞORSTEINN GUÐMUNDSSON Leikarinn góðkunni var kynnir og skartaði forláta gulljakkafötum sem hönnuð voru sérstaklega fyrir þetta tilefni. Margrét Einarsdóttir stílisti og Berglind Magnúsdóttir klæðskeri og kjólahönn- uður eiga heiðurinn að jakkafötunum.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.