Fréttablaðið - 18.11.2005, Side 79
54 18. nóvember 2005 FÖSTUDAGUR
sport@frettabladid.is
Deila knattspyrnumannsins Grétars Sig-
finns Sigurðssonar og Víkings er langt
frá því að vera til lykta leidd. Grétar
lifir enn í þeirri von að
geta leikið með Val
á næstu leiktíð en
hann neitar að æfa
með Víkingum þótt
hann sé samnings-
bundinn félag-
inu. Hann
braut síðan
samning-
inn á
þriðju-
dag
þegar
hann
mætti á æfingu hjá Val án leyfis frá
Víkingi. Það reyndist ekki skynsöm
ákvörðun hjá Grétari því hann var
gripinn í bólinu.
„Ég fékk veður af því að hann væri
að æfa með Val uppi í Egilshöll og ákvað
að sjá það með eigin augum þar sem ég
trúði því ekki. Svo þegar ég kom í Egils-
höllina sá ég að þetta var satt því Grétar
var á æfingunni,“ sagði Magnús Gylfason,
þjálfari Víkings, í gær en hann fundaði
með Grétari vegna málsins á miðvikudag.
Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins
hélt Magnús því fram að hann hefði tekið
myndir af Grétari á æfingunni og ætti því
sönnunargögn fyrir samningsbrotinu. Því
neitaði Magnús í gær. „Ég sé ágætlega og
þurfti ekki að taka neinar myndir til að sjá
að hann var á æfingunni.“
Grétar vildi lítið tjá sig um málið í
gær en hann hélt utan til London seinni-
partinn. Meðan hann hvílir sig á deilunni
munu máls- aðilar funda.
V í k i n g a r hafa sýnt
mikla stað- festu í
m á l i n u
en sumir
þ e i r r a
eru búnir
að fá um
það bil nóg
og því er enn
vel í myndinni
að Víkingur selji
hann til Vals eins
og Grétar hefur
óskað eftir.
GRÉTAR SIGFINNUR SIGURÐSSON: GRIPINN GLÓÐVOLGUR AF MAGNÚSI GYLFASYNI Í EGILSHÖLLINNI
Stóð Grétar að verki en tók engar myndir
> Við furðum okkur á...
... vinnubrögðum Viggós Sigurðsson-
ar, landsliðsþjálfara i handbolta, og
landsliðsvali hans en hann valdi fjóra
markverði og fjóra örvhenta leikmenn
í sextán manna hóp sinn í gær. Samt
var ekkert pláss fyrir hinn stórefni-
lega örvhenta leikmann Ásgeir Örn
Hallgrímsson. Viggó hefur ekki borið
sig eftir upplýsingum um
hvernig ástandi hann sé í
og það ekki í fyrsta skipti.
Stutt er síðan upp komst
um slæleg vinnubrögð
þjálfarans þegar hann
sagði Roland Eradze
meiddan á meðan
hann var í fullu fjöri
með Stjörnunni.
Þá aflaði Viggó
sér heldur engra
upplýsinga og
uppákoman vægast
sagt neyðarleg.
HANDBOLTI Landsliðshópurinn sem
mætir Norðmönnum í þrem vin-
áttulandsleikjum um næstu helgi
var tilkynntur í gær. Miklar breyt-
ingar eru á hópnum en Markús
Máni Michaelsson er meiddur og
Ólafur Stefánsson og Sigfús Sig-
urðsson eiga ekki heimangengt.
Fylkismennirnir Hlynur Mort-
hens og Heimir Örn Árnason koma
óvænt inn og Einar Örn Jónsson
snýr aftur. Ekkert pláss er aftur á
móti fyrir Ásgeir Örn Hallgríms-
son.
Handboltalandsliðið:
Miklar
breytingar
� � LEIKIR
� 19.15 KA og Afturelding mætast í
DHL-deild karla í handbolta á
Akureyri.
� 19.15 Fjölnir og KR mætast í
Powerade-bikar karla í körfubolta í
Laugardalshöll.
� 20.30 Keflavík og Njarðvík
mætast í Powerade-bikar karla í
körfubolta í Laugardalshöll.
� � LEIKIR
� 07.00 Olíssport á Sýn. Sýnt fjórum
sinnum til 09.00 og svo aftur kl.
18.00.
� 18.30 NFL-tilþrif á Sýn.
� 19.00 Gilette-sportpakkinn á Sýn.
� 20.00 Motorworld á Sýn.
� 20.00 Meistaradeildin á Sýn.
Fréttaþáttur um þessa stærstu deild í
heimi.
� 22.00 Sýn 10 ára á Sýn.
Skemmtiþáttur í tilefni af 10 ára
afmæli sjónvarpsstöðvarinnar.
Endursýning frá því í gær.
� 23.15 NBA á Sýn. Sýndur verður
leikur Boston og Chicago frá 1986
þar sem 21 árs gamall Micheal
Jordan skoraði 63 stig.
� 02.40 Hnefaleikar á Sýn.
Útsending frá einvígi Castillo og
Corrales frá því í maí á þessu ári.
� 05.55 A1 Grand Prix á Sýn. Bein
útsending frá heimsbikarnum í
kappakstri.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
15 16 17 18 19 20 21
Föstudagur
NÓVEMBER
� 19.15 Fylkir og Selfoss mætast í
DHL-deild karla í handbolta í
Árbænum.
� 19.15 FH og ÍR mætast í DHL-deild
karla karla í handbolta í Hafnarfirði.
Sjónvarp@megin
� 07.00 Olíssport á Sýn. Sýnt fjórum
sinnum til 09.00 og svo aftur kl.
18.30.
� 19.00 Gilette-sportpakkinn á Sýn.
� 19.30 Íþróttahetjur á Sýn. Þáttur
um ólíkar íþróttagreinar.
� 20.00 Motorworld á Sýn.
� 20.30 Meistaradeildin á Sýn.
Fréttaþáttur.
� 21.00 Íslandsmótið í Galaxy
Fitness á Sýn.
� 00.40 NFL-tilþrif á Sýn.
� 01:10 NBA á Sýn. Bein útsending
frá leik Philadelphia og LA Lakers.
� 19.15 KA og Afturelding mætast í DHL-
deild karla í handbolta á Akureyri.
� 19.15 Fjölnir og KR mætast í Powerade-
bikar karla í körfubolta í Laugardalshöll.
� 20.30 Keflavík og Njarðvík mætast í
Powerade-bikar karla í körfubolta í
Laugardalshöll.
Sjónvarp@megin
� 07.00 Olíssport á Sýn. Sýnt fjórum
sinnum til 09.00 og svo aftur kl. 18.00.
� 18.30 NFL-tilþrif á Sýn.
� 19.00 Gilette-sportpakkinn á Sýn.
� 20.00 Motorworld á Sýn.
� 20.00 Meistaradeildin á Sýn. Fréttaþáttur
um þessa stærstu deild í heimi.
� 22.00 Sýn 10 ára á Sýn. Skemmtiþáttur í
tilefni af 10 ára afmæli
sjónvarpsstöðvarinnar. Endursýning frá því í
gær.
� 23.15 NBA á Sýn. Sýndur verður leikur
Boston og Chicago frá 1986 þar sem 21 árs
gamall Micheal Jordan skoraði 63 stig.
� 02.40 Hnefaleikar á Sýn. Útsending frá
einvígi Castillo og Corrales frá því í maí á
þessu ári.
� 05.55 A1 Grand Prix á Sýn. Bein
útsending frá heimsbikarnum í kappakstri.
52-53 (28-29) Sport 17.11.2005 17:27 Page 2
LANDSLIÐSHÓPURINN:
BIRKIR ÍVAR GUÐMUNDSSON HAUKAR
GÍSLI GUÐMUNDSSON ÍR
HLYNUR MORTHENS FYLKIR
HREIÐAR GUÐMUNDSSON KA
BALDVIN ÞORSTEINSSON VALUR
ALEXANDER PETERSON GROSSWALLSTADT
EINAR HÓLMGEIRSSON GROSSWALLSTADT
EINAR ÖRN JÓNSSON TORREVIEJA
GUÐJÓN VALUR SIGURÐSSON GUMMERSBACH
HEIMIR ÖRN ÁRNASON FYLKIR
JALIESKY GARCIA PADRON GÖPPINGEN
RÓBERT GUNNARSSON GUMMERSBACH
SNORRI STEINN GUÐJÓNSSON MINDEN
VIGNIR SVAVARSSON SKJERN
VILHJÁLMUR HALLDÓRSSON SKJERN
ÞÓRIR ÓLAFSSON LUBBECKE
FÓTBOLTI Þrátt fyrir að hafa misst
fjölda leikmanna í vetur eru Fylk-
ismenn ekki af baki dottnir, þeir
hugsa stórt og jafnvel stærra en
önnur íslensk félög þegar kemur
að leikmannamálum. Samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins eru
Fylkismenn í samningaviðræðum
við fyrrum stjörnu enska stór-
liðsins Manchester United, David
May.
May, sem lék með Manchester
United á Ian Rush-mótinu í Egils-
höll á dögunum, hefur verið í við-
ræðum við Fylki í nokkurn tíma
og samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins hefur hann tekið vel í þá
hugmynd að koma hingað og leika
knattspyrnu næsta sumar. Það
sem helst gæti staðið í v gi fyrir
því að May komi hingað er að
hann er nýbúinn að stofna fyrir-
tæki sem gæti tekið mikið af hans
tíma.
Stjórnarmenn í Fylki vildu
ekki tjá sig um málið þegar eftir
því var leitað en heimildir Frétta-
blaðsins herma að May muni gefa
Fylki svar í janúar.
Fari svo að May komi verður
hann annar fyrrum leikmaður
Manchester United sem kemur
hingað til lands en ekki er langt
síðan Lee Sharpe lék nokkra leiki
með Grindavík.
May var í frægu liði Man. Utd.
sem vann þrennuna árið 1999 og
hann vann einnig fjölda meistara-
titla með enska félaginu. May er
uppalinn hjá Blackburn en var
keyptur til United árið 1994 fyrir
eina milljón punda. Hann fann
strax fyrir velgengni hjá sínu
nýja félagi því United varð meist-
ari 1995.
May var keyptur til liðsins
sem arftaki Steve Bruce við hlið
Gary Pallister í miðri vörn Unit-
ed. Tækifæri Mays voru af skorn-
um skammti til að byrja með en
hann fékk almennilegt tækifæri
leiktíðina 1996-97 þegar Bruce
var hættur. Hann tók það báðum
höndum, lék mjög vel og vann sér
fast sæti í byrjunarliðinu.
Hann var valinn í enska lands-
liðið hjá Glenn Hoddle 1997 en
þurfti að draga sig úr hópnum
vegna meiðsla. Samkeppnin leik-
tíðina á eftir var hörð með tilkomu
Ronny Johnsen og Henning Berg.
May var stöðugt meiddur og fljót-
lega kom í ljós að hann var ekki
hugsaður sem framtíðarmaður.
Það varð síðan klárt þegar Sir
Alex Ferguson, stjóri United, pung-
aði út rúmum tíu milljónum punda
fyrir Hollendinginn Jaap Stam.
Engu að síður var May mikilvæg
varaskeifa og sem slík upplifði
hann einstakt tímabil hjá Man.
Utd. árið 1999 þar sem hann átti
reyndar ágæta spretti á köflum.
May er 35 ára gamall og lagði
skóna á hilluna fyrir einu og
hálfu ári síðan. Hann yrði eflaust
ekki lengi að koma sér í form
kysi hann svo og sem slíkur yrði
hann Fylki vafalaust gríðarlegur
liðsstyrkur.
henry@frettabladid.is
David M y á leið til Fylkis?
Fyrrum varnarmaður Manchester United, David May, er í viðræðum við Fylki
um að spila með félaginu í Landsbankadeildinni næsta sumar. Hann mun í
janúar svara Árbæingum, sem er vongóðir um að landa stjörnunni.
MARGFALDUR MEISTARI David May sést hér lyfta Englandsbikarnum en hann vann marga
sæta sigra með United, þar á meðal Meistaradeildina árið 1999.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
GOLF Ragnhildur Sigurðardótt-
ir mun ekki taka þátt í Evrópu-
mótaröð kvenna í golfi en hún féll
úr leik á úrtökumótinu á Spáni í
gær. Hún lék fyrsta hringinn á 80
höggum og í gær kom hún í hús á
84 höggum, ellefu yfir pari.
Það nægði engan veginn en
aðeins 44 þáttakendur af 118
komust áfram á annað stig móts-
ins sem hefst í dag. Þá hefur Ólöf
María Jónsdóttir keppni og von-
andi gengur henni betur en Ragn-
hildi. - hbg
Ragnhildur Sigurðardóttir:
Úr leik á Spáni
RAGNHILDUR SIGURÐARDÓTTIR Mistókst í
þriðja sinn á úrtökumótinu fyrir Evrópu-
mótaröðina.
HANDBOLTI Þýska handknattleiks-
félagið Dusseldorf og íslenska
landsliðið í handknattleik varð
fyrir miklu áfalli á miðvikudag
þegar Markús Máni Michaelsson
meiddist í
leik gegn
Lemgo,
Markús
lenti illa
með þeim
a f l e i ð -
ingum að
h néskel i n
færðist úr
stað. Lækni
Lemgo tókst að setja hana aftur
á sinn stað. Meiðslin gætu verið
mjög leiðinleg og jafnvel haldið
Markúsi frá keppni svo vikum
skiptir, Ef það verður niðurstað-
an missir hann af EM í Sviss sem
fram fer í lok janúar.
Markús Máni Michaelsson:
Gæti misst af EM
MARKÚS MÁNI Lenti í
skelfilegu óhappi.
Sölvi Geir meiddur
Varnarmaðurinn Sölvi Geir Ottesen
er með slitið krossband og verður
frá í 7-8 mánuði. Þetta er mikið áfall
fyrir Sölva Geir, sem var nýbúinn að
festa sig í sessi í íslenska landslið-
inu en um leið lán í óláni þar sem
keppni í sænsku úrvalsdeildinni er
nýlokið og ætti Sölvi því að geta leik-
ið með þegar líður á næstu leiktíð.