Fréttablaðið - 18.11.2005, Qupperneq 6
6 18. nóvember 2005 FÖSTUDAGUR
JERÚSALEM, AP Ariel Sharon, for-
sætisráðherra Ísraels, lýsti því
yfir í gær að þingkosningar yrðu
haldnar með vorinu. Palestínu-
menn halda sínar þingkosningar í
janúar og því er ljóst að lítið mun
þokast í friðarviðræðum á meðan
pólitísk óvissa ríkir.
Ríkisstjórn Sharons hefur
staðið veikum fótum að undan-
förnu, ekki síst eftir að stór hluti
félaga hans í Likud-bandalaginu
snerist gegn honum vegna brott-
flutnings landnema frá Gaza í
sumar. Þegar Amir Peretz felldi
Shimon Peres í leiðtogakjöri
Verkamannaflokksins, sam-
starfsflokks Likud í stjórninni, í
síðustu viku var hins vegar ljóst
að dagar ríkisstjórnarinnar væru
því sem næst taldir.
Sharon lýsti því yfir í gær að
í stað þess að kosningar yrðu
haldnar í nóvember á næsta ári
færu þær fram í vor svo að stjórn-
arkreppa ríkti ekki í landinu í
langan tíma. Yosef Lapid, leiðtogi
stjórnarandstöðuflokksins Shin-
ui, greindi svo frá því síðdegis að
samkomulag hefði náðst um að
halda kosningar í lok mars.
Palestínumenn kjósa fulltrúa
til löggjafarsamkundu sinnar í
janúarlok. Því telja stjórnmála-
skýrendur að allir kraftar stjórn-
málamanna svæðisins muni fara
í kosningabaráttuna í stað þess
að nýta þá þíðu sem myndaðist á
milli deilenda í kjölfar brottflutn-
ingsins frá Gaza. - shg
��������
�������
��
��������������������� � � �
����������������������������������������������������������������������� �����������
������������ �������������� �� �����������
���������������� ���������� ��
����������������������������������
���������������������������������������������������������������������
�������������������������������������������� ������������������������������������
����������������������������������������������������������
����������������������������������������������������
�������������������������������������������������
����������������������� ����������������������������������
������������������������������������������������
VIÐSKIPTI Hagnaður Bakkavarar
fyrir skatta nam þremur milljörð-
um króna á fyrstu níu mánuðum
ársins, 2,3 milljörðum eftir skatta.
Hagnaður félagsins á þriðja árs-
fjórðungi nam 971 milljón króna en
rekstrarhagnaður fyrir afskriftir
nam tæpum þremur milljörðum
króna.
Bakkavör hefur tekið miklum
breytingum eftir kaup á breska
matvælafyrirtækinu Geest og
sami ársfjórðungur í fyrra því
ekki samanburðarhæfur. Eignir
félagsins nema nú 112 milljörð-
um króna. Lýður Guðmundsson,
forstjóri Bakkavarar, segir í til-
kynningu að uppgjörið sýni áfram-
haldandi velgengni félagsins eftir
yfirtöku félagsins á Geest í maí
síðastliðnum. Bakkavör er leiðandi
fyrirtæki í framleiðslu tilbúinna
matvæla í Bretlandi.
- hh
Hagnaður Bakkavarar:
Á þriðja millj-
arð eftir skatta
PERETZ VÍGREIFUR Amir Peretz sagði við fréttamenn í gær að Sharon hefði frest til mánu-
dags til að ákveða kjördaginn. „Því fyrr, því betra,“ bætti hann við. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Friðarferlið fyrir botni Miðjarðarhafs hangir í lausu lofti næstu mánuði:
Sharon boðar til kosninga í Ísrael
OLÍUSAMRÁÐ „Alvarlegt um hugs-
unarefni er að fjármála ráðun eytið,
sérstakur gæslumaður hagsmuna
almennings, skuli vísvitandi fara
með rangfærslur hvað varðar niður-
stöðu áfrýjunar nefnd ar sam keppn-
ismála,“ segir Lúðvík Bergvinsson,
þingmaður Sam fylk ing ar innar.
Aðstoðarmaður fjármála ráð-
herra upplýsti í vikunni að ekki
stæði til að sækja fyrir dómi bæt ur
vegna samráðs olíu félag anna, nema
hugsanlega stofnana dóms mála-
ráðuneytis. Hann sagði áfrýjunar-
nefnd samkeppnismála hafa talið
önnur brot gegn stofn unum ríkisins
ósönnuð.
„Þetta er bara rangt,“ segir Lúð-
vík. „Fyrir liggur staðfest að sam-
fellt í sjö ár höfðu olíufélögin ólög-
mætt samráð vegna útboða sem
Vegagerðin stóð fyrir með kost nað-
ar auka upp á tugi ef ekki hundruð
milljóna.“ Hann segir þá spurningu
vakna hvort verið sé að halda sértök-
um hlífiskildi yfir olíufélögunum.
„Og þá sér stak lega fyrrum forstjóra
Skelj ungs, sem sat í fjármálaráði
Sjálf stæðis flokksins, vegna hugs-
anlegra endur krafna sem stofnast
kunna á hend ur forsvarsmönnum
olíu félaganna á þessum tíma, yrðu
þau dæmd bótaskyld.“
Lúðvík telur ótækt annað en að
láta reyna á bótaskyldu olíufélag-
anna gagnvart stofnunum ríkisins
fyrir dómi, enda sé um slíkar upp-
hæðir að ræða. „Ef það er ekki hlut-
verk fjár málaráðuneytisins að gæta
að hagsmunum ríkis og almennings
í málinu þá veit ég ekki hver ætti
annar að gera það.“
Þá átelur Lúðvík einnig hversu
langan tíma rannsókn efna hags-
brota deildar Ríkislögreglustjóra á
sam ráðs málinu taki. „Það er búið
að vera í tvö og hálft ár hjá lögregl-
unni og óþolandi í stærsta
fjársvikamáli sögunnar ef
Ríkis lögreglu stjóri fer ekki
að afgreiða það,“ segir hann
og bendir á að með rann-
sókn sam keppnis yfirvalda
sé nú búið að rann saka brot
olíu félaganna í um fjögur
ár. Hann óttast að frekari
dráttur á rannsókn kunni að
valda réttarspjöllum og leiða
til vægari refsinga. „Dráttur
á rannsókn getur bjargað
mönnum frá fangelsisvist,“
segir hann
Ekki liggur alveg ljóst
fyrir hvenær bótakröfur vegna sam-
ráðs olíufélaganna kunna að fyrnast.
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hæst-
a réttar lögmaður segir almennan
fyrningarfrest á viðskiptakröfum
vera fjögur ár, en
á skaðabótakröf-
um tíu ár. „Svo er
spurningin hvert
upphaf fyrningarfrests myndi vera
í svona máli, hvort miðað væri við
hvenær kröfuhafa verður staða sín
ljós, eða hvenær viðskiptin áttu sér
stað. En ég myndi nú telja það fyrra
líklegt upphaf frestsins,“ segir
hann og telur að í málum á hendur
olíufélögunum yrði miðað við fjögur
ár frá því að ljóst var að brot hefði
verið framið. „Þetta eru kröfur út
af viðskiptum og horfa því öðruvísi
við en til dæmis skaðabótakrafa
vegna slyss.“
olikr@frettabladid.is
Ráðuneytið fer með rangt mál
Þingmaður Samfylkingarinnar, Lúðvík Bergvinsson, segir fjármálaráðuneytið fara rangt með niðurstöðu
áfrýjunarnefndar samkeppnismála vegna samráðs olíufélaganna. Hann spyr hvort haldið sé hlífiskildi yfir
forsvarsmönnum olíufélaganna, þá sérstaklega fyrrverandi forstjóra Skeljungs.
Á BENSÍNSTÖÐINNI Dómsmálaráðuneytið hefur samráð við fjármála-
ráðuneyti og ríkislögmann um hvort höfðað verði skaðabótamál
vegna samráðs olíufélaganna. Málið er enn í skoðun hjá ráðuneyt-
inu. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
LÚÐVÍK BERGVINSSON Lúðvík
vill að ríkið höfði mál til
skaðabóta vegna samráðs
olíufélaganna.
FANGAFLUG Stjórnvöld í æ fleiri
Evrópuríkjum hafa fyrirskipað
rannsókn á fregnum um ferðir
flugvéla, sem sagðar eru hafa
sinnt flutningum á leynilegum
föngum bandarísku leyniþjónust-
unnar CIA, um lofthelgi þeirra og
flugvelli.
Svíþjóð og Finnland bættust í
gær í hóp landa þar sem slík rann-
sókn hefur verið sett í gang. Rann-
sóknardómari á Spáni hefur haf-
ist handa við að rannsaka fregnir
um meintar fangaflugslendingar
CIA þar í landi. Stjórnarandstöðu-
þingmenn í Portúgal, Hollandi og
Austurríki kölluðu eftir rannsókn
í sínum löndum í gær. Dönsk yfir-
völd hafa staðfest að flugvélar sem
gætu hafa verið í þjónustu CIA
hefðu lent á dönskum flugvöllum
að minnsta kosti fjórtán sinn-
um. Norski forsætisráðherrann
Jens Stoltenberg sagði í gær að
talsmenn bandarískra yfirvalda
hefðu fullvissað norsk stjórnvöld
um að „engin fangaflutningavél“
hefði lent í Noregi.
Í frétt AP-fréttastofunnar er
haft eftir Steingrími Ólafssyni,
upplýsingafulltrúa Halldórs
Ásgrímssonar forsætisráðherra,
að ríkisstjórn Íslands væri ekki
kunnugt um slíkt flug um íslenska
flugvelli. Fyrirspurn hefði verið
send bandarískum stjórnvöldum
en svar ekki borist. „Þetta er nokk-
uð sem íslensk stjórnvöld sætta
sig ekki við,“ sagði Steingrímur.
Því hefur verið haldið fram að
meintar fangaflutningavélar hafi
lent að minnsta kosti 67 sinnum
hér á landi, síðast á Reykjavíkur-
flugvelli í fyrradag. - aa
Fleiri Evrópulönd kanna meint fangaflug CIA:
Svíar og Finnar
hefja rannsókn
CIA-VÉL Í REYKJAVÍK? Þessi skrúfuþota af gerðinni Casa CN-235 með einkennisnúmerið
N196D millilenti hér á leið frá Skotlandi til Kanada á miðvikudag. MYND/ATLI MÁR
EIGENDUR BAKKAVARAR GROUP Bræðurnir
Lýður Guðmundsson og Ágúst Guðmunds-
son standa að Bakkavör.
DÓMSMÁL Hæstiréttur staðfesti
í gær þriggja ára fangelsisdóm
Héraðsdóms Reykjavíkur yfir
manni sem nauðgaði fyrrum
sambýliskonu sinni í hrottalegri
og langvinnri árás á heimili
hennar. Honum var einnig gert
að greiða henni eina milljón
króna í miskabætur.
Árásin átti sér stað á mánu-
dagskvöldi í júlí í fyrra, en þá
réðist maðurinn í annarlegu
ástandi inn í íbúðina og réðist
á konuna með margvíslegum og
hrottafengnum hætti.
Maðurinn var einnig ákærð-
ur fyrir fíkniefnabrot og
ölvunar akstur og játaði þá liði
ákærunnar. Nauðguninni neit-
aði hann. Framburður konunnar
var hins vegar talinn trúverð-
ugur og studdur af læknisskoð-
un og framburði vitna. - óká
Nauðgunardómur staðfestur:
Fékk þriggja
ára fangelsi
KJÖRKASSINN
Eiga íslensk stjórnvöld að banna
lendingar fangaflugvéla CIA hér
á landi?
Já 74,2%
Nei 25,8%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Ertu sátt(ur) við frumvarp
um bætta réttarstöðu samkyn-
hneigðra? Segðu skoðun þína á Vísi.is
Tveir á sjúkrahús Maður slasaðist við
Hellis heiðar virkjun um klukkan ellefu
um morguninn, en að sögn lögreglu
virtist sem hann hefði fallið af bifreið.
Hann var fluttur með sjúkrabíl á á slysa-
deild Landspítala - háskólasjúkrahúss
í Fossvogi. Þá féll maður úr stiga við
sumarbústað í uppsveitum Árnes sýslu
um klukkan þrjú síðdegis í gær. Sá
var að sögn lögreglu fluttur á heilsu-
gæslustöðina í Laugarási og þaðan á
Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi
til frekari aðhlynningar.
LÖGREGLUFRÉTTIR