Fréttablaðið - 15.11.2005, Qupperneq 67
15. nóvember 2005 ÞRIÐJUDAGUR38
FÓTBOLTI Ellert Jón Björnsson hefur
lengi gengið með þann draum í
maganum að gerast atvinnumaður
í knattspyrna. Tvisvar hefur hann
fengið tilboð frá erlendu félagi
en í hvorugt skiptið gekk dæmið
upp. Hann er þrátt fyrir það ekki
af baki dottinn og ætlar nú að fara
að fordæmi félaga síns, Grétars
Rafns Steinssonar, sem fór í endur-
hæfingu erlendis og kom sér á
framfæri á eigin kostnað með
góðum árangri.
Ellert Jón er fluttur inn til
Grétars Rafns í Alkmaar og hann
hefur nýtt síðustu vikur í að koma
sér í form. Síðan á að láta slag sta-
nda.
„Ég hef verið að æfa með félög-
um hér í Alkmaar og svo var ég
líka í heimsókn hjá Volendam. Ég
stefni á að koma mér í gott form
og síðan ætla ég að reyna að kom-
ast að hjá félögum hér á megin-
landinu. Ég ætti að vera orðinn
góður í næstu viku og þá er bara
spurning hvað gerist,“ sagði Ell-
ert Jón við Fréttablaðið í gær en
umboðsmaður Grétars Rafns mun
aðstoða hann við að komast að hjá
félögum í Hollandi og Belgíu.
„Ég er ekki búinn að bóka mig
hjá neinu félagi og ég gæti verið
kominn heim eftir rúma viku og
ég gæti komið eftir mánuð. Von-
andi verð ég heppinn og fæ að
reyna mig hjá einhverjum liðum.
Ég tel mig eiga fullt erindi í bolt-
ann hérna en fyrst þarf ég að fá
tækifæri til þess að sanna það,“
sagði Ellert Jón fullur sjálfs-
trausts.
- hbg
Ellert Jón Björnsson er fluttur til Hollands með stóran draum í farteskinu:
Fetar í fótspor Grétars Rafns
ELLERT JÓN BJÖRNSSON Býr hjá félaga sínum, Grétari Rafni Steinssyni, í Hollandi og mun
vera áfram hjá honum og freista þess að komast að hjá liði á meginlandi Evrópu.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
HANDBOLTI Leikmenn georgíska
liðsins Mamuli Tíblisi tóku ýmsa
muni ófrjálsri hendi af leikmönn-
um 2. og 3. flokks ÍR í handbolta
um helgina, en lögreglan á Akur-
eyri leitaði að mununum í fórum
georgíska liðsins og komu þeir þá
í ljós. „Við gistum í KA-heimilinu
eins og við gerum alltaf þegar við
komum til Akureyrar. Við fórum
út að borða á laugardagskvöld-
inu og komum til baka um klukk-
an hálftíu og tókum við þá eftir
því að það var búið að taka ýmsa
muni frá strákunum, meðal ann-
ars geislaspilara, geisladiska, föt,
snyrtivörur og ýmislegt fleira.
Forráðamenn KA stóðu sig virki-
lega vel í að leysa þetta mál og
kölluðu á lögreglu sem leysti þetta
mál farsællega og við fengum
mestallt okkar dót til baka eftir
að lögreglan hafði stöðvað liðið.
Það sem við fengum ekki þurftu
Georgíumennirnir að borga fyrir,“
sagði Erlendur Ísfeld, þjálfari 2.
og 3. floks ÍR.
Hjörtur Sigurðsson, vara-
formaður handknattleiksdeild-
ar KA, var að vonum óánægður
með þessa för georgíska liðsins.
„Kostnaðurinn við þessa ferð er
á aðra milljón króna fyrir okkur.
En við horfum fram á veginn og
vonandi fáum við hagstæðari and-
stæðing í næstu umferð.“
Leikmenn georgíska liðsins virt-
ust margir hverjir ekki kunna
handknattleik en KA vann leikina
tvo samtals með 65 marka mun.
- mh
Leikmenn Mamuli gengu
um rænandi og ruplandi
Georgíska handboltaliðið Mamuli Tbilisi lét greipar sópa á Akureyri um helg-
ina. Unglingaflokkar ÍR urðu illilega fyrir barðinu á Georgíumönnunum.
ERLENDUR ÍSFELD Strákarnir sem Erlendur þjálfar hjá ÍR fengu allt sitt dót til baka sem
leikmenn georgíska liðsins höfðu tekið.
Goddi.is, Auðbrekku 19, Kóp. s: 544-5550
BÁTAKERRA LCI-887
548x170cm. galv. með spili. Burðarg. 545 kg.
KERRA
LCI-880
392x134cm, galv.
Burðarg. 270 kg.
Goddi.is, Auðbrekku 19, Kóp. s: 544-5550
Óvenjuleg og falleg
bjálkahús alls 54 fm
með 13 fm. verönd.
Stórlækkað verð á nokkrum húsum.
Læ kað verð.
Goddi.is, Auðbrekku 19, Kóp. s: 544-5550
Salla Sumarhús
- Gestahús
13,1 fm með yfirbyggðri
verönd 388x205 cm
Lækkað verð
Lovísa sumarhús
upphækkað með
tvöföldu gleri 31,3 fm
með svefnlofti og
7,5 fm verönd.
Nokkur hús á tilboðsverði.
Finnskir glæsilegir
arinofnar.
Einnig sauna ofnar
í úrvali raf- eða
viðarkyndur.
ALLTAF
ÓDÝRIR
FÓTBOLTI Kínverska landsliðsmann-
inum Sun Jihai, sem leikur með
Manchester City, er ákaflega annt
um hárið á sér og leggur hann mun
meira á sig en meðalmaðurinn til
þess að fá almennilega klippingu.
Jihai flýgur heila átján þúsund
kílómetra með reglulega millibili
frá Englandi til Kína þar sem hann
treystir enskum hárgreiðslumönn-
um ekki fyrir makkanum á sér.
Þetta er ekki eingöngu löng ferð
heldur einnig dýr enda kostar það
800 þúsund krónur að fljúga á milli
landanna. Svo er flogið aftur til
Englands en ferðalagið í heild tekur
rúman sólarhring.
Kínverjinn Sun Jihai:
Rándýr klipping
PENINGANNA VIRÐI? Klipping Jihai kostar
um 800 þúsund krónur en ekki eru allir
sammála því að greiðslan sé hverrar krónu
virði. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Englendingar eru að
ganga af göflunum eftir sigur
landsliðsins á Argentínu um
helgina og eru nú þegar búnir að
setja milljarða á að England verði
heimsmeistari næsta sumar.
Breskir veðbankar eru búnir
að taka við 500 milljónum punda
í veðmál sem segja að England
verði heimsmeistari í Þýskalandi
næsta sumar. Talið er að sú tala
eigi eftir að þrefaldast áður en
mótið hefst.
Breskir veðmangarar eru í
skýjunum með sigurinn á Arg-
entínu enda fóru Englendingar
hamförum í veðbönkunum en veð-
mangararnir telja flestir ólíklegt
að England verði heimsmeistari.
Enska þjóðin er verulega bjartsýn fyrir HM í Þýskalandi:
Veðjar milljörðum á
enskan HM-sigur
DAVID BECKHAM Hér með enska meistara-
bikarinn ásamt Gary Neville. Margir landar
Beckhams hafa trú á því að hann muni
lyfta heimsmeistarabikarnum næsta sumar.