Fréttablaðið - 18.11.2005, Síða 38
18. nóvember 2005 FÖSTUDAGUR6
Erlingur Grétar Einarsson er
leikari, nemi, kennari og íbúð-
areigandi. Erlingur virðist hafa
bleikt þema í sínum sparnaði,
hann verslar við bleika Bónus
grísinn og kaupir bensín með
bleika Orkukortinu sínu.
Erlingur Grétar Einarsson leikur
eitt af aðalhlutverkunum í uppsetn-
ingu Stúdentaleikhússins á verkinu
Blóðberg. Á sviðinu fer hann með
hlutverk drottningarinnar Quincy,
kaldhæðins homma sem hangir
öll kvöld á börum bæjarins. Auk
þess að vera leikari nemur Erling-
ur kvikmyndafræði við Háskóla
Íslands og kennir við Menntaskól-
ann við Sund. Nýlega keypti hann
sér íbúð með kærustunni sinni og
hlýtur því að auki titlana íbúðareig-
andi og sambýlismaður. Dagarnir
líða hratt hjá Erlingi enda í nógu
að snúast, bæði utan sviðs og á, og
segist hann varla hafa tíma til að
hugsa um sparnað.
„Ég reyni að versla í Bónus
þegar tími vinnst til,“ segir Erling-
ur. „Ef maður sér eitthvað sem
er á tilboði þá náttúrlega skellir
maður sér á það ef maður þekkir
vöruna.“
Nýlega jók Erlingur útgjöld-
in með því að festa kaup á íbúð.
„Mann langar auðvitað til að forð-
ast lán og raðgreiðslur,“ segir
Erlingur. „En núna erum við með
húsnæðislán og bílalán. Við erum
reyndar með þetta allt í greiðslu-
þjónustu og það hjálpar rosalega.
Og við erum líka laus við yfir-
drátt sem er algjört heaven,“ segir
Erlingur og blaðamaðurinn stynur
af öfund. Íbúðakaupum getur
oft fylgt óvæntur kostnaður sem
erfitt er að sjá fyrir og því gott
að sýna fyrirhyggju. „Við gerð-
um það þannig að við reiknuðum
kostnaðinn alltaf rúmlega svo við
lentum ekki í vandræðum,“ segir
Erlingur. „Við höfum líka haft það
fyrir sið að leggja alltaf til hliðar
fimm prósent af laununum okkar
um hver mánaðamót. Þá eigum
við alltaf varasjóð til að nota í
húsgagnakaup eða ferðalög eða
þvíumlíkt.“
Erlingur og kærasta hans
reka einn bíl, Daewoo station,
sem Erlingur segir eyða frekar
litlu. „Maður finnur samt fyrir
bensínkostnaðinum. Ég fór alltaf
á þjónustustöðvarnar þegar ég
keypti bensín en ég var að fá mér
Orkukort þannig að núna er ég að
fara að spara alveg helling,“ segir
Erlingur ánægður. „Ég skoðaði
hvar mesti afslátturinn væri á
þessum ódýrari stöðvum og ákvað
að skella mér á þetta. Þetta er frels-
iskort þannig að maður leggur inn
á kortið og svo skellir maður því
bara í sjálfsalann. Á þennan máta
getur maður jafnvel skammtað
sér bensínpeninginn ef vill. Með
þessu er ég að spara mér um fjór-
ar krónur á lítrann. Og það munar
um það.“ johannas@frettabladid.is
Bleikur sparnaður kaldhæðinnar drottningar
Erlingur Grétar Einarsson leikari með fagur-
bleika Orkukortið sitt.
Verðandi bílakaupendur geta
hugsað sér gott til glóðarinnar.
Þeir sem ferðast um á tveimur
jafnfljótum og eru í bílahugleið-
ingum ættu að hafa augun opin.
Fjölmargar bílasölur eru nú með
tilboð á bæði nýjum og notuðum
bílum. Úr nægu er að velja hvort
sem það eru risavaxnir jeppar eða
smáir bílar sem taka aðeins hálft
bílastæði. Ingvar Helgason býður
kaupauka með notuðum bílum
sem eru á tilboðsverði þessa dag-
ana. Bílabúð Benna er með lækk-
að verð, og Bílaþing Heklu er með
útsölu á nýlegum og eldri bílum í
dag og á morgun. Þeir sem hafa
hug á bílakaupum ættu að vafra
um netið eða hringja í umboðin
áður en lagt er af stað til að vita
hvað er í boði.
Tækifæri til
bílakaupa
Tískuvöruverslunin Næs í Graf-
arvogi er nú með rýmingarsölu
þar sem allt á að seljast.
Vegna breytinga hjá versluninni
Næs í Grafarvogi verður allt í
búðinni selt. Næs selur gæða
kvenfatnað og aðeins þrjú verð
verða í gangi, 700 kr., 1.500 kr. og
4.000 kr. Hægt er að fá allan kven-
fatnað eins og buxur, dragtir, pils,
boli, toppa og margt fleira. Allt á
að seljast og þess vegna er eins
gott að láta hendur standa fram úr
ermum.
Næs er á Foldatorgi í Grafar-
vogi og hefur verslunin verið afar
vinsæl hjá Grafarvogsbúum.
Þrjú verð
Náttföt og náttkjólar eru á
tilboði í Dizu í Ingólfsstræti 6.
Stakar smáköflóttar náttbuxur
og langerma toppar við, einlit
náttföt, hvít, blá eða bleik og nák-
kjólar, stuttir og síðir eru meðal
þess sem verslunin Diza í Ingólfs-
stræti 6 býður á fimmtán prósenta
afslætti til næstu mánaðamóta.
Allt er þetta úr ítalskri hágæða-
bómull þannig að um hlýlega og
vandaða vöru er að ræða. Verð-
ið er heldur ekkert til að fælast.
Náttfötin eru á bilinu 4-5 þúsund
og náttkjólarnir undir þrjú þús-
und kallinum.
Ítölsk bómull