Fréttablaðið - 18.11.2005, Side 17

Fréttablaðið - 18.11.2005, Side 17
FÖSTUDAGUR 18 . nóvember 2005 17 NÝJAR OG VINSÆLAR GEISLAPLÖTUR Á TILBOÐI Skífan Laugavegi 26 opið alla daga til 22 · Skífan Smáralind · Skífan Kringlunni · Póstkröfusími 591-5310 · www.skifan.is skemmtir þér ;) Í VERSLUNUM SKÍFUNNAR Madonna-Confessions On A Dancefloor Madonna er í einstaklega góðu formi á nýju plötunni “Confessions On A Dancefloor” sem er troðfull af fjörugum og grípandi smellum. Destiny’s Child-Number 1’s Safnplata sem spannar litríkan feril Destiny’s Child og er jafnframt svanasöngur tríósins. Hér eru 13 topplög frá stúlkunum og 3 glæný lög að auki. Green Day-Bullet In A Bible Sögur af mögnuðum tónleikum Green Day fóru sem eldur í sinu um rokkheima eftir útgáfu rokkóperunnar “American Idiot” og hér er tvöfaldur tónleikapakki á geislaplötu og DVD diski. Deftones-B Sides & Rarities Tvöfaldur pakki sem inniheldur annars vegar sjaldgæfar upptökur úr smiðju Deftones og hins vegar er DVD diskur sem færir okkur 10 myndbönd og heilan helling af aukaefni. Anastacia-Pieces Of A Dream Anastacia hefur tröllriðið vinsældarlistum undanfarin ár og hér er skotheld safnplata sem inniheldur einnig nýja lagið Pieces Of A Dream. Il Divo-Ancora Það var að koma út ný plata frá Il Divo piltunum. Á nýju plötunni flytja þeir perlur á borð við Unchained Melody, Hero, I Believe In You, Ave Maria o.fl. og fá Celine Dion og fleiri góða gesti í heimsókn. Úrvalið er í Skífunni! 1.999 kr. CD 1.999 kr. CD 1.999 kr. CD 1.999 kr. CD 1.999 kr. CD 2.499 kr. CD+DVD Mojo DV KONUNGLEGT BRÚÐKAUP Sayako, yngri dóttir Akihitos Japanskeisara, og eiginmað- ur hennar Yoshiki Kuroda svara spurning- um blaðamanna eftir brúðkaup þeirra sem fram fór á hóteli í Tókýó í vikunni. Með því að giftast Kuroda, sem ekki er af aðalsætt- um, missti Sayako prinsessutitil sinn. FRÉTTABLAÐIÐ/AP DÓMSMÁL Aron Pálmi Ágústsson vinnur nú að því að koma heimili sínu í bænum Beaumont í Texas í horfið eftir að fellibylurinn Ríta reið yfir á heimaslóðum hans. „Ég hef unnið mikið við húsið og mér líður mestmegnis ágætlega,“ segir Aron. Aron hefur einnig barist fyrir því upp á síðkastið að lífi fangans Stanley Williams verði þyrmt, en hann bíður dauðarefsingar. „Ef ekkert verður að gert verður hann tekinn af lífi 13. desember,“ segir Aron. „Ég vona að hann fái að lifa.“ - saj Aron Pálmi Ágústsson: Í baráttu gegn dauðarefsingu ARON PÁLMI ÁGÚSTSSON DANMÖRK Sigurvegari sveitar- stjórnarkosninganna í Danmörku á þriðjudag er Ritt Bjerregaard, borg- arstjóraefni jafnaðarmanna í Kaup- mannahöfn. Flokkur hennar fékk rúmlega þriðjung atkvæða og bætti fylgi sitt þónokkuð. Ritt verður fyrsta konan til að gegna starfi yfir- borgarstjóra Kaupmannahafnar. Ritt Bjerregaard hefur verið lengi í stjórnmálum. Hún var ráð- herra um árabil og nú síðast þing- maður. Helsti keppinautur henn- ar Søren Pind, oddviti Venstre, tilkynnti um afsögn sína um leið og fyrstu tölur lágu fyrir en flokkur hans tapaði þremur borgarfulltrú- um. Radikale Venstre bætti töluvert við fylgi sitt í borginni og stefnir allt í að flokkurinn starfi í meiri- hluta með jafnaðarmönnum út kjör- tímabilið. „Ég er mjög sáttur við nýja borgarstjórann,“ sagði Gerner Nielsen, einn þeirra Kaupmanna- hafnarbúa sem Fréttablaðið náði tali af í gær. „Ég kýs alltaf Jafnaðarmannaflokkinn og því er þetta góð niðurstaða. Það hefði verið slæmt ef Venstre hefði kom- ist til valda.“ Kona á miðjum aldri var einnig ánægð. Hún sagði skipta miklu máli að fá jafn reynslumikinn stjórnmálamann eins og Ritt í emb- ættið. Hún væri útlendingur og því fyndist henni Jafnaðarmannaflokk- urinn vera besti kosturinn fyrir sig. Knuud Nielsen var hins vegar ekki eins ánægður. „Þetta var ekki góð niðurstaða. Ritt á ekki far- sælan feril að baki og er spillt. Ég hefði miklu frekar viljað fá Klaus Bondam frá Radikale Venstre í borgarstjórasætið.“ „Þetta er hið versta mál enda hef ég ekki verið sáttur við störf Ritt hingað til,“ sagði ungur karlmaður. „Ég kaus Íhaldsflokk- inn en því miður kom hann ekki nógu vel út.“ ■ Stefnir í samstarf jafnaðarmanna og Radikale Venstre út kjörtímabilið í Kaupmannahöfn: Fyrsta konan á borgarstjórastóli KNUUD NIELSEN Finnst útkoma kosning- anna hið versta mál. GERNER NIELSEN Er ánægður með nýja borgarstjórann. DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykja- víkur féllst í gær á það með Spari- sjóði Vestfirðinga að kröfur sjóðs- ins í þrotabú Kristjáns Ragnars Kristjánssonar, eins sakborninga í Landssímamálinu, væru veðkröf- ur. Slíkar kröfur njóta forgangs við uppgjör þrotabúa. „Það var fallist á allar okkar kröfur,“ segir Björn Jóhannesson, lögmaður Sparisjóðsins, en málið snýst um lántökur Lífsstíls, eins fyrirtækjanna sem fyrir koma í Landssímamálinu og Kristján var í forsvari fyrir. Hann sagði nú á forræði skiptastjóra að ákveða næstu skref, hvort kröfurnar yrðu teknar til greina eða málinu vísað til Hæstaréttar. - óká Tekist á um kröfur í þrotabú: Sparisjóðurinn hafði betur SVÍÞJÓÐ Ofbeldi virðist afar algengt á meðal ungs fólks í Svíþjóð. Könnun sem dagblaðið Dagens Nyheter greinir frá sýnir að strákar lenda oftast í átökum úti á götu á kvöldin og um helg- ar meðan stelpurnar eru beittar ofbeldi heima. Rúmlega 3.800 átján ára Svíar svöruðu spurningum um hvort þeir hefðu verið beittir ofbeldi eða verið hótað, þar af aðeins um 1.400 strákar. Helmingur þeirra sem svöruðu hafði orðið fyrir hótunum. Helmingur strákanna hafði sætt barsmíðum niðri í bæ meðan stúlkurnar urðu frekar fyrir ofbeldi heima og í ástar- samböndum. Þriðjungur ung- mennanna hafði verið beittur ofbeldi heima, venjulega af syst- kinum, fimm prósent af móður sinni og átta prósent af hendi föður. - ghs Sænskir unglingspiltar: Helmingur laminn

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.