Fréttablaðið - 18.11.2005, Page 49

Fréttablaðið - 18.11.2005, Page 49
■■■■■■■■■■■ Húsið Skriðuklaustur er eitt mikilfeng- legasta hús landsins. Þar er menningar- setur og ákaflega gott kaffihús. Menningar- og fræðasetur HEIMILI GUNNARS GUNNARSSONAR. Skriðuklaustur var heimili skáldsins Gunnars Gunnarssonar og konu hans, Franziscu Gunnarsson, sem hann lét byggja um það leyti sem seinni heimsstyrjöldin braust út árið 1939. Þau hjónin bjuggu þar í níu ár og gáfu síðan íslenska rík- inu húsið svo hægt væri að reka þar menningarstofnun. Það var þó ekki fyrr en 1997 sem Gunnarsstofnun var sett á laggirn- ar, en hún leggur rækt við bók- menntir með áherslu á ritverk og ævi Gunnars Gunnarssonar, rekur dvalarstað fyrir lista- og fræði- menn, eflir rannsóknir á austfirsk- um fræðum og stendur fyrir sýn- ingum og öðrum listviðburðum. Menningar- og fræðasetrið að Skriðuklaustri er opið allt sumarið, og að vetrinum þegar sýningar standa yfir. 10-11 lesið 17.11.2005 15:13 Page 3

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.