Fréttablaðið - 18.11.2005, Blaðsíða 83

Fréttablaðið - 18.11.2005, Blaðsíða 83
 18. nóvember 2005 FÖSTUDAGUR HANDBOLTI Þegar Viggó Sigurðs- son valdi landsliðshóp sinn fyrir æfingamót í Póllandi á dögunum ákvað hann að velja hvorki Ásgeir Örn Hallgrímsson og Arnór Atlason, sem hafa verið meðal mestu vonar- stjarna í íslenskum handknattleik. Ástæðuna sagði Viggó vera þá að þeir hefðu ekki tekið framförum í Þýskalandi og svo hefðu þeir ekki staðið sig nógu vel á HM U-21 árs liða í Ungverjalandi í sumar. Ekki voru allir handboltaspek- ingar landsins sammála Viggó í því að þeir hefðu ekki tekið framförum í Þýskalandi, hvað þá að þeir hefðu spilað svona illa í Ungverjalandi. Því er erfitt að skilja ákvörðun Viggós öðruvísi en að hann sé að refsa þeim tveimur fyrir gengið í Ungverjalandi, sem var langt undir væntingum. Arnór á ekki heimangengt í leikina gegn Norðmönnum um næstu helgi og kom því ekki til greina í hópinn en Ásgeir stóð Viggó til boða. Þó Ólafur Stefáns- son geti ekki leikið og Viggó hafi valið fjóra örvhenta leikmenn var ekkert pláss fyrir Ásgeir. Hann er ekki sáttur. „Auðvitað er ég hundfúll með að vera ekki valinn. Ég verð að taka það jákvæða úr þessu og einbeita mér að Lemgo af fullum krafti í staðinn,“ sagði Ásgeir Örn, sem skilur ekki rök Viggós fyrir valinu. „Mér finnst þær ástæður sem Viggó gefur fyrir því að velja mig vafasamar.“ Ásgeir segir Viggó ekki hafa hugmynd um það hvort hann hafi tekið framförum hjá Lemgo eða ekki. „Ég held hann hafi ekki talað við neinn hjá félaginu eða mætt á leiki. Hann hefur ekki hugmynd um hvaða formi ég er í en ég get sagt þér að ég er í toppformi og hef þar að auki tekið framförum. Það er ekki skrítið enda er ég að æfa við toppaðstæður og á móti topp- mönnum og þarf að hafa verulega fyrir hlutunum á hverjum degi ef ég ætla ekki að lenda undir í bar- áttunni,“ sagði Ásgeir Örn, sem stefnir ótrauður í landsliðið á ný. henry@frettabladid.is Ástæður Viggós fyrir valinu eru vafasamar Ásgeir Örn Hallgrímsson er enn í kuldanum hjá Viggó Sigurðssyni. Ásgeir segir Viggó ekki hafa hugmynd um hvaða ástandi hann sé í þessa dagana og hvorki hafa leitað upplýsinga hjá sér né félagi sínu. ÁSGEIR ÖRN HALLGRÍMSSON Telur sig ekki fá sanngjarna meðferð hjá Viggó Sigurðssyni, landsliðsþjálfara í handbolta, sem hefur skilið hann út úr landsliðshópnum í tvígang. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR FÓTBOLTI Ásthildur Helgadóttir skrifaði gær undir eins árs samn- ing við Breiðablik en hún hefur undanfarin ár leikið við góðan orðstír með Malmö FF í Svíþjóð. „Þetta var nokkuð erfið ákvörð- un og á endanum var það vinnan sem réð úrslitum en ég fékk góða vinnu hjá Línuhönnun sem ég er spennt fyrir. Að auki er ég svo alin upp í Breiðabliki og aðstaðan hjá félaginu er til fyrirmyndar. Það verður spennandi að vera með Þóru systur hér á næsta ári,“ sagði Ásthildur, sem er verkfræðingur að mennt. Það má búast við Íslands- og bikarmeisturum Breiðabliks enn sterkari á næsta ári en í sumar enda Ásthildur knattspyrnukona á heimsmælikvarða. Hún telur mikilvægt að félögin sjálf einbeiti sér að því að skapa knattspyrnu- konum metnaðarfullt umhverfi. „Ég veit ekki hvort Íslandsmót- ið verður óspennandi en það er alveg ljóst að hvert félag fyrir sig leggur metnað í starfið og upp- sker eftir því. Breiðablik er þessa stundina alveg til fyrirmyndar í þessum efnum.“ Karl Brynjólfsson, formaður meistaraflokksráð kvenna, var afar ánægður við undirskriftina. „Við byrjuðum frá grunni á síð- asta ári og það var alltaf hluti af áætluninni að byggja liðið upp á uppöldum leikmönnum og Ást- hildur er ein af þeim.“ - mh Fyrirliði kvennalandsliðsins kominn á heimaslóðir: Ásthildur komin til Blika ÁSTHILDUR HELGADÓTTIR Ásthildur sagði það mikið ánægjuefni að fá að leika með systur sinni Þóru Helgadóttur. KÖRFUBOLTI Haukastúlkur máttu þola enn eitt tapið í Áskorenda- keppni kvenna í körfubolta í gær- kvöldi og í þetta sinn biðu þær í lægri hlut fyrir stöllum sínum í Pays D´Aix frá Frakklandi, 41- 105. Eins og tölurnar gefa til kynna mættu Haukastúlkurnar algjör- um ofjörlum sínum, enda Pays D´Aix talið eitt af sterkustu liðum Evrópu og spá því margir sigri í þessari keppni í ár. Helena Sverrisdóttir var atkvæðamest Hauka eins og svo oft áður í gærkvöldi - hún skoraði 12 stig og tók sjö fráköst en liðið lék án Reishu Bristol. Jelena Jov- anovic skoraði 13 stig fyrir Hauka og Ösp Jóhannsdóttir sex. Haukar eru sem fyrr í neðsta sæti riðils síns í Evrópukeppninni og hafa ekki unnið leik en fyrir löngu er orðið ljóst að reynslan sem leikmenn liðsins fá í þessari keppni mun reynast þeim dýrmæt í framtíðinni. - vig Haukar fengu Pays D´Aix í heimsókn í Evrópukeppni kvenna í körfubolta í gær: Haukastúlkur töpuðu stórt á Ásvöllum HELENA SVERRISDÓTTIR Brýst hér framhjá varnarmanni Pays D´Aix í gærkvöldi. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.