Fréttablaðið - 18.11.2005, Page 61
18. nóvember 2005 FÖSTUDAGUR36
timamot@frettabladid.is
Ástkær eiginkona mín, besti vinur
og móðir okkar,
Carla Pizarro Fernadez
lést sunnudaginn 13. nóvember.
Símon Jóhann Bragason
Sóldís Rós Símonardóttir
Veronica Alexandra Símonardóttir
Rafael Róbert Símonarson
www.steinsmidjan.is Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Þegar andlát ber að
Síðastliðin 15 ár höfum við feðgar
aðstoðað við undirbúning útfara.
Alhliða útfararþjónusta
Símar: 567 9110,
893 8638 og 897 3020
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
MERKISATBURÐIR
1626 Basilíka Sankti-Péturs í Róm
er vígð af páfa.
1709 Biskupsstofan á Hólum í
Hjaltadal brennur til kaldra
kola.
1916 Bardaganum við Somme
í Frakklandi lýkur en hann
stóð í nærri fimm mánuði.
1920 Matthías Jochumsson,
skáld og prestur, andast.
1984 Jón Baldvin Hannibalsson
er kosinn formaður Alþýðu-
flokksins.
2003 George W. Bush Banda-
ríkjaforseti kemur í
opinbera heimsókn til
Bretlands.
NIELS BOHR (1885-1962)
LÉST ÞENNAN DAG.
„Sérfræðingur er maður sem hefur gert
öll þau mistök sem hægt er að gera innan
mjög þröngs sviðs.“
DANSKI EÐLISFRÆÐINGURINN
VAR EINN AF HÖFUNDUM
SKAMMTAFRÆÐINNAR.
Á þessum degi árið 1978 fundust lík af 914 mönn-
um, þar af 276 börnum, í kommúnunni Jonestown í
Guyana í Suður-Ameríku. Fólkið var
allt í söfnuðinum Musteri fólksins
en leiðtogi þess var Jim Jones.
Jones stofnaði söfnuð sinn á sjötta
áratugnum í Indíanaríki í Banda-
ríkjunum. Hann laðaði að sér
blökkumenn þar sem hann var á
móti kynþáttahatri. Árið 1971 sett-
ist söfnuðurinn að í San Fransisco
en fjölmiðlar fóru fljótlega að saka
Jones um ofbeldi gagnvart fylgis-
mönnum sínum auk þess sem
hann var sakaður um misnotkun á
börnum. Jones flutti því söfnuðinn
í frumskóga Suður-Ameríku og
stofnaði kommúnuna Jonestown
árið 1977.
Bandaríski þingmaðurinn Leo Ryan kom til Jones-
town árið 1978 en hann hafði verið hvattur af fyrrver-
andi félögum safnaðarins að kanna
málin. Þegar margir íbúa Jonestown
leituðu til Ryans og báðu hann að
koma sér til hjálpar leist Jones ekki
á blikuna og lét myrða þingmanninn
og förunauta hans.
Þá skipaði hann fylgismönnum
sínum að stytta sér aldur og inn-
byrtu flestir blásýru. Þeir sem neit-
uðu voru ýmist neyddir til þess eða
skotnir þegar þeir reyndu að flýja.
Aðeins rúmlega tugur manna lifði af
en sjálfur skaut Jones sig í höfuðið.
ÞETTA GERÐIST > 18. NÓVEMBER 1978
Jim Jones fyrirskipar fjöldasjálfsmorð
JONESTOWN
ANDLÁT
Bára Hólm, Hátúni 11, Eskifirði,
lést miðvikudaginn 16. nóvember.
Björn Kjartansson, verktaki, Fitja-
koti, Kjalarnesi, lést þriðjudaginn
15. nóvember.
Björn Vignir Sæmundsson,
Ránarbraut 9, Vík í Mýrdal, lést
mánudaginn 14. nóvember.
Guðbjörn Frímannsson, Heiðar-
vegi 8, Selfossi, lést þriðjudaginn
15. nóvember.
Rannveig Sigurðardóttir, Smára-
braut 15, áður Svanahlíð, Höfn í
Hornafirði, lést miðvikudaginn 16.
nóvember.
Þorbjörg Sveinsdóttir, frá Vík
í Mýrdal, lést þriðjudaginn 15.
nóvember.
JARÐARFARIR
11.00 Guðríður Jóelsdóttir,
fótaaðgerðafræðingur,
Laufskógum 19, Hveragerði,
verður jarðsungin frá Foss-
vogskirkju.
13.00 Dagbjört Elíasdóttir, Voga-
tungu 61, verður jarðsungin
frá Digraneskirkju.
13.00 Guðný Jóhanna Óskars-
dóttir, Birkimel 8, Reykja-
vík, verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju.
13.00 Jóna Guðmunda Jakobs-
dóttir og Ingibjörg Þórólfs-
dóttir verða jarðsungnar frá
Fríkirkjunni í Reykjavík.
14.00 Sólveig Björndís Guð-
mundsdóttir, Kirkjuvegi 5,
Keflavík, verður jarðsungin
frá Keflavíkurkirkju.
15.00 Sólveig Sigurbjörnsdóttir,
Dalalandi 1, Reykjavík, verð-
ur jarðsungin frá Hallgríms-
kirkju.
Rannveig Gunn-
arsdóttir, forstjóri
Lyfjastofnunar, er
56 ára.
AFMÆLI
Þórir Guðmunds-
son, fréttamaður á
Stöð 2, er 45 ára.
BRÚÐHJÓN
Arna E. Karlsdóttir og Þórr Tjörvi
Einarsson voru gefin saman á
Þingvöllum 21. júlí af séra Sigrúnu
Óskarsdóttur.
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli, andlát og jarðar-
farir í smáletursdálkinn hér að ofan má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
„Tuttugu og fjórar ungar konur voru
fengnar til að prýða Austurvöllinn sem þá
var óttalegt drullusvað eins og viðgekkst
á þessum árum en þar átti að setja styttu
af Bertel Thorvaldsen,“ segir Sigríður
Sigurbergsdóttir, formaður Thorvaldsens-
félagsins, um upphaf þess.
„Þegar þær ljúka verkinu með mikl-
um sóma verður einni þeirra svo að orði:
„Gaman gæti nú verið að halda hópinn og
láta gott af okkur leiða.“ Þótti hinum sem
mælt hefði verið úr þeirra munni.“
Þetta var 19. nóvember 1875 og síðan þá
hafa konur í Thorvaldsensfélaginu heldur
betur sett svip á bæinn með rausnarlegu
góðgerðarstarfi. „Þær byrjuðu að prjóna
og sauma föt og annað sem þær svo gáfu
á fátæk heimili, halda jólatréskemmtanir
fyrir fátæk börn og svo ráku þær handa-
vinnuskóla, sunnudagaskóla og margt
fleira tóku þær sér fyrir hendur,“ segir
formaðurinn.
Eflaust leiða fæstir hugann að því
þegar þeir ganga Laugaveginn að þakka
má Thorvaldsensfélaginu að hann var
lagður á sínum tíma. „Þeim rann til rifja
aðbúnaðurinn sem þvottakonur bjuggu við
en þær þurftu að bera þvottinn á bakinu
við illar aðstæður að laugunum þar sem
þær þvoðu svo berskjaldaðar fyrir allra
veðra vindum.“
Thorvaldsenskonur tóku sig því til og
byggðu skýli við laugarnar yfir þvottakon-
urnar og gáfu Reykjavíkurborg það með
því skilyrði þó að borgin skaffaði þvotta-
konunum hestakerrur svo þær þyrftu ekki
að bera þvottinn.
Ekki voru nú allir jafn hrifnir af því,
til dæmis sagði einn borgarstjórnarmað-
urinn að þær væru jú vinnukonur og það
ætti ekkert að vera að hlaða undir þær.
En það var gengið að þessu og í framhald-
inu er Laugavegurinn lagður,“ útskýrir
Sigríður.
Aðrar rósir í hnappagat félagsins eru
vöggustofan og dagheimilið á Dalbraut en
félagið hefur alla tíð gefið rausnarlega til
málefna barna.
THORVALDSENSFÉLAGIÐ: 130 ÁRA
Létu leggja Laugaveginn
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar og
systir,
Guðný Sóley Sveinsdóttir
Nordásvegen 138, Holmlige, Oslo,
áður til heimilis að Ásabraut 15, Keflavík,
lést þann 14. nóvember sl.
Útförin fer fram 22. nóvember í Osló.
Sepehr Habibi,
Freyja Elísa, Alexander Nureddin og David Anis.
Sigurbjörg H. Sveinsdóttir
Erling Rafn Sveinsson
Guðbjörg H. Sveinsdóttir
Vilhjálmur Á. Sveinsson
Elskulegur faðir okkar, fósturfaðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Ágúst Guðbrandsson
frá Stígshúsi, Stokkseyri,
lést á Landspítalanum, Fossvogi, sunnudaginn
13. nóvember. Útförin fer fram frá Stokkseyrarkirkju
laugardaginn 19. nóvember kl. 14.00.
Guðbrandur Stígur Ágústsson, Brynhildur Arthúrsdóttir
Guðríður Bjarney Ágústsdóttir
Sigríður Inga Ágústsdóttir
Dagrún Mjöll Ágústsdóttir, Aron Hauksson
Hólmfríður Hlíf Steinþórsdóttir, Einar Páll Bjarnason
Ragnheiður Drífa Steinþórsdóttir, Logi Hjartarson
Kristín Steinþórsdóttir
Jason Steinþórsson, Hrönn Sturlaugsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
„Ég veit varla hvort ég vilji að
þetta komi fram, en þegar
ég var ellefu ára tók ég að
mér fyrir vin minn að bera
út blöð í hverfinu hans og
rukka áskrifendur í einn
mánuð. Ég áttaði mig ekki á
því þá hvað ég var að gera,
en geri það núna, að ég
var blaðburðardrengur fyrir
Nútímann, Alþýðublaðið og
Þjóðviljann,“ segir Sigurður
Kári Kristjánsson hlæjandi en
hann er í dag alþingismaður
fyrir Sjálfstæðisflokkinn.
„Ég er satt best að segja ekkert stoltur af þessu
starfi,“ segir Sigurður. Þá bættist við að starfið var
töluvert erfitt því hann þurfti að bera út blöðin í
öllu Efra-Breiðholti en blöðin
voru þó tiltölulega fá. „Það
voru bara örfáir furðufuglar
sem voru áskrifendur að þess-
um ósköpum,“ segir Sigurður,
sem gekk langar leiðir á
hverjum degi í þennan eina
mánuð. Ekki fannst Sigurði
hann fá mikið borgað fyrir
ómakið. „Þeir voru nú bless-
aðir sósíalistarnir ekkert að
gera allt of vel við sitt fólk,“
segir hann glettnislega. Hýran
nægði þó til að kaupa Signus
Spectrum tölvu sem var mjög
vinsæl leikjatölva á þessum tíma. Það má því segja
að vinstrimenn hafi fjármagnað fyrstu tölvukaup
sjálfstæðismannsins Sigurðar Kára.
FYRSTA STARFIÐ: SIGURÐUR KÁRI KRISTJÁNSSON
Bar út blöð sósíalista og vinstrimanna
SIGRÍÐUR SIGURBERGSDÓTTIR FORMAÐUR THORVALDSENSFÉLAGSINS Sigríður er hér á Thorvaldsensbazar sem
malað hefur gull í gegnum tíðina. Ágóðinn hefur runnið til ýmissa góðra málefna.