Fréttablaðið - 18.11.2005, Síða 12

Fréttablaðið - 18.11.2005, Síða 12
12 18. nóvember 2005 FÖSTUDAGUR F í t o n / S Í A Sævarhöf›a 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opi›: Mánudaga – föstudaga kl. 9:00-18:00 og laugardaga kl. 12:00-16:00 ÆVINT†RIN ERU ENN A‹ GERAST Pathfinder SE Ver›tilbo› 4.290.000.- Lúxusjeppi á vetrardekkjum, sjálfskiptur, 7 manna, cruise control og allur pakkinn. 44.619.- á mánu›i* m.v. 20.000 km akstur á ári 79.229.- á mánu›i* Rekstrarleiga me› fljónustu í 36 mán. PATHFINDER NISSAN *L‡sing 30% útborgun og eftirstö›var í 84 mánu›i. 32” dekk fylgja me›! SKIPT_um landslag JÚSJENKÓ Í FRAKKLANDI Viktor Júsjenkó Úkraínuforseti tekur hér í höndina á viðskiptajöfrinum Louis Schweitzer, for- manni samtaka atvinnulífisins í Frakklandi. Júsjenkó heimsótti samtökin í fyrradag í tveggja daga opinberri heimsókn sinni til Frakklands. FRÉTTABLAÐIÐ/AP ALNÆMI Yfir tvær milljónir eru sýktar af alnæmisveirunni í Suður-Ameríku og hafa menn vaxandi áhyggjur af þeim fjöl- da barna og unglinga sem eru í þeim hópi. Af þessum tveimur milljónum eru 700 þúsund ung- menni á aldrinum 15 til 24 ára og fimmtíu þúsund hafa ekki náð þeim aldri. Starfsmenn Barnahjálpar Sam- einuðu þjóðanna hafa af þessu miklar áhyggjur enda fjölgar þeim börnum hratt sem fæðast með alnæmi sem móðir þeirra hefur fengið. Sjá menn fram á að tala sýktra barna og ungmenna verði komin yfir milljón árið 2010 ef ekki verði gripið til aðgerða nú þegar. Alnæmi dregur árlega 140 þúsund manns til dauða í Suður- Ameríku og margir af þeim látnu skilja eftir sig börn sem einnig eru sýkt. Veldur það mikl- um vandræðum þar sem fáir fósturforeldrar eru reiðubúnir til að taka við börnum sem eiga eftir að lifa í hæsta lagi í tíu til tuttugu ár. - aöe Alnæmi er vaxandi vandamál í Suður-Ameríku: Tæp milljón barna er smituð EIN MILLJÓN SÝKTRA BARNA ÁRIÐ 2010 Sífellt fleiri börn fæðast með alnæmi í Suður-Ameríku og mun fjöldi þeirra líklega fara yfir milljón á næstu árum. ILLA ÚTLEIKINN Íslamska fræðimannafélagið í Írak birti í vikunni þessar myndir af manni sem það segir hafa sætt pyntingum af hendi írösku lögreglunnar. NORDICPHOTOS/AFP BAGDAD, AP Bayn Jabr, innanrík- isráðherra Íraks, sakaði þá sem gagnrýnt hafa stjórnina fyrir illa meðferð á súnníum um að ýkja sögur um pyntingar af pólitískum hvötum. Talsmenn súnnía eru hins vegar æfir og krefjast óháðrar rannsóknar. Jabr boðaði til blaðamanna- fundar í gær til að slá á ólguna sem blossaði upp eftir að bandarískir hermenn fundu 173 fanga, illa á sig komna, í einni af byggingum ráðuneytsins. Í stað auðmýktar réðist Jabr hins vegar á þá sem gagnrýnt höfðu ríkisstjórnina og sakaði þá um að styðja uppreisn- armenn og vera í pólitískum hrá- skinnaleik. Í fangageymslunum hefði verið að finna jafnt sjía sem súnnía en einnig hefðu verið þar „hættulegir hryðjuverkamenn“. Hann sagði að „aðeins“ sjö fang- ar hefðu sætt misþyrmingum og þeir sem þeim hefðu beitt yrðu látnir svara til saka. „Ég er alfar- ið á móti pyntingum og ég mun refsa þeim sem pynta fanga. Ég bendi hins vegar á að enginn var hálshöggvinn eða myrtur á annan hátt.“ Málið sýnir öðru fremur hversu grunnt er á því góða á milli íraskra sjía og súnnía. Þeir fyrrnefndu sættu ofsóknum á valdatíma Baath-flokks Saddam Hussein þar sem súnníar voru í öndvegi. Í dag eru sjíar hins vegar við stjórn- völinn í lykilráðneytum Íraks, þar á meðal innanríkisráðuneytinu, og er augljóst að mörgum þykir tími til kominn að jafna sakirnar við sína fornu fjendur. Óttast er að verið sé kerfisbundið að hræða súnnía frá þátttöku í þingkosning- unum 15. desember. Orð Jabr féllu í grýttan jarðveg hjá súnníum og lét Abdul-Salam al-Kubais, talsmaður íslamskra fræðimannafélagsins, þá skoðun sína í ljós við AP-fréttastofuna að innanríkisráðuneytinu væri ekki treystandi til að inna af hendi rannsókn málsins. „Við erum ekki að ásaka neinn en það er ljóst að lögregla hefur handtekið okkar fólk og síðan finnast lík þess. Ef ráðherrann veit ekki af þessu á hann að segja af sér.“ Annar tals- maður súnnía kvaðst hafa heim- ildir fyrir því að misþyrmingar tíðkuðust í að minnsta kosti þrem- ur fangelsum til viðbótar. Manfred Nowak, sérfræðing- ur Sameinuðu þjóðanna í rann- sókn pyntingamála, styður kröfur súnnía um óháða rannsókn. „Það er á allra vitorði að pyntingar eru ennþá stundaðar í Írak þótt Saddam sé á bak og burt. Þetta er skelfilegur veruleiki en stað- reyndin er samt sú að við höfum fengið tilkynningar um þessi leynifangelsi í nokkurn tíma.“ sveinng@frettabladid.is Pyntingasögur sagðar ýktar Innanríkisráðherra Íraks segir ásakanir um að súnníar í haldi lögreglunnar hafi verið pyntaðir vera ýkjur. Súnníar krefjast óháðrar rannsóknar. BAYN JABR Innanríkisráðherrann segir málið storm í vatnsglasi. FRÉTTABLAÐIÐ/AP BANDARÍKIN Tæplega tveggja metra langur krókódíll gerði sér lítið fyrir í gær og laumaði sér inn á flugvöll- inn í Miami. Dýrið óð yfir nokkrar af flug- brautunum áður en það kom sér fyrir á grasflöt á vallarsvæðinu. Þar sem nokkur hætta skapaðist af þessu ferðalagi krókódílsins brugð- ust flugvallarstarfsmenn skjótt við og kölluðu á dýraeftirlitsmann sem handsamaði skepnuna, tjóðraði hana og flutti á brott með hjálp lög- reglu. Ekki fylgir sögunni hvert farið var með gestinn óboðna en væntan- lega á stað þar sem flugvélagnýrinn var minni. ■ Handagangur í öskjunni: Krókódíll á flugbrautinni ����� ��������������� ���������������� ��������� �������������� EMBÆTTI Forseti Íslands, Ólaf- ur Ragnar Grímsson, og Dorrit Moussaieff forsetafrú hafa þegið boð um að vera viðstödd embætt- istöku Alberts II fursta af Mónakó sem fram fer við hátíðlega athöfn á morgun í dóm- kirkjunni í Monte Carlo. Hefjast hátíð- arhöldin strax í kvöld þegar öllum gestum verður boðið til kvöld- verðar. Strax að embættistökunni lokinni á morgun verða gestir viðstaddir hersýningu og sérstak- an knattspyrnuleik sem fram fer af þessu tilefni. Annað kvöld er svo hátíðarkvöldverður en hátíð- arhöldunum lýkur formlega á sunnudaginn. ■ Nýr fursti í Mónakó: Embættistaka Alberts fursta ALBERT Á ÍSLANDI
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.