Fréttablaðið - 18.11.2005, Blaðsíða 47
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ { Austurland } ■■ 9
Le
yf
ðu
o
kk
ur
a
ð
þj
ón
a
þé
r
Le
yf
ðu
o
kk
ur
a
ð
þj
ón
a
þé
r
Átta álfa- og vættasögur frá Borgarfirði eystra í leikgerð.
Ásgríms Inga Arngrímssonar í leiklestri úrvalsleikara.
Verð aðeins krónur 1.500,-.
Ókeypis heimsending ef pantað er fyrir 1. desember.
Dreifing: Ferðaskrifstofa Austurlands sími 471-2000 netfang info@fatravel.is
Hjá Ferðaskrifstofu Austurlands er alhliða ferðaþjónusta á einum stað.
• Flugbókanir innanlands sem utan
• Skipulag ferða fyrir erlenda verkamenn
• Skipulag og framkvæmd funda og ráðstefna
Finnum ávallt hagkvæmustu og bestu lausnina.
Þjónustum fyrirtæki um allt land.
Er gönguhópurinn þinn að leita að verðugu verkefni!
Frábærar gönguleiðir við allra hæfi á Austurlandi. Víknaslóðir, Landið.
sem hverfur undir Hálslón og virkjanir, Gerpissvæði, Lónsöræfi og margar fleiri.
Leyfðu okkur að þjóna þér við skipulag ferðarinnar. Leiðsögn, ferðir, fæði
og afþreying að ykkar þörfum.
Spyrjið þá er reynt hafa.
Austurlandið heillar
Þjóðlegt í jólapakkann og skóinn...
Er fyrirtækið þitt á ferðinni?
Lúxusgönguferðir
Kaupvangi 6 · 700 Egilsstaðir · Sími +354 4712000 · Fax: +354 4712001
info@fatravel.is · www.fatravel.is
Ferðaskrifstofa Austurlands
FA_Travel_Aug_161105.eps 11/16/05 3:09:43 PM
„Það er mikil gróska í þessu hjá
okkur,“ segir náms- og starfsráð-
gjafinn Emil Björnsson, sem jafn-
framt er framkvæmdastjóri
Fræðslunets Austurlands. „Sumir
þessara nema eru í masters og dokt-
orsnámi, og hafa aðgang að okkar
þjónustu á Háskólanámssetrinu.“
Fræslunet Austurlands er sjö
ára gömul sjálfseignarstofnun sem
starfar um allt Austurland, frá
Skeiðará í suðri að Langanesi í
norðri. „Fyrst og fremst erum við í
námskeiðahaldi, og að miðla námi
frá háskólunum,“ segir Emil. Með-
al annars býður fræðslunetið upp
á íslenskunám fyrir útlendinga,
tölvunámskeið, og ýmis konar
starfstengd- og tómstundanám-
skeið, og eru þessi almennu nám-
skeið á markaðsverði. Jafnframt
sér Fræðslunetið um próftökur
fólks sem er í fjarnámi við erlenda
háskóla, og í augnablikinu er boð-
ið upp á ókeypis námskeið sem
ætlað er að auðvelda fólki að
finna sér framtíðarstarf.
„Þetta er í rauninni til að takast
á við breytingar á vinnumarkaðin-
um á Austurlandi,“ segir Emil.
Fræðslunetið tekur einnig þátt í
rekstri námsvera á nokkrum stöð-
um á Austurlandi í samstarfi við
framhaldsskóla og sveitarfélög, og
geta nemendur sótt myndfundi,
lesaðstöðu og ráðgjöf til þessara
staða.
Menntaskólinn á Egilsstöðum var
stofnaður árið 1979, og stunda nú
um 300 nemar dagnám við þann
skóla, og um 70 eru í utanskólanámi.
„Þrátt fyrir nafnið, förum við
eftir áfangakerfi, og megináherslan
er á stúdentspróf,“ segir Helgi Ómar
Bragason, skólameistari. „Við erum
líka með styttra nám, oft í kvöld-
skóla, við erum til dæmis með
skrifstofubraut og leiðsögumanna-
nám, og það er þá í samstarfi við
hina framhaldsskólana hér.“
Í skólanum er heimavist fyrir um
120 nemendur, en í í heimavistar-
húsi er einnig mötuneyti, hátíðar-
salur, skrifstofur skólans, kennslu-
stofur, bókasafn og lesaðstaða. Auk
þess er kennsluhús með skólastof-
um og vinnuaðstöðu kennara.
Íþróttir eru kenndar í glæsilegri
íþróttamiðstöð á Egilsstöðum.
Verkmenntaskóli Austurlands er
staðsettur á Neskaupstað, og býður
upp á bæði bóklegt og verklegt
nám. Í skólanum fer fram kennsla í
grunndeildum tré-, málm- og raf-
iðna og framhaldsdeildir iðnnáms
eru í vélsmíði, rennismíði, húsa-
smíði og rafvirkjun. Þá er einnig
boðið upp á nám til stúdentsprófs á
félagsfræði- og náttúrufræðibraut-
um, og býður VA upp á nám í hár-
snyrtiiðn, nám á sjávarútvegsbraut
og sjúkraliðabraut. Við skólann er
rúmgóð heimavist og aðstaða til
íþrótta er í íþróttahúsi bæjarins.
Auk ME og VA eru tveir aðrir
framhaldskólar á Austurlandi,
Framhaldsskóli Austur-Skaftafells-
sýslu á Hornafirði og Hússtjórnar-
skólinn á Hallormsstað. Jafnframt
er hægt að stunda fjarnám við
Verkmenntaskólann á Akureyri,
Fjölbrautaskólann við Ármúla og
Iðnskólann í Reykjavík. Háskól-
arnir sem bjóða upp á fjarnám í
gegnum Fræðslunet Austurlands
eru átta: háskólarnir á Akureyri, í
Reykjavík, Íslands, á Hólum,
Kennaraháskólinn, Landbúnaðar-
háskóli, Viðskiptaháskólinn á Bif-
röst og Listaháskólinn.
Fjölbreytt framhaldsnám í boði
Hægt er að leggja stund á ýmisskonar framhaldsskólanám á Austfjörðum. Stúdentar,
útlærðir iðnaðarmenn, hársnyrtar og sjúkraliðar útskrifast frá fjórum framhaldsskólum,
sem og frá þremur framhaldsskólum sem bjóða upp á fjarnám.
Þorbjörg Ásbjörnsdóttir bóndi er í fjarnámi í þroskaþjálfanámi, og notar mikið aðstöðuna
sem Fræðslunet Austurlands býður upp á.
Félagsmiðstöðvarnar Ný-
ung og Afrek í Fljótsdals-
héraði eru ætlaðar ungu
fólki á aldrinum 12 til 16
ára, en aðaláherslur í starf-
inu eru á unglinga 14 til
16 ára.
„Áttundi, níundi og tíundi hópur er
aðal markhópurinn í dag, en við
erum með opnanir alveg niður í
fimmta bekk,“ segir Þráinn Sig-
valdason, forstöðumaður félagsmið-
stöðvanna. „Aðsóknin er mjög góð,
í Nýung koma um 20 til 50 krakkar
úr efstu bekkjunum á kvöldin þegar
er opið, af 94 krökkum, og í Afreki
koma á milli 20 og 40 krakkar af 60.
Yngri bekkirnir mæta nánast allir.“
Þær bjóða upp á ýmis námskeið,
klúbbastarfssemi og hefur góða að-
stöðu fyrir unglingana. Til dæmis
eru þar vel útbúin tölvuver með
bæði leikjatölvum og nettengingu,
sem og billjardborð, borðtennisborð,
píluspjöld og fleira. Jafnframt hafa
félagsmiðstöðvarnar fína heimabíó-
aðstöðu, og gegna lykilhlutverki í
vinnu við forvarnir. „Eins erum við
með helgarsport, þá koma krakkar
annað hvert föstudagskvöld í
Íþróttahúsið frá klukkan 10 til 12, og
fá að sprikla. Þá er alltaf fullt hús,“
segir Þráinn. Félagsmiðstöðvarnar
halda uppi miklu samstarfi við aðr-
ar félagsmiðstöðvar á Austurlandi
og stofnanir sem starfa á landsvísu,
svo sem Flakkferðir og Hitt Húsið í
Reykjavík. Eins hafa miðstöðvarnar
tekið þátt í Evrópuverkefnum, og
árið 2003 tóku Egilsstaðir á móti 67
unglingum frá fimm löndum, og
sama ár fóru 10 unglingar til Portú-
gal vegna þessa verkefnis.
Kraftur í unglingum
á Egilsstöðum
Unglingar frá Fljótsdalshéraði sýndu mikla hæfileika í stílkeppni sem haldin var í fyrra.
08-09 lesið 17.11.2005 15:30 Page 3