Fréttablaðið - 18.11.2005, Side 76

Fréttablaðið - 18.11.2005, Side 76
Hljómsveitin Sálin hans Jóns míns mun árita nýjustu plötu sína, Undir þínum áhrifum, í Pennanum á Glerártorgi á Akureyri næstkomandi laugardag klukkan 16.00. Síðar um kvöldið treður sveitin upp í Sjallanum. Nýja platan hefur notið mikilla vinsælda og var í efsta sæti Tón- listans í tvær vikur. Myndbönd frá útgáfutónleikum Sálarinnar í Kaupmannahöfn er nú hægt að sjá á heimasíðunni tonlist.is. ■ Áritun á Akureyri SÁLIN HANS JÓNS MÍNS Nýjasta plata Sálarinnar hefur notið mikilla vinsælda að undanförnu. Mikill titringur er innan bandaríska kvikmyndaiðnaðarins eftir að Martin Scorsese tilkynnti á Marrakech-kvikmyndahátíðinni í Marokkó að hann væri hættur að búa til „Hollywood- myndir“. Scorsese hefur lengi verið meðal fremstu leikstjóra kvikmyndasögunnar og á að baki tímalausa snilld eins og Raging Bull og Goodfellas að ógleymdri Taxi Driver. Leikstjórinn goðsagnakenndi sagðist vilja einbeita sér frekar að heimildarmyndum og stuttmyndum. Hann hefur fengið mikið lof fyrir mynd sína um Bob Dylan og það skyldi því aldrei vera að Scorsese fengi loksins Óskarinn fyrir heimildarmynd en það væri væntanlega saga til næsta bæjar enda hefur hann aldrei fengið styttuna góðu fyrir leiknar myndir sínar. Það er þó ekki alveg komið að þessum tímamótum því um þess- ar mundir er Scorsese að leggja lokahönd á The Departed. Þá hefur hann í bígerð kvikmyndina Silence en hún fjallar um prest sem flyst til Kína í þeim tilgangi að kristna landið. Eftir að gerð hennar lýkur hyggst Scorsese hægja aðeins á ferðinni. ■ SCORSESE OG DICAPRIO Martin Scorsese segist vilja leggja meiri áherslu á gerð heimildarkvikmynda og stuttmynda. Hann hyggst hætta gerð „Hollywood-mynda“. Scorsese hættur að gera Hollywood-myndir Nýjasta plata Bjarna Ara, Svíng, er komin út. Á plötunni leikur Bjarni sér að íslenskum og erlend- um dægurlögum við undirleik stórsveitar undir dyggri stjórn Þóris Úlfarssonar. Á meðal laga plötunnar er Allur lurkum laminn, Undarlegt með unga menn, Ef þú ert mér hjá og Ástaróður þar sem Bjarni syngur dúett með Helga Björns. Síðasta plata Bjarna, Er ástin þig kyssir, kom út fyrir þremur árum við góðar undirtektir. ■ Svíng frá Bjarna Ara BJARNI ARA Söngvarinn Bjarni Ara hefur gefið út nýja plötu. 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.