Fréttablaðið - 18.11.2005, Síða 18

Fréttablaðið - 18.11.2005, Síða 18
 18. nóvember 2005 FÖSTUDAGUR18 nær og fjær „ORÐRÉTT“ Hafðu ekki áhyggjur – þú gerir það „Ég vona bara að ég verð- skuldi þetta.“ Guðrún Helgadóttir rithöfundur um Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar sem hún hlaut á miðvikudag. Fréttablaðið. Erfitt „Síðustu ár ævi minnar hafa ekki verið eintóm velgengni. Þátturinn er kominn af dag- skrá og síðasta bókin mín fékk einróma lélega dóma.“ Guðmundur Steingrímsson fjölmiðla- maður í Fréttablaðinu. „Við finnum mikinn áhuga og meðbyr,“ segir Páll Halldórs- son, bókbindari og fyrrverandi flugstjóri hjá Landhelgisgæsl- unni, en hann er í svonefndum JAM-bókbindarahópi sem sýnir verk sín í Þjóðmenningarhúsinu þessa dagana. Þar má líta fjölda innbundinna bóka sem ýmist eru unnar með gamla laginu, líkt og Guðbrandsbiblía forðum, eða nútíma handbandi. Páll segir bókbindara hittast reglulega og ráða ráðum sínum og greinilegt sé að bókbandið sé í mikilli sókn. „Á tímabili var mjög dauft yfir þessu en nú er einhver vakning. Við handbók- bindarar erum handvissir um að þetta á eftir að aukast áfram og verða mjög vinsælt,“ segir Páll. Sjálfur hefur hann haft ríkan áhuga á bókbandi síðan hann var unglingur. „Ég hef alltaf lesið mikið og finnst gaman að hafa bækurnar mínar í góðu bandi.“ Hann lærði iðnina í Iðn- skólanum samhliða flugnáminu og hefur bundið inn bækur í hundraðavís um ævina. „Þetta er gjörólíkt flugstörf- unum,“ segir Páll en hann var hjá Landhelgisgæslunni í ára- tugi. „Bókbandið kallar á þolin- mæði og nostur enda tekur um tíu til tuttugu klukkustundir að binda inn eina bók.“ PÁLL HALLDÓRSSON BÓKBINDARI Bókbandið kallar á þolinmæði og nostur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Páll Halldórsson og fleiri bókbindarar sýna verk sín í Þjóðmenningarhúsinu: Bókbandið er í mikilli sókn OG TYLLT Á VÖRUBÍLSPALLHANN HÍFÐUR NIÐUR TURNINUM LYFT UPP AF KIRKJUNNI Vegna fúa í timbri hefur turn Bíldudalskirkju verið tekinn niður og er unnið að endursmíði hans. Reglulega eru gömul hús endur- bætt enda þörf á viðhaldi þegar árin segja til sín. Á það við um kirkjur líkt og önnur hús. Sjald- gæft er þó að heilu turnarnir séu teknir af kirkjum þegar ráðist er í viðgerðir en Bíldudalskirkja má una við það að vera turnlaus næstu vikurnar. Á næsta ári er liðin öld frá smíði kirkjunnar og verður turn- inn kominn á sinn stað og kirkjan öll orðin fín og flott þegar afmæl- isins verður minnst. BÍLDUDALSKIRKJA Heldur hefur dregið úr reisn kirkjunnar eftir að turninn var tekinn niður en hún verður glæsileg sem aldrei fyrr þegar viðgerðum er lokið og turninn kominn á sinn stað. MYND/PÁLL ÁGÚSTSSON Kirkjuturninn hífður af GÓÐGLAÐIR VÍNGERÐARMENN Gleði ríkir jafnan meðal franskra víngerðar- og vínáhuga- manna þriðja fimmtudag í nóvembermánuði ár hvert en þá hefst sala, og um leið drykkja, á Beaujolais Noveau rauðvíninu. Myndin var tekin í Lyon í Frakklandi í fyrrinótt. FRÉTTABLAÐIÐ/AP AUGL†SINGASÍMI 550 5000 Mest lesna vi›skiptabla›i› FYLGIR FRÉTTABLA‹INU ALLA MI‹VIKUDAGA G al lu p k ö n n u n f yr ir 3 6 5 p re n tm i› la m aí 2 0 0 5 . „Það er allt gott að frétta héðan,“ segir Ragnheiður Hákonardóttir, bæjarfulltrúi og svæðisleiðsögumaður í Ísafjarðarbæ. Hún segir að það hafi haustað snemma fyrir vestan og veturinn hefur líka gert vart við sig. „Svo gruna ég fólk um að vera komið töluvert í jólahugleiðingar,“ bætir hún við, „hér er að minnsta kosti mikið að gerast í menningarlífinu, kórar að syngja og alls kyns sýningar standa yfir. Síðan er fólk farið að sækja jólahlaðborðin og taka þátt í aðdraganda jólanna. Það er svo margt skemmtilegt að gerast á þessum tíma,“ segir Ragnheiður. Og vetrinum fylgir skíðavertíð og hún segir skíðamenn komna á kreik. „Já, gönguskíðamenn eru farnir að ganga og það er komið skíðafæri fyrir aðra. En þeir eru ekki farnir að sinna því að ráði, það verður ekki fyrr en eftir áramót.“ Sjálf gengur Ragnheiður ekki á skíðum, lætur börnin um að sinna þeirri íþrótt. „Mér finnst snjórinn alltaf bestur uppi í fjöllunum,“ segir hún og hlær. Auk þess að vera bæjarfulltrúi er Ragnheiður líka titluð svæðisleiðsögumaður og segir það þýða að hún eigi að hafa aðeins meiri og sérhæfðari þekkingu á sínu svæði en venjulegur leiðsögumaður. „Við eigum að geta farið betur ofan í ýmsa þætti í sögu svæðisins,“ segir hún og neitar því að leiðsögn sé eingöngu sum- artengd vinna. „Það eru dæmi um að útskriftarhópar úr skólum hérna komi í heimsókn að vetrarlagi og fái leiðsögumenn með sér, enda margt breyst síðan þetta fólk var hér. Það er alltaf eitthvað nýtt og skemmtilegt að gera,“ segir Ragnheiður Hákonardóttir á jákvæðu nótunum. HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? RAGNHEIÐUR HÁKONARDÓTTIR Snjórinn alltaf bestur uppi í fjöllum Ragnheiður Hákonardóttir Ég get fyrirgefið honum ekki Vagnstjórinn sem missti fæturna finnur ekki frið Örlagavaldurinn í lífi hans lýsir yfir sakleysi DV2x15 - lesið 17.11.2005 20:46 Page 1
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.